Feed items

Helgargáta smáfuglanna

Jóhanna er ánægð með árangurinn.

Smáfuglarnir fengu spurningu í dag sem þeir gátu ekki svarað í fljótu bragði:

Hvað hefur vinstristjórnin oft kynnt áætlanir um stórfellda uppbyggingu og sókn í atvinnumálum frá því að hún tók við? Hversu mikið af því hefur staðist?

Svari nú hver sem vill.

Störfum í sjávarútvegi eytt til að "skapa önnur störf"

Jóhanna og Steingrímur hafa þá nýju stefnu að fækka störfum. Þau fáu störf sem eftir verða eru verða svo hjá ríkinu.

Smáfuglarnir sjá að vinstristjórnin er hægt og rólega að viðurkenna það sem býr að baki aðförinni á sjávarútvegi, þ.e.a.s. að eyða störfum í hagkvæmum sjávarútvegsfyrirtækjum þar sem þúsundir vinna og skapa ný störf á vegum ríkisins á hinum og þessum sviðum og skammta þar úr hnefa.

Á blaðamannafundi vinstristjórnarinnar í dag kom fram í endursögn Mbl:

Ný stefna ríkisstjórnarinnar í fjárfestingum og atvinnumálum verður einkum fjármögnuð með fyrirhuguðum auknum veiðigjöldum á sjávarútvegsfyrirtæki. Þetta kom fram á kynningarfundi á stefnunni í Iðnó.

Það liggur þá fyrir að þeir sem byggt hafa upp fyrirtæki sín í þjónustu við sjávarútveg geta pakkað saman og skráð sig atvinnulausa. Svo fljótlega eftir skráninguna geta þeir búist við því að vera boðið á námskeið fyrir atvinnulausa eða fengið tímabundið starf við „átaksverkefni“ hins opinbera í gatnagerð eða endurvinnslu á rusli.

Íslendingum bannað að kaupa í Facebook

Smáfuglarnir hafa fylgst með málum í Bandaríkjunum í dag þegar viðskipti hefjast með hlutabréf í Facebook Inc. sem rekur samnefndan vef. Búist er við því að fyrirtækið verði metið á 104 milljarða bandaríkjadala og þar með verðmætasta fyrirtæki Bandaríkjanna við skráningu.

FacebookMark Zuckerberg stofnaði Facebook. Hann þarf ekki að óttast ágengd íslenskra fjárfesta.

Ísland er eina landið í vesturheimi þar sem vinstristjórn bannar einstaklingum að fjárfesta í erlendum hlutabréfum. Slík viðskipti eru bönnuð með lögum eins og segir í 5 gr. reglna um gjaldeyrismál:

Fjárfesting í verðbréfum, hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, peningamark-aðsskjölum eða öðrum framseljanlegum fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri er óheimil.

Íslendingar geta því ekki nýtt góð tækifæri erlendis eða tekið þátt í þeim fyrirtækjum sem þeir tengjast utan landsins. Íslendingar geta ekki tekið þátt í frumskráningu Facebook frekar en nokkru öðru erlendu fyrirtæki.

345 dagar eftir í starfi hjá Páli Magnússyni

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Páll Magnússon, hinn máttlausi útvarpsstjóri, muni taka sér fyrir hendur þegar honum verður sagt upp störfum eftir næstu kosningar.

Lax-áPáll Magnússon mun brátt nægan tima í laxveiðina.

Allt bendir til þess Ísland losni undan oki vinstristjórnar eftir næstu kosningar og þá verði tekið til hendinni við að skikka opinberar stofnanir til þess að fylgja settum lögum. Engum dylst til dæmis að RÚV og ýmsir starfsmenn þess brjóti skýrar hlutleysisreglur útvarpslaga hvað eftir annað án þess að útvarpsstjóri geri nokkuð í málinu.

