Feed items

Listamaðurinn og gullöld þöglu myndanna

Kvikmyndin Listamaðurinn er frábært sjónarspil og vekur minningar frá fyrstu áratugum Hollywood.

Aðalkarlpersónan í myndinni er einhvers konar sambland af Douglas Fairbanks og John Gilbert. Gilbert var ein aðalstjarnan í Hollywood, en náði ekki að færa sig yfir í talmyndirnar þegar þær komu. Dó úr áfengisdrykkju 1934.

Það eru ýmis smáatriði sem maður tekur eftir. Til dæmis að kona á uppboði er klædd eins og leikkonan Zazu Pitts í ótrúlegu meistaraverki þögla tímans, Greed eftir Erich von Stoheim.

Undir lok þögla tímabilsins var kvikmyndalistin orðin býsna háþróuð – og framsækin: Greed var magnum opus Stroheims, í upphaflegri útgáfu var myndin níu tímar að lengd!

Snillingurinn Murnau gerði Sunrise, King Vidor gerði The Crowd – í Evrópu gerði Fritz Lang Metropolis.

Þessar myndir eru mikil stórvirki – í raun tók við hnignunarskeið þegar talmyndirnar komu. Það var ekki fyrr en síðar að menn náðu slíkum tökum á hljóðupptökum að hægt var að skálda jafn stórt og síðustu meistarar þöglu myndanna gerðu.

Býst ekki við að ná 32 nöfnum

Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég næ ekkert 32 undirskriftum eins og staðan er í dag, ég er algerlega fullkomlega meðvituð um það. Enda var það kannski ekki aðal ástæða þess að ég fór af stað með listann heldur til þess að vekja athygli á því af hverju mér þótti tilefni til þess að setja af stað svona lista, segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.

Auðlegðarskattur eða eignarnám

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokks hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til fjármálaráðherra um auðlegðarskatt, eignarnám og skattlagningu. Þingmaðurinn spyr hvort könnuð hafi verið mörk auðlegðarskatts og eignarnáms.

Hann spyr einnig hvort ráðherra hafi hugleitt hversu stór hluti skattstofns við skattlagningu fjáreignatekna sé verðleiðrétting, það er verðbætur á verðtryggðum innlánsreikningum og gengismunur á innlendum gjaldeyrisreikningum, og vextir.

Úttektin kostaði 70 milljónir

Úttektin á lífeyrissjóðunum í aðdraganda hrunsins kostaði um 70 milljónir króna. Þriggja manna nefnd skilaði af sér 800 blaðsíðna skýrslu í gær eftir rúmlega árs vinnu. Þessu fé er vel varið, segir Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður Landssamtaka lífeyrissjóða, sem stóðu fyrir skýrslugerðinni.

„Ef við tökum kostnaðinn allt frá byrjun og miðum við haustið 2010 þegar verkið fór í gang og miðum við að því ljúki núna nánast um helgina þá áætlum við og höfum tölur um það að þetta muni rétt losa 70 milljónir króna,“ segir Arnar.

read more

Minna joð í norskri mjólk

Joðinnihald í norskum mjólkurvörum hefur lækkað um hátt í fjörutíu prósent frá árinu 2000. Tine, stærsti mjólkurvöruframleiðandi í Noregi hefur bent heilbrigðisyfirvöldum og manneldisráði landsins á þetta.

 Norðmenn fá um helming af því joði sem þeir innbyrða úr mjólkurvörum. Skortur á því getur leitt til truflana á efnaskiptum og stækkunar á skjaldkirtli. Ekki er fullljóst af hverju minna joð er í mjólkinni nú en hugsanlega má rekja það til hærra hluttfalls repju í kraftfóðri. Manneldisráðið staðfestir að ýmislegt bendi til þess að hluti Norðmanna, fái ekki nægilega mikið af joði, sérstaklega fólk sem neytir lítils af fiski og mjólkurvörum, því sé full ástæða til að fylgjast með joðinnihaldi mjólkur. 

Hreyfingin tilnefnir Bradley Manning til Nóbelsverðlauna

Þinghópur Hreyfingarinnar hefur tilnefnt Bradley Manning til friðarverðlauna Nóbels. Manning er sakaður um að hafa lekið þúsundum skjala til uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks og bíður nú þess að verða dreginn fyrir herdómstól í Bandaríkjunum.

Fórnarlömb mansals þurfa mikla sálfræðiaðstoð

Sálfræðilegar þarfir fórnarlamba mansals eru oft mjög miklar og afleiðingar mansalsins hafa haft djúpar sálfræðilegar afleiðingar. Þær glíma gjarnan við alvarlegt þunglyndi og áfallastreituröskun en einnig geta þær átt við áfengis- eða vímuefnavanda.

Lesa meira →

Rúmur milljarður í þróunarsjóð EFTA

Framlag Íslands í þróunarsjóð EFTA árið 2011 nam 1255 milljónum króna. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur og lagt var fram á Alþingi í gær.

 Fram kemur í svarinu að framtíðin sé óráðin fram yfir 2014 þar sem samningastímabilið spanni einungis 2009 til 2014.  Hlutfall Íslands í heildarframlagi er reiknað fyrir hvert ár sem tekur breytingum í takt við landsframleiðslu. Miðað við þann góða gang sem sé kominn í efnahagslíf landsmanna og væntingar um aukna landsframleiðslu megi gera ráð fyrir að heildarframlag Íslands á áðurnefndu tímabili geti numið 5,2 milljörðum króna á núverandi gengi. Umsamið hámark, sem Ísland greiðir er þó 5,4 milljarðar, svo Ísland greiðir aldrei hærri upphæð en sem því nemur. 

Aðstoðarmönnum Steingríms fjölgar

Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, efnahags og viðskiptaráðherra.

Villa hækkaði fasteignaskatt

Ísafjarðarbær braut lög þegar fasteignaskattur var hækkaður í 0,65%. Lögbundið hámark er 0.625%. Bærinn þarf að leggja fasteignagjöld á aftur til að leiðrétta þetta. Samkvæmt upplýsingum frá Ísafjarðarbæ er innsláttarvillu um að kenna.

Ætlunin var að hækka fasteignaskatt í lögbundið hámark, en lækka vatns- og holræsagjöld á móti, svo heildarútkoman yrði sú sama fyrir húseigendur. Fasteignaskattsprósentan hafi hins vegar verið vitlaust slegin inn og farið þannig í gegnum bæjarstjórn. Fasteignagjöldin eru saman sett úr fasteignaskatti, holræsagjaldi og vatnsgjaldi. Fasteignagjöldin, samtalan, er sú sama þrátt fyrir mistökin, 1,08% af fasteignamati, þannig að íbúar voru ekki rukkaðir um hærri upphæð en ella.