Alexandra Global Master Fund

Alexandra Global Master Fund er eitt af þeim 136 Tortola félögum sem Morgunblaðið sagði frá að fengið hefðu leyfi til þess að starfa á Íslandi. Við leit á netinu kemur í ljós yfirlýsing um raunverulegan eiganda (e. Beneficial Owner) sem skráð er hjá SEC (sambærileg stofnun á Bandaríkjaþingi og Fjármálaeftirlitið er fyrir Ísland). Í þessari yfirlýsingu eru tvö félög sem tengjast Mikhail A Filimonov að tilkynna eignatengsl sín og Filimonovs sjálfs í Argyle Security Inc. Í öðru skjali (PDF) er því hreinlega haldið fram að "Mikhail A Filimonov has the power to direct the voting or disposition of the securities held by Alexandra Global Master Fund Ltd."

 

Tengsl félagsins Alexandra Global Master Fund við Ísland eða íslenska aðila eru ekki ljós á þessari stundur, ef þú þekkir tengslin hvet ég þig eindregið til þess að skilja eftir athugasemd við þessa færslu.