Barkham Associates SA
elfur - 14. February 2009 - 1:53
Flugleiðir (síðar FL Group) eignaðist 49% hlut í Barkham Associates SA árið 2004, skv. samstæðuársreikningi félagsins fyrir árið 2004. Í ársreikningnum er sagt að félagið annist útleigu á flugvélum. Á vefsíðu ársreikninga Icelandair Group er eignin enn tilgreind sem eign félagsins í árslok 2006 og 2007.
Lettnesk síða sem rekin er af þarlendum stjórnvöldum nefnir Íslandsbanka og Barkham Associates SA í sömu setningu og á sömu síðu er einnig félag sem ber heitið Hansa lizings. Það væri óskandi að einhver sem skilur það sem sagt er á þeirri síðu gefi okkur upplýsingar um það.