Feed items
Orkuveita Reykjavíkur – borgarstjórn 07.09.2010
Orkuveita Reykjavíkur hefur verið pólítískt bitbein um árabil. Sumir vilja meina að það sé vegna þess að stjórnmálafólk sé svo ómerkilegt að það sé tilbúið til að ógna almannaheill og fyrirtækinu til að berja á pólítískum andstæðingum. Því er ég ekki sammála. Auðvitað má vel vera að í einhverjum tilfellum hafi einhverjir kjörnir fulltrúar lagst [...]
Um aðgerðaráætlun – borgarstjórn 15. júní 2010
Við borgarfulltrúar erum sammála um margt. Kannski ekki allt – en margt. Einróma ákvarðanir þykja sjaldan fréttnæmar – heldur frekar hitt, þegar við tökumst á um markmið eða leiðir. Þá gerist það stundum að almenningur skipar sér í fylkingar með eða á móti – en oft verður fólk bara fúlt og skilur ekki af hverju [...]
Lítum okkur nær
Áherslur Fjölskylduhjálpar Íslands hafa verið harðlega gagnrýndar í fjölmiðlum undanfarna daga, enda virðast skjólstæðingar ekki sitja við sama borð. Athæfið hefur eðlilega verið gagnrýnt harðlega af félagsmálaráðherra, formönnum velferðar- og mannréttindaráðs og öðrum kjörnum fulltrúum. Framkvæmdastýra Fjölskylduhjálpar hefur nú viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða, en segir þó að sárt sé að horfa [...]
Hringtorg
Það vakti nokkra kátínu á borgarstjórnarfundi í dag þegar ræða mín um frístundir barna fór að snúast um hringtorg. Eðlilega – ég geri mér grein fyrir að langt er seilst – en þó er nauðsynlegt að skoða stóru myndina og ræða það hvar og hvenær sjónarmið og hagsmunir barna eru tekin inn í pólítíska umræðu [...]
Frá mínum sjónarhóli
Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar undanfarinn sólarhring um framkvæmd forvals Vinstri grænna í Reykjavík vil ég koma mínum sjónarmiðum á framfæri. Það er í raun ekki margt sem ég hef við úrskurð kjörstjórnar að bæta eða yfirlýsingu sem síðar var send út. Þar kemur fram að forvalið fór fram í samræmi við settar reglur og með sama [...]
Vinstri grænt vor í vændum
Þá er forvali Vinstri grænna í Reykjavík lokið. Þar kom berlega í ljós að Vinstri græn hafa mikinn hug á að vinna sveitarstjórnarkosningarnar í vor, enda var þátttakan afar góð. Ég er glöð og þakklát með það traust sem félagar mínir sýndu mér og staðráðin í að standa undir því á komandi kjörtímabili. Að sama [...]
Forval á morgun
Á morgun munum við Vinstri græn í Reykjavík velja fólk í sex efstu sæti framboðslistans til borgarstjórnarkosninganna í vor. Eftir u.þ.b. sólarhring verður ljóst hver kemur til með að leiða listann. Þar sem ég ligg nú lasin í rúminu, spennt yfir því sem verða vill, hef ég verið að hugsa um og rifja upp helstu [...]
Réttlátari Reykjavík
Því hefur lengi verið haldið fram að á sveitarstjórnarstiginu séu kjörnir fulltrúar yfirleitt sammála, enda sé verið að fjalla um svo sjálfsagða grunnþjónustu að fátt skilji áherslur stjórnmálaflokkanna að. Það má vera að kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum séu oftar sammála en kjörnir fulltrúar á Alþingi, ég hef ekki kannað það sérstaklega, en það skiptir engu [...]
Breytingar til hins betra
Fyrir nokkrum dögum bloggaði ég um alla þá vinnu sem þarf að eiga sér stað til að fyrsta vinstrisinnaða ríkisstjórn sögunnar geti komið áherslum sínum á framfæri. Sú færsla fjallaði um eina afmarkaða stofnun í einu afmörkuðu ráðuneyti – RÚV ohf. Ákvörðun umhverfisráðherra um að staðfesta ekki skipulag fyrir virkjanir í neðri Þjórsá er annað [...]
Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar
Ég hef svo sem ekki farið varhluta af þeim áhrifum sem hægt er að hafa með þátttöku í sveitarstjórnum, en gerði mér ekki grein fyrir því hversu lengi þau vara fyrr en fyrir stuttu. Áhrifa Árna Þórs Sigurðssonar gætir enn í Reykjavík, enda var hjólreiðaáætlun sem hann mælti fyrir á sínum síðasta borgarstjórnarfundi haustið 2007 samþykkt [...]