Feed items

Landsfundur minnar fyrrverandi.

Á laugardaginn mun koma í ljós hvort að fjórflokkurinn hafi sigrað þá sem vilja breytingar. Því þeir sem vilja breytingar geta ekki komið sér saman um hvernig á að koma þessum breytingum á. Stefnan er skýr og allir sammála um hana. En, að því er virðist, er þetta hætt að snúast um breytingarnar, heldur kannski meira um fólkið sem á að koma breytingunum á.

Borgarahreyfingin er okkar eina von. Mikil er ábyrgð ykkar gott fólk. Kyngið egóunum, látið þetta ganga. Gangi ykkur sem allra best.

Er farinn vestur.

Hjartahnoð og munnur við munn

Borgarahreyfingin er klofin, í annars vegar þá sem telja að þinghópurinn eigi að  vera á einkaflippi í eigin umboði inni á þingi (fara eingöngu eftir eigin samvisku) og svo hins vegar þá sem vilja að þinghópurinn starfi með stjórn og grasrót þannig að hreyfingin sem heild fái rödd inni á alþingi. 

Byrjum á byrjuninni.

Eftir þrautalausa fundarsetu um samþykktir sem allir höfðu allt að því áráttukennda skoðun á, eins og gjarnan vill vera þegar hópur kverúlanta koma saman, gafst ég upp á að Samstaða,bandalag grasrótarhreyfinga, myndi nokkurn tímann koma einhverju framboði í gagnið. Þá hafði ég samband við Gunnar Sigurðsson félaga minn og bað hann um að hjálpa mér að koma einhverju á koppinn. Við settumst niður og ákváðum hverja við vildum á stofnfundinn og hverjir ættu að gegna hvaða stöðu. Við handvöldum fólk alls staðar að til að fá sem flestar grasrótarhreyfingar inn í þetta. Tókum vinnu lýðveldisbyltingarinnar með húð og hári, fléttuðum hugmyndum um efnahagsúrbætur frá Þór Saari og Lilju Móses inn í þetta og úr varð lítil en öflug stefnuskrá. 

Þetta er orðið gott.

Það er erfitt að horfa á barnið sitt verða að athlægi og gera sig að fífli, horfa á það breytast í það sem maður fyrirlítur. Það sem maður taldi sig vera að berjast gegn. Tímanum og alúðinni sem maður eyddi í að næra, bastarðinn. Tími sem maður eyddi frá vinum og fjölskyldu í þeirri von að barnið kæmist til manns. Manns sem ég sá fyrir mér yrði málsvari heiðarleika, réttlætis og siðferðis.

Draumurinn snérist upp í andhverfu sína og ég get ekki meir. Engin sáttavilji, engin samstarfsvilji, hugsjónin um lýðræði orðið fórnarlamb undirmálsfólks sem telur sig útvalið til að bjarga þjóðinni sinni. Flokksdindlar hrúgast um flokksfólkið, það tók ekki langan tíma. Kemur ekki maður í manns stað var svarið. Ég sat ágætis fund í kvöld í von um að finna neistann. Hann bara kom ekki.

Frjálsa hreyfingin II

Færslan hér á undan er úr stefnuyfirlýsingu Frjálsu hreyfingarinnar sem er Ítölsk grasrótarhreyfing sem starfar með það að markmiði að uppræta flokkspólitík. Mér skilst að þeir taki þátt í sveitastjórnar kosningum aðallega og eigi nokkra menn inni hér og þar um Ítalíu. Tilefni þess að ég birti þetta hér er einfaldlega að þessi texti lýsir ágætlega hvað Borgarahreyfingin lagði upp með í upphafi ferðar. Frjálsa hreyfingin hafði samband við okkur og vilja starfa með okkur, sem væri fínt ef ekki væri fyrir fasískan undirtón í niðurlagi stefnuyfirlýsingarinnar. En sá hluti stefnunnar sem ég birti hér að neðan er nokkuð góður.

Frjálsa hreyfingin

Frjálsa hreyfingin á upptök sín í harðri andstöðu við gamaldags flokkakerfi.  Þegar nóg var komið af þeirri sóun og forréttindum sem alltaf hafa fylgt elítu flokkakerfis hægri- og vinstriflokka var sú leið valin að setja á stofn nýja pólitíska hreyfingu sem ekki tengist hefðbundnum stjórnamálaflokkum og sem reynir að stuðla að raunverulegri pólitískri byltingu. Byltingu í upprunalegri merkingu þess orðs, þ.e. mikilli umbreytingu. Raunar er aðeins með raunverulegri byltingu hægt að steypa af stóli þessu kerfi sem leiðir land okkar til hnignunar. Einungis með raunverulegri ‘pólitískri andstöðu’, án nokkurra tilslakana, getur maður vonað og verður að reyna að losna við gamla flokkakerfið.                

Löglegt en siðlaust

Mikið er ég orðin leiður á möntrunni um að menn hafi ekki brotið nein lög þegar þeir eru gripnir með handlegginn upp að öxlum í kökuboxinu. Hér á ég að sjálfsögðu við viðbrögð Hreiðars Más við opinberun lánabókar Kaupthings. Það voru engin lög brotinn, voru þetta þá bara eðlileg viðskipti?

