Feed items

Kjánalegur Landsdómur

Alþingi er vinnustaður eins og allir aðrir vinnustaðir. Þar vinna þingmennirnir okkar og fullt af öðru fólki. Þetta fólk borðar saman í hádeginu, fer saman í vinnuferð, mætir á árshátíð vinnustaðarins og vinnur stundum vel saman að lausn mála. Þótt að á alþingi sé fólk sem hefur ólíka polítíska sýn og er ósammála um grundvallaratiði þá er þetta samt vinnustaður. Maður kynnist vinnufélögum sínum persónulega, sumum betur en öðrum og jafnvel getur myndast vinátta a.m.k. kunningskapur á milli fólks jafnvel þótt að afstaða til evrópusambandsins sé heldur ólík.

Á alþingi vinnur líka fólk sem tengist flokksböndum. Það hefur þekktst í mörg ár í gegnum flokkinn og eytt ómældum tíma saman í flokksstarfinu, hefur hitt fjölskyldu hvors annars osfv.

Það er ekkert ólíklegt ef þú starfar á alþingi að þar starfi með þér bestu vinir þínir, góðir kunningjar og jafnvel miklir óvinir þínir.

Kirkjunnar menn

Eftir því sem kirkjunnar menn tjá sig oftar og meira þessa dagana þeim mun meiri hrollur fer um mig. Það er nánast algjört línulegt samband þar á milli. Afstaða til trúnaðar og barnavendarlaga, fagráð um kynferðislegt ofbeldi og viðbrögð kirkjunnar manna við vafasamri og ógeðslegri hegðun innvígðra hafa því miður vakið athygli mína.

Bloggheimar

Ég byrjaði að blogga 2002 að mig minnir. Þegar ég byrjaði að blogga voru afskaplega fáir sem blogguðu og það voru ekki til nein íslensk bloggkerfi. Blogspot var málið. Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að blogga var einföld. Mér drepleiddist í próflestri upp á Þjóðarbókhlöðu svo ég fór að gera eitthvað annað en að undirbúa mig undir prófið. Efni bloggsins var eingöngu ætlað mér og vinum mínum. Einkahómorinn, sem var frekar slæmur, var allsráðandi. Mér datt ekki í hug að nokkur annar en þeir sem þekktu mig persónulega myndu lesa bullið í mér og það var sennilega ekki þannig. Árin liðu og ég hélt mig alltaf við það að blogga. Ég reyndar tók pásur en aldrei mjög langar. Eftir að ég fór að blogga á moggablogginu fór bloggið mitt að breytast smátt og smátt. Allt í einu fór fullt af fólki að lesa bloggið og hafa skoðanir á því sem ég var að segja. Ósjálfrátt fór ég að vanda betur til verka, þ.e. ég hætti að blogga um mitt persónulega líf og færði mig frekar út í það að leggja eitthvað til málana í dægurmálaumræðunni. Kommentum fjölgaði og í réttu hlutfalli við fjölgunina fjölgaði fáranlegum kommentum með yfirdrulli og vitleysu. Ég t.d.

47% skattur

Hér að neðan eru lauslegir útreikingar á hvað 47% skattur á tekjur yfir 500 þúsund þýðir. Ef einhver getur reiknað þetta betur út þá bara endilega að dúndra því upp.

Meikar þetta einhvern sens! Er eðlilegt að það sé hagstætt fyrir fólk að vinna ekki yfirvinnu og jafnvel biðja um launalækkun?
Afsakið á meðan ég æli!

Tekjur Skattur Ráðstöfunartekjur
400.000 149.200 277.800
410.000 152.930 284.070
420.000 156.660 290.340
430.000 160.390 296.610
440.000 164.120 302.880
450.000 167.850 309.150
460.000 171.580 315.420
470.000 175.310 321.690
480.000 179.040 327.960
490.000 182.770 334.230
500.000 236.500 290.500
510.000 241.230 295.770
520.000 245.960 301.040
530.000 250.690 306.310
540.000 255.420 311.580
550.000 260.150 316.850
560.000 264.880 322.120
570.000 269.610 327.390
580.000 274.340 332.660
590.000 279.070 337.930

Skattþrep 1 37,3%
Skattþrep 2 47,3%
Persónuafsl. 27.000 kr

Að höndla sannleikann

Ég er búin að brosa meira í dag en ég geri öllu jöfnu. Að minnsta kosti er ég búin að brosa meira út í annað. Þetta bíó í Borgarahreyfingunni er ekkert annað en grátbroslegt. Ég er búin að fylgjast með stjórnmálum frá því ég var barn. Frá því 2003 hef ég staðið nærri þeim sem vinna við það að vera þingmenn, ekki öllum reyndar en allavegana ég hef séð þetta alþingismanna - politíkusalíf frá aðeins öðru sjónarhorni en margir. Þetta sjónarhorn hef styrkt mig í trúnni. Ég er algjörlega handviss að lang lang flestir þingmenn leggja sig alla fram. Lang lang flestir eru á þingi þvi þeir vilja þjóð sinni vel. Þeir trúa því innilega að það sem þeir eru að gera - það sem þeir vilja koma í framkvæmd sé til heilla fyrir land og þjóð. Ég er líka viss um að þeir hugsi mikið frekar um fólkið heldur einhverskonar vildarvina-eitthvað. Eins ógeðslega ósammála ég er Ögmundi þá er ég viss um að hann vilji mér og öllum hinum afskaplega vel með sínum afturhalds hugmyndum. Ég er líka alveg viss um að Pétur Blöndal vilji mér og mínum löndum jafnvel og Ögmundur með sínum frjálshyggjuhugmyndum. Ég er líka sannfærð um það að það að vera alþingismaður er ekki auðvelt starf.

