BGE eignarhaldsfélag ehf.
BGE er að stærstum hluta í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Gunnars S. Sigurðssonar, Skarphéðins Bergs Steinarssonar og Stefán H. Hilmarssonar
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/03/18/2_35_prosent_hlutur_i_...
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/03/18/skarphedinn_berg_ekki_leng...
http://visir.is/article/20090318/VIDSKIPTI06/114058199
Frétt í viðskiptablaði Morgunblaðsins 19. mars 2009:
Lánaði starfsmönnum Baugs 3,4 milljarða
BGE lánaði starfsmönnum Baugs til að kaupa í Baugi
FÉLAG í eigu tólf stjórnenda og starfsmanna Baugs Group, BGE eignarhaldsfélag, hafði lánað starfsmönnunum 3,4 milljarða króna til þess að kaupa hlutabréf í Baugi í árslok 2007. Lánin voru fjármögnuð með lánum frá Kaupþingi og veitt gegn veðum í bréfunum sem keypt voru í Baugi. Baugur hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum og því eru hlutabréfin verðlaus. Kaupþing getur því ekki innheimt lánveitingarnar.
Samtals námu eignir BGE 5,3 milljörðum króna í lok árs 2007 og höfðu þá tvöfaldast frá árinu áður. Eignir félagsins voru tvær; annars vegar lánveitingarnar til starfsmanna Baugs og hins vegar 2,35 prósent eignarhlutur í Baugi sem var bókfærður á 1,9 milljarða króna.
Stefán Hilmarsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs, segir að BGE hafi haldið utan um kaupréttarsamninga starfsmanna félagsins. „Félagið tók lán hjá Kaupþingi banka til að fjármagna sig og lánaði síðan áfram til starfsmanna Baugs. Veðin voru í bréfunum sjálfum.“
Stefán segir fyrirkomulagið hafa byggst á undanþáguákvæði í 104. grein hlutafélagalaganna, en inntak hennar er að hlutafélag „má ekki veita lán til að fjármagna kaup á hlutum í félaginu eða móðurfélagi þess hvort sem móðurfélagið er hlutafélag eða einkahlutafélag.“ Undanþágan sem Stefán á við er að ákvæði greinarinnar eigi þó ekki við um „kaup starfsmanna félagsins eða tengds félags á hlutum eða kaup á hlutum fyrir þá.“Segir Baug ekki hafa lánað
Í ársreikningi BGE fyrir árið 2007 segir að lán frá Baugi Group til félagsins hafi samtals numið 2,7 milljörðum króna á árinu, en heildarumfang þeirra lána var 378 milljónir króna árið áður. Stefán segir þetta eiga sér eðlilega skýringu. „Þessi skuldastaða við Baug sem þarna kemur fram er vegna þess að félagið var skrifað fyrir hækkun á hlutafé Baugs um mitt ár 2007. Það hlutafé var ógreitt um áramótin og því er þetta að mestu ógreitt hlutafjárloforð vegna kaupa á hlutafé um mitt ár 2007.“
Í hnotskurn
»BGE eignarhaldsfélag var stofnað 25. nóvember 2003 til að halda utan um kauprétti.
»Í lok árs 2007 áttu Jón Ásgeir Jóhannesson, Gunnar Sigurðsson, Stefán Hilmarsson og Skarphéðinn Berg Steinarsson allir 18,8 prósent hlut í félaginu. Átta aðrir starfsmenn áttu hlut í því.
»Skarphéðinn seldi sinn hlut um mitt ár 2008.
»Að sögn Stefáns Hilmarssonar er BGE eignarhaldsfélag enn í eigu hinna starfsmannanna.