Lög eru ofmetin, lög eru tilraunir mannsins til að viðhalda einhverju réttlæti. Þess vegna er réttlæti lögum ofar, og ef menn þykjast geta falið siðleysið á bak við það að siðleysi og óréttlæti sé löglegt þá eru löginn ekki að þjóna tilgangi sínum. Þá á að semja ný lög sem fullnægja þeirri kröfu að réttlætinu sé fullnægt. Mér finnst samt hann Hreiðar ansi kaldrifjaður í þessari yfirlýsing sinni, vitandi það að vinir hans Lárus Welding, Tryggvi Þór Herbertsson, Ari Edwald og fleiri jöfrar í Viðskiptaráði Íslands eiga stóran hlut af Íslenskri viðskiptalöggjöf. Kannski er það þess vegna sem það að setja landið á hausinn sé löglegt en siðlaust.

Á Íslandi lána menn vinum sínum og sjálfum sér 1500 milljarða á ábyrgð Íslenskra skattgreiðenda. Löglegt?  -já...   Siðlaust? Maður spyr sig.

Af fólkinu fyrir fólkið

Nauðsyn þess að Íslendingar standi saman um að fá að skrifa sína eigin
stjórnarskrá er augljós.
Við urðum fyrir miklu áfalli, stjórnvöld brugðust
okkur á meðan óvandaðir einstaklingar rændu okkur. Eftir svona hrun verður að
byggja frá grunni, það þýðir ekkert að halla sér upp að eina útveggnum sem
eftir stendur, kveikja eld og reyna að hafa það kósý. Það þarf að byggja frá
grunni. Stjórnarskráin inniheldur grunnstoðir samfélagsins, ver réttindi okkar
og grunngildi. Er ráðningasamningur við stjórnvöld, setur þeim leikreglurnar
segir þeim hvernig þeim ber að starfa og hvaða gildi þeir skulu hafa að
leiðarljósi. Einhverskonar samfélagssáttmáli milli stjórnvalda og almennings.
Með því að setja stjórnlagaþing og semja nýja stjórnarskrá verðum við að taka
afstöðu til hvernig við viljum hafa okkar samfélag. Við verðum að taka afstöðu
til hvaða gildi skulu vera í hávegum höfð, hvernig viljum við hafa okkar
stjórnarskipan og hvernig viljum við dreifa valdinu til þeirra sem sækja umboð
sitt til okkar. Sú umræða sem skapast ef rétt er að staðið er nauðsynleg fyrir
okkur til að sættast við, sjálf okkur og afkomendur okkar.

Hvernig væri að fá samninginn á mannamáli?

Það er að verða deginum ljósara að alla vega Hollendingar ætla sér að standa í vegi fyrir umsókn okkar til ESB ef ekki verður gengist við þessari ríkisábyrgð í Icesave málinu. Það verður þá bara að hafa það. Hótanir hafa alltaf farið einstaklega illa í mig og geri ég yfirleitt þvert á það sem beðið er um, til að ögra og vera með leiðindi. Hvernig líst mönnum annars á að gerast 51 stjarnan í bandaríska fánanum?

Ég las samninginn fyrr í vikunni. Ég skildi ekki helminginn, ég hef lesið fjöldann allan af bókum á ensku og tala málið eins og innfæddur, þannig að það var ekki vandamálið. Vandamálið var að hann er ekki á ensku, hann er á einhverju lagamáli sem aðeins lögfræðingar skilja. Hvernig er komið fyrir okkur eiginlega? Á miðöldum voru prestar að túlka orð guðs og kóngsins ofan í lýðinn og settu þeim lífsreglurnar. Þá kunni almenningur ekki að lesa og var það vel því að þá var lýðurinn háður klerkastéttinni. Nú kunna allir að lesa, þá er bara fundið eitthvað nýtt tungumál sem almenningur hefur takmarkaðan aðgang að til að viðhalda klerkastéttinni nú kalla þeir sig bara lögfræðingar.

Tilskipanir ESB

Úff, svo það sé á hreinu þá er ég Evrópusinni og vil gjarnan sjá hvað sambandið hefur upp að bjóða. Ég trúi því ekki að, eins og margur andstæðingurinn heldur fram, að þeir muni taka upp herskyldu og áður en við vitum af verða ungu mennirnir okkar sendir í stríð. Almenningur mun ekki sætta sig við svoleiðis, við erum fleiri en þeir. Það eru margar skrítnar sögur þarna úti um hvað aðild að sambandinu inniber. Ein sú besta angar af slepjulegri tilfinningasemi og hljómar eitthvað á þessa leið; Þjóðverjar ollu dauða hundruða þúsunda í seinna stríði, ég vil ekki vera í samstarfi við svoleiðis fólk. Þessu er náttúrulega ekki hægt að svara á neinu vitrænu plani.

„Lausn Icesave-deilunnar myndi flýta fyrir umsóknarferli Íslands í Evrópusambandið," segir Verhagen. Það myndi sýna það og sanna að Íslendingar taki tilskipanir ESB alvarlega.