Feed items
Alla sótrafta á sjó
Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
MicrosoftInternetExplorer4
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:"Table Normal";
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:"";
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin:0cm;
mso-para-margin-bottom:.0001pt;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:"Calibri","sans-serif";
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:Calibri;
mso-fareast-theme-font:minor-latin;
mso-hansi-font-family
Það hefur ekkert breyst...
Um áratuga skeið hafa íslenskir stjórnmálamenn, og þá helst ráðherrar (sem eru bæði framkvæmda- og löggjafarvaldið!) misnotað stöðu sína til að koma flokksgæðingum og öðrum velunnurum á ríkisspena eða í valdastöður, oft án tillits til kunnáttu, hæfni, þekkingar eða reynslu, þó vissulega komi það fyrir að fagfólk með mikla þekkingu og jafnvel reynslu fái slík hlutverk á vegum flokkanna. Oftast eru þingflokkarnir beðnir um tilnefningar í nefndir og ráð án þess að krafist sé sérstakrar færni eða þekkingar.
Eitt ömurlegasta dæmi síðari tíma um slíkt er skipan í bankaráð ríkisbankanna eftir yfirtöku ríkisins í haust en stjórnmálaflokkarnir skiptu þeim stöðum bróðurlega á milli sín. Þingflokkur Framsóknarmanna fékk tvo. Mér skilst að skilaboðin hafi verið einhvern veginn svona -Þið fáið tvo eða verðið ekki með-. Einhverntíma hefði maður haldið að á slíkri ögurstundu og í slíku verkefni væri það eitthvað annað en flokksskírteinið sem réði ferðinni.
Eflaust hefur ágætasta fólk valist til verka en er það örugglega hæfasta fólkið sem hægt var að fá til að stýra yfirteknu bankakerfi á þessum tímum? Eða var það valið til að gæta hagsmuna stjórnmálaflokkanna og -mannanna?
Brýtur nauðsyn lög?
Eftir að neyðarlögin voru sett í október s.l. skrifaði ég eftirfarandi ritgerð.
Í ljósi umræðunnar birti ég hana hér...
Kunnugleg trix
Þetta hljómar kunnuglega úr íslenskri pólitík. Ekki afsögnin samt!
Haltu kjafti?
Eitthvað segir mér að þessi frétt sé til þess skrifuð að reyna að þagga niður í þeim armi VG sem vill ganga lengra og fara í róttækar aðgerðir fyrir heimilin í landinu. Sá armur kynnti sínar lausnir í vikunni. Þær hafa ekki náð eyrum fólks eða fjölmiðla en mbl.is gerði þeim þó skil.
Hef heimildir fyrir því að þessi málefnahópur VG hafi fengið skömm í hattinn fyrir að skemma fyrir stjórnarmyndunarviðræðum með því að leggja fram hugmyndir sem Samfylkingin hafnaði áður en hún las þær. Athyglivert í ljósi þess að fjármálaráðherrann Steingrímur J (arðfræðingur) er í þann mund að verða valdamesti maður landsins.
Því miður virðist ekkert nýtt í farvatninu í þinginu. Sama hugmyndafræði, sömu vinnubrögðin og sama óhugnanlega valdapotið og undanfarin ár og áratugi. Það hefur ekkert breyst gott fólk... valdið er enn sætt.
Í óskilum
Verð í óskilum á næstunni... Þakka bloggvinum og öðrum snillingum góðar stundir við skjáinn... að sinni!
Hugdetta
Þegar ég var krakki, man ég eftir að amma gaf afa einu sinni bók í jólagjöf sem hét "Ætlar hann aldrei að þagna karlskrattinn?"
Kýst þú með hausnum eða hjartanu?
Í dag vona ég að flestir Íslendingar hafi kynnt sér vel og vandlega stefnu allra flokka í öllum málaflokkum og að skynsemin muni bera tilfinningarnar ofurliði.
Framsóknarmenn vilja róttækar aðgerðir í efnahagsmálum til að koma í veg fyrir kerfishrun og halda okkur á floti í gegnum verstu brimskaflana.
Á sama tíma viljum við hefja aðildarviðræður við ESB á grundvelli samningsmarkmiða til að tryggja stöðugleika þegar til lengri tíma er litið.
Við viljum verja þau störf sem þegar eru til og skapa ný fjölbreytt atvinnutækifæri. Nú er ekki tími til að velta því fyrir sér hvort við eigum að nýta náttúruauðlindirnar til þess.
Við viljum verja velferðarkerfið og þau störf sem þar eru unnin. Uppsagnir hjá hinu opinbera eru ávísun á reikning sem kemur bakdyramegin inn í ríkiskassann í formi atvinnuleysisbóta.
Við viljum ekki skattahækkanir því flestir eiga nóg með verðbólgu, verðbætur, afborganir og framfærslu fjölskyldunnar. Þangað er ekkert að sækja.
Nýtt hagkerfi?
Hef átt marga góða fundi með góðu fólki á vinnustöðum vítt og breitt um SV kjördæmið. Niðurstaða mín þennan daginn er sú að fæstir vilja láta hneppa sig í skuldafangelsi næstu 3-5 árin með tilsjónarmann á öxlinni til að "fá" að skulda "eingöngu" 110% í húsnæðinu sínu að þeim tíma liðnum.
Slíkt fólk telur sér best borgið með því að færa sig í neðanjarðarhagkerfi, vinna svart, borga svart og það telur sig ekki skulda samfélaginu neitt. Þar af leiðandi eykst hættan á að tekjur verði ekki gefnar upp og hvað ætlar vinstri stjórnin sem nú vofir yfir að skattleggja?
Umhverfið sem stjórnmálamenn áttu að passa upp á og þeir voru ráðnir til, brást þeim. Það gerði áætlanir sínar reistar á upplýsingum sem lágu fyrir þá. Ekki upplýsingum sem haldið var leyndum fyrir þeim.
Ég vona að fólk sjái að ríkisstjórn Samfylkingar og VG mun ekki leysa vandann. Til þess þarf aðra hugmyndafræði, nýtt fólk, djarfari lausnir.
Hvaða hvaða...
Svona er nú hægt að snúa út úr orðum manns. Nú eiga framsóknarmenn að vilja skera niður í samgöngumálum þegar ég lagði það nú upp að það þyrfti að skrifa nýja samgönguáætlun í hvelli eftir kosningar til að drífa af stað mannaflsfrekar framkvæmdir því samgönguráðherra er þessa dagana að tína út úr henni ýmislegt sem kannski... hentar?
Held að form þessa þáttar skili almenningi litlum sem engum svörum... eða hvað? Kannski öðrum svörum en lagt er upp með í upphafi?