Feed items
Tilkynning um framboð
Ég, Bryndís Gunnlaugsdóttir, hef ákveðið að sækjast eftir 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.
Hávær krafa er nú uppi um endurnýjun innan stjórnmálaflokka sem og á Alþingi. Ég tel mikilvægt að í þessari endurnýjun muni ungt fólk eiga sína fulltrúa á þingi. Það er fólk á mínum aldri, sem er að koma úr námi og stofna fjölskyldur sem á sérstaklega erfitt nú um mundir. Himinhá greiðslubyrði húsnæðislána og námslána ásamt því að hugsa um börn reynir mjög á fjárhag ungs fólks. Mikilvægt er að hlúa sérstaklega að ungu fólki svo það flýi ekki ástandið og fari úr landi. Þetta er sú kynslóð sem kemur til með að þurfa byggja þjóðfélagið upp á ný.
Skilyrðin óbreytt frá upphafi
Framsóknarmenn lögðu fram tilboð þann 21. Janúar síðastliðinn (sjá hér) um að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna vantrausti. Skilyrðin voru þau sömu þann dag og þau eru í dag. Framsókn gaf aldrei út óútfylltan tékka um að minnihlutastjórn yrði varin skilyrðalaust.
Þessi skilyrði komu fram í tilkynningunni, komu fram í viðræðum við flokkana og komu fram þegar Sigmundur ræddi við forsetann. Ekkert hefur breyst í dag. Framsóknarflokkurinn bað um nánari útlistun á nokkrum atriðum er tengdust þessum skilyrðum og eru flokkarnir nú að vinna saman svo hægt verða að mynda ríkisstjórn um helgina.
Verkefni tilvonandi ríkisstjórnar er gífurlegt og nauðsynlegt að vanda til verka og vera viss um að allir flokkar séu sammála um leiðina að markmiðinu. Það er betra að ræða þessi mál núna og fara sterk inn í þetta erfiða verkefni sem bíður ríkisstjórninni næstu mánuði frekar en að flýta sér að mynda ríkisstjórn sem veit ekki hvernig hún ætlar að bregðast við vandanum.
Hugmynd Framsóknarmanna
Þetta er einmitt hugmynd sem lögð var fram á flokksþingi Framsóknarmanna síðustu helgi og var samþykkt. Að það ætti að setja á stofn stjórnlagaþing.
Fyrr í dag bauð Framsókn Samfylkingunni og VG að verja stjórn þeirra vantrausti ef stjórnin myndi samþykkja kosningar í vor og myndun stjórnlagaþings.
Þessu mun flokkurinn berjast fyrir áfram - Stjórnlagaþing sem fyrst.
Hægt er að lesa betur um stjórnlagaályktunina hér.
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Formaður Sambands ungra framsóknarmanna
Byltingin lifir áfram
Þessar tillögur Framsóknarflokksins felur í sér að færa þjóðinni völdin - þar sem valdið á heima.
Í fyrsta lagi að það verði kosið í seinasta lagi þann 25.apríl (það eru 3 mánuðir og 4 dagar þangað til). Þannig getur þjóðinn ákveðið hverjir stjórna landinu.
Í öðru lagi að það verði sett á stofn stjórnlagaþing sem myndi hafa það verkefni að semja nýja stjórnarskrá. Á þessu stjórnlagaþingi eiga engir þingmenn, fyrrverandi né núverandi sæti. Nánari lýsingu á stjórnlagaþinginu er hægt að sjá hér. Þannig er það í höndum þjóðarinnar að ákveða hvernig stjórnskipun ríkir á Íslandi en ekki stjórnmálaflokka.
Tímaramminn gæti verið nokkurn veginn svona:
(fyrst er breytt stjórnarskránni svo heimilt sé að setja stjórnlagaþing sem leggji stjórnarskránna fyrir þjóðinna til að kjósa um)
25.apríl 2009 = Alþingiskosningar
1.maí 2009 = Alþingi samþykkir stjórnarskrárbreytingar er heimila stjórnlagaþing
1.ágúst 2009= Kosið til stjórnlagaþings
Maí 2010 = kosið til sveitarstjórnar auk þess sem kosið er um stjórnarskrá Ísland er stjórnlagaþing samdi.
Lifi byltingin
Varaformaður SUF, Eggert Sólberg Jónsson, skrifaði góða grein á SUF.is í dag sem lísir vel tilfinningum mínum til helgarinnar. Helgar þar sem fjöldi ungs fólks í Framsókn hefur undirbúið vel og tók þátt í af miklum krafti. Sigmundur kom sá og sigraði. En það var unga fólkið sem lagði grunninn með því að krefjast breytinga á miðstjórnarfundinum í nóvember, lagði grunninn að því sem gerðist um helgina. Stórkostlegir hlutir áttu sér stað en þetta er aðeins upphafið að einhverju ógleymanlegu.
Greinina má lesa hér fyrir neðan í heild sinni:
--------------------
Frábær tillaga
Eins og ég sagði fyrr í dag þá finnst mér þetta frábær tillaga.
Stjórnlagaþing
Ég verð að viðurkenna að ég er miklu meira spennt fyrir hugmyndum flokksins um stjórnlagaþing.
Rétt skal vera rétt
Rétt er að það var hitafundur hjá Framsókn í Reykjavík í kvöld - en er ekki eðlilegt að stjórnmálafundir séu heitir?
Góðir hlutir gerast hægt
Núna eru 7 mánuðir frá því að ég var kosinn formaður SUF.
Leiðinda stuðningsmaðurinn og nafnlausar árásir
Það er tiltölulega stutt síðan ég ákvað að hella mér út í pólitík af fullum krafti og verð ég að viðurkenna að sú ákvörðun var ekki auðveld.