Hvað á erindi við almenning?

Nú er búið að setja lögbann á umfjöllun RUV á Kaupþingsgögnunum. Finnur bankastjóri segir að þetta eigi ekki erindi við almenning og er sýslumaður honum sammála. Það er þó ljóst að skuldir gamla Kaupþings koma almenningi við. Ég get ekki betur séð en að ég og þið hin munið þurfa að borga þetta helvítis bull í mörg mörg ár.

Gjaldþrota? Hvað þá?

Nokkrir sprenglærðir peningamenn hafa komið fram á allra síðustu dögum og sagt að við, þ.e. Ísland stefni í gjaldþrot. Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að það væri e.t.v. best að við myndum lýsa okkur gjaldþrota sem fyrst.

Kannski er ég alveg græn en ég bara verð að upplýsa um hversu fáfróð ég er. Hvað í ósköpunum gerist ef þjóð verður gjaldþrota? Ég veit hvað gerist ef einstaklingur verður það, amk svona sirka en ég hef ekki hugmynd um hvað gerist þegar þjóð verður gjaldþrota.

Getur einhver hjálpað mér?

Æskudraumar sem rættust ekki…. sem betur fer

Ég eins og aðrir átti æskudrauma. Ég fór að rifja þessa drauma mína upp þegar þegar Michael vinur minn dó um daginn. Michael er nefnilega samofinn minni barnæsku…. Hann og Hemmi Gunn.

Ég átti mér þann draum að….

…vera kvennkyns útgáfa og Michael Jackson. Ég vildi bara nákvæmlega eins og hann nema að því leiti að ég vildi ekki vera karl. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki.

… að Fram yrði langbesta fótboltalið á Íslandi alltaf. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki.

… að ég yrði sjoppukona þegar ég yrði stór - alltaf. Er hrikalega fegin að þessi draumur rættist ekki, með fullri virðingu fyrir sjoppukonum.

… að ef ég yrði ekki kvennkyns MJ að ég yrði hin nýja Elín Hirst. Mér þótti það svalasta starf á Íslandi að segja fréttir. Held að það sé ágætt að ég sé ekki í því hlutverki. Elín er bara fín í þessu.

… að mér yrði boðið að syngja og dansa í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki. Sennilega ekki til margir jafn hæfileikalausir söngvarar og dansarar eins og ég.

Kæra Álfheiður

Ég er ung kona. Eiginlega vil ég bara láta kalla mig stelpu. Ég er 29 ára og á því eftir að lifa vonandi í u.þ.b. 55 ár til viðbótar. Ég er að reyna að koma undir mig fótunum í lífinu. Ég skulda fullt í námslán enda var ég að hossast í háskóla í 5 ár. Ég keypti mér líka mína fyrstu íbúð á því herrans ári 2007. Ég skulda sem sagt fullt af peningum. Vegna þessa hef ég nú örlitlar áhyggjur af ástandinu. Það mun sennilega koma verr við mig en marga aðra. Ég er nefnilega á þeim aldri. Ég gerði samt ekkert rangt. Ég tók enga kjánalega ákvörðun í peningamálum. Ég svona velti fyrir því mér hvort þessi Icesave-samningur sem þú vilt endilega negla muni ekki hafa alvarlegar afleiðingar fyrr minn fjárhag, og það sem meira er, fyrir þjóðina mína sem mér þykir svo vænt um. Ég er ekkert handviss um að svo sé en mér svona sýnist það. Mér finnst allt benda til þess að þetta sé algjörlega afleitur samningur sem gamli foringinn þinn, hann Svavar, hefur gert.

Íþróttaviðburður áratugarins?

Ég ákvað að láta 5 mín í heita pottinum duga eftir æfingu í dag. Það gerist ekki oft að ég stoppi svo stutt við í pottinum í klefanum okkar. Ástæðan fyrir stuttu stoppi var oddaleikur KR og Grindavíkur. Ég bara varð að drífa mig upp í sófa og taka til við gláp. Ég var nú ekki búin að horfa lengi þegar ég var farin að öskra á sjónvarpið. Ég var að reyna að koma skilaboðum til leikmannanna. Ég reyndi t.d. nokkum sinnum að öskra á Brenton leikmann Grindavíkur - “taktu frákastið maður” Þulinir, tveir kunningjar mínir þeir Gaupi og Svali öskruðu mun minna á leikmennina inn á vellinum. Sennilega hafa þeir vitað sem var að leikmennirnir myndu lítið heyra í þeim. Þeir áttuð sig hins vegar á því að þeir gátu öskrað á áhorfendur heima í stofu. Þeir öskruðu vilt og galið á mig. Þeir sögðu mér miljón sinnum hvað þetta væri allt magnað. Ég er ekki frá því að ég hafi verið þeim sammála. Oddaleikur í úrslitum er ávalt magnaður…. ég tala nú ekki um þegar hann er eins jafn eins og þessi var.