Ný stjórn getur ekki boðið landsmönnum upp á að áfram sitji í Efstaleiti Páll Magnússon sem gekk erinda vinstristjórnarinnar í takt við Óðinn Jónsson og Egil Helgason. Ný stjórn getur ekki boðið ungu og áhugasömu fjölmiðlafólki upp á að Páll ráði t.d. Egill Helgason hvað eftir annað án auglýsingar. Svona gætu smáfuglarnir talið upp dæmi lengi en láta þó staðar numið.

Samkvæmt teljara á forsíðu AMX eru 345 dagar í næstu kosningar.
Páll Magnússon getur fylgst með teljaranum.

Er fólkið í ESB auglýsingunum ekki misnotað?

Smáfuglarnir hafa undanfarna daga séð hvern vinstrimanninn á fætur öðrum kalla misnotkun að þeim sem komið hafa fram í auglýsingum fyrirtækja og sveitarfélaga um land allt gegn aðför vinstristjórnarinnar að sjávarútveg. Segja þeir jafnan að verið sé að misnota fólkið sem fram kemur og að þetta séu auglýsingar af verstu sort.

RithöfundasambandiðIllugi Jökulsson nær ekki upp í nef sér vegna auglýsinga sjávarbyggða. Sami Illugi hefur aldrie mótmælt ESB auglýsingum.

Eru þetta ekki sömu menn og hafa birt hér í öllum miðlum ESB auglýsingar þar sem óteljandi einstaklingar og fyrirtæki reyna að sannfæra samlanda sína um að grasið sé alltaf grænt í Evrópusambandinu sem um þessar mundir er við það að liðast í sundur?

Hvað með það fólk? Er það ekki fólk sem lætur undan þrýstingi „stórra aðila“ og „getur ekki annað en komið fram“ því að „stór aðili“ kostar birtinguna? Hræsnin er algjör hjá íslenskum vinstrimönnum sem tala niður til þess fólks sem starfar í sjávarútvegi um leið og þeir senda næstu heimagerðu ESB auglýsinguna upp í Efstaleiti til birtingar.

Samkvæmir eru þeir sjálfum sér!

Enginn hlekkjaði sig við tæki á Úlfarsfelli

SIUmhverfið skiptir kaffihúsaspekingana í 101 bara máli ef það er nógu langt frá Reykjavík.

Hræsni umhverfisverndarsinna er oft með ólíkindum. Þannig sagði enginn neitt þegar stórvirkar vinnuvélar lögðu af stað upp mosavaxið Úlfarsfellið til að grafa þar skurð, tæta upp mosa og að endingu reisa 40m hátt mastur á toppi fellsins.

Ef hins vegar framkvæmdir hefjast á landsbyggðinni af einhverju tagi eru allir mættir með skilti, borða, handjárn og tjaldbúðir. Þar má ekkert krækiber kremjast undan dekki án þess að Árni Finnsson felli tár.

Hitt er svo annað mál að auðvitað á að fagna öllum framkvæmdum til framfara sem gerðar eru í sátt við umhverfið og þá sem það byggja. Og auðvitað á aldrei að hluta á Árna Finnsson sem bað erlent stórveldi um að beita sér gegn Íslandi.

Engir atvinnuleytendur á Suðurnesjum?

Smáfuglarnir hafa oft látið orðið „atvinnuleitendur“ angra sig en með því er verið að gera atvinnuleysi þægilegra fyrir þá sem ekki hafa vinnu. Letin er gerð þægilegri og afsakanlegri. Er ekki sá sem er atvinnuleitandi samkvæmt orðsins hljóðan að vera að leita sér að vinnu?

MorgunblaðiðEfnahagsmál sökkva stöðugt dýpra undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Bætur orðnar slíkar að fúlsað er við störfum.

Ekki virðist raunin vera sú á Suðurnesjum þar sem fimm sóttu um 11 auglýstar stöður á saumastofu Víkurprjóns. Engrar menntunar eða reynslu var krafist þó það væri ekki verra. Eigandi félagsins sagði við Víkurfréttir:

„Mikið atvinnuleysi er á svæðinu og þá sérstaklega á meðal kvenna. Viðbrögðin hafa valdið okkur gríðarlegum vonbrigðum. Ég átti von á því að um 30 manns myndu sækja um, maður spyr sig því hreinlega hvað sé eiginlega í gangi á Suðurnesjum, [...] Samkvæmt þessu er ekki að sjá að það sé mikið atvinnuleysi þarna,“ hafa Víkurfréttir eftir Ágústi.

