Feed items

Meiri líkur en minni á gosi í Grímsvötnum

Hlaup er hafið í Grímsvötnum og segir Gunnar Sigurðsson, vatnmælingarmaður á Veðurstofunni, að meiri líkur en minni séu á því að gos hefjist í Grímsvötnum að loknu hlaupinu. Þetta er haft eftir Gunnari á vef Ríkisútvarpsins en þar sagði hann að búast megi við því að gosið verði svipað og þegar jökullinn hljóp fyrir sex árum.

Lesa meira →

Maxi Rodriguez tryggði Liverpool sigur á Bolton

Argentínumaðurinn Maxi Rodriguez var hetja Liverpool í dag þegar hann tryggði liðinu sigur á Bolton, 1-0, með sigurmarki fimm mínútum fyrir leikslok. Með sigrinum flaug Liverpool úr fallsæti og upp í það tólfta.

Lesa meira →

Ögmundur: Varasöm hugsun að tala um utanþingsstjórn

Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, segir það vera varasama hugsun að tala um utanþingsstjórn því stjórnmálastéttin hefur brugðist. „Svo er að skilja að ef við losnum við „þrasið" í stjórnmálastéttinni" og ef við aðeins finnum nokkra ærlega, faglega þenkjandi einstaklinga þá sé hægt að kippa öllu í liðinn. Halda menn að þetta sé svona,“ spyr Ögmundur á heimasíðu sinni.

Lesa meira →

Stjórnarskráin verndi fjölmiðla gegn „bófum“

Fyrrverandi ritstjórinn Jónas Kristjánsson vill að stjórnarskráin verndi fjölmiðla. Jónas er í framboði til stjórnlagaþings en hann segir fjölmiðla nánast alltaf vera dæmda seka fyrir móðganir. „Hver bófinn á fætur öðrum hótar fjölmiðlum öllu illu. Sigar lagatæknum á þá, sem ljósta upp um atferli þeirra. Vita, að íslenzkir dómstólar dæma slíkt á færibandi. Fjölmiðlar eru nánast alltaf sekir um móðganir. Meira að segja dæmdir fyrir að hafa rétt eftir viðmælendum sínum,“ skrifar Jónas á bloggsíðu sinni.

Lesa meira →

Nafn Íslendingsins sem lést í Noregi

Íslendingurinn sem lést þegar hann varð fyrir lest í Drammen í Noregi síðastliðið föstudagskvöld hét Kjartan Björnsson.

Lesa meira →

Fullkominn dagur hjá Newcastle

Lífið gæti ekki verið betra í Newcastle akkurat þessa stundina en Newcastle lagði erkifjendur sína í Sunderland að velli í ensku úrvasldeildinni, 5-1. Til að bæta gráu ofan á svart hjá Sunderland var varnarmaðurinn Titus Bramble sendur af velli með rautt spjald en hann er fyrrum leikmaður Newcastle.

Lesa meira →

Markalaust í fyrri nágrannaslag dagsins

Tveir nágrannaslagir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en þeim fyrri á milli Birmingham og Aston Villa lyktaði með markalausu jafntefli. Seinni nágrannaslagurinn, hin mikla Tynewear-barátta Newcastle og Sunderland, er einnig hafin.

Lesa meira →

Ásgrímur kallaði Steingrím J. „kerlingu“

Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, kallaði Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, kerlingu á opnum fundi um atvinnumál, sem fram fór í Stapa á fimmtudag.

Lesa meira →

Hristi 3 mánaða barn til dauða því hann truflaði Farmville- leik á facebook

22 ára kona í Jacksonville Flórída hefur játað að hafa hrist 3 mánaða son sinn til dauða eftir að hann truflaði hana á meðan hún lék sér í Farmville á facebook.

Lesa meira →

Soprano leikkona deyr

Leikkonan Denise Borino-Quinn sem lék konu mafiósans Johnny Sacramoni í vinsælu sjónvarpsþáttunum um Soprano fjölskyldunna, lést síðastliðinn miðvikudag af völdum krabbameins.

Lesa meira →