Heyrðu heimsmarkaðir ekki í Össuri og Oddnýju?

AlþingiEvran lækkar og lækkar gagnvart pundi þrátt fyrir skýringar Oddnýjar. Hverju sætir?

Smáfuglarnir sjá að evran hefur ekki verið veikari gagnvart pundi í bráðum fjögur ár. Engu líkara er en að orð Össurar Skarphéðinssonar og Oddnýjar Harðardóttur um skýringar á vanda evrusvæðisins hafi ekki náð eyrum heimsins.

Þetta er furðulegt og hlítur að vera misskilningur. Hvernig geta menn haldið áfram að selja evrur fyrir pund þegar þeir vita að Össur og Oddný hafa gefið fullgildar skýringar á djúpstæðum vanda evrusvæðisins sem ekki sér fyrir endan á?

Vita þessir sömu fjárfestar ekki að 20% stjórnin á Íslandi er á leiðinni inn í sambandið til að taka upp hinn „stöðuga“ gjaldmiðil evruna? Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort ekki þurfi að senda uppeldisfræðinginn Oddnýju Harðardóttur, sem nú er í starfskynningu í fjármálaráðuneytinu, upp á meginlandið og fara aðeins yfir málið?

RÚV þagði um ásakanir forseta í sinn garð

Smáfuglarnir lesa í Vefþjóðviljanum athyglisverða staðreynd. Fréttastofa RÚV nefndi það ekki einu orði að forseti Íslands hafi borið fréttastofuna þungum sökum þess efnis að fréttastofan gangi erinda tiltekins frambjóðanda. Vefþjóðviljinn segir:

World Economic ForumÓlafur Ragnar Grímsson ber fréttastofu RÚV þungum sökum. Fréttastofan nefndi málið ekki í fréttum sínum.

Þessar ásakanir eru alvarlegar og sérstaklega fréttnæmt að sá, sem ber þær fram á hendur fréttastofu Ríkisútvarpsins, sé forseti Íslands. Það er ekki á hverjum degi sem þjóðhöfðingi segir fréttamenn ríkisfréttastofunnar misnota aðstöðu sína til að hafa áhrif á niðurstöður kosninga.

En einum fjölmiðli þótti þetta mál ekki fréttnæmt. Ríkisútvarpið sendi út fjölmarga fréttatíma í útvarpi í gær auk sjónvarpsfrétta klukkan sjö. Í engum af þessum fréttatímum var áheyreyndum sagt eitt orð um að forseti Íslands hefði borið fréttastofu Ríkisútvarpsins þungum sökum. Ekki eitt orð.

Þóra Arnórsdóttir var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn

Smáfuglarnir sjá að Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi Samfylkingarinnar, reynir nú að þvo af sér fortíð sína í vinstriflokkunum. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að gamall listi yfir kennara í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar fór á flakk á netinu og Þóra neitaði að hafa kennt í skólanum. Ekki voru netverjar með frekari sönnunargögn svo málið féll sumpart niður.

Vilhjálmur Þorsteinsson og Þóra Arnórsdóttir í Kastljósi voru vopnabræður í framboði fyrir Alþýðuflokkinn 1995.

En hafa netverjar gleymt því að Þóra var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn árið 1995? Á meðfylgjandi mynd má sjá að með henni í framboði það árið var til dæmis helsti fjárhaldsmaður Samfylkingarinnar og gjaldkeri, Vilhjálmur Þorsteinsson, ásamt öðrum innstu koppum í búri Samfylkingarinnar.

Þeir sem þekkja störf í stjórnmálaflokkum vita að fólk fer ekki fyrirvaralaust í framboð fyrir flokk og hættir svo störfum fyrir flokkinn jafn harðan eftir kosningar. Pólítísk staðsetning Þóru er því öllum ljós sem og hvað varð um Alþýðuflokkinn.