Feed items
Forsetaframboð
Nokkrir sem hafa verið orðaðir við framboð til forseta í sumar hafa tekið því vel þegar fjölmiðlar byrja að hringja.
Þetta eru auðvitað mikil pr-mistök – ef þú raunverulega ætlar þér að ná kjöri sem forseti.
Með því skapast offramboð af þér á fyrsta degi.
Því meirihluti þjóðarinnar á enn eftir að heyra og venjast hugmyndinni um þig á Bessastöðum, þegar hún er farin að lesa um áhuga þinn á embættinu.
—–
Að sama skapi er það nær örugg leið til að ná forystu á keppinauta í forsetakjöri, að neita að gefa kost á þér og neita að ræða málið við nokkurn fjölmiðil.
Helst máttu ekki gefa þig fyrr en búið er að ræða kosti þess að fá þig framboð í margar vikur og eftir að þúsundir eða tugþúsundir manna hafa skorað á þig að endurskoða hug þinn.
—–
Íslendingar töldu að Ólafur Ragnar Grímsson hefði í nýársávarpi sínu lýst því yfir að hann sæktist ekki eftir endurkjöri.
En nú bendir ýmislegt til þess að Ólafur Ragnar hafi í raun með því verið að hefja kosningabaráttu sína.
—–
Þögn hans við fjölmiðla, um hvort endurkjör komi til greina, samræmist algerlega þessari kenningu.
Vel gert Ólafur Ragnar
Það eru ýmsar kenningar á lofti um þá ákvörðun forsetans að óska ekki eftir fimmta kjörtímabilinu
En kannski er enginn ástæða til þess að taka af honum það sem hann á – að hafa þekkt sinn vitjunartíma.
Með þessari ákvörðun þá held ég að arfleifð Ólafs Ragnars gæti á heildina litið orðið nokkuð góð.
Stjórnmálamennirnir vandamálið?
Mælingar sýna að traust á stjórnmálamönnum hefur minnkað og það á sér sínar skýringar.
En eitt af því sem við þurfum að gæta okkur á er að tala stjórnmálin ekki svo mikið niður að enginn með sjálfsvirðingu geti hugsað sér að starfa sem stjórnmálamaður.
Því við þurfum stjórnmálamenn. Þeir eru bráðnauðsynlegir.
Ekki er heldur betra að þeir fáu sem fari í framboð sjái sér þann kost vænstan að úthúða öðrum stjórnmálamönnum og að allt fyllist af ekki-stjórmálamönnum sem keppist við að sverja allt af sér sem fylgir því að vera stjórnmálamaður.
—–
Ástandið er orðið svona í Bandaríkjunum núna og þessi nýjasta kosningaauglýsing Rick Perrys í forkosningum repúblíkana er dæmi um hvers konar öngstræti þeir eru komnir út í í þessari tegund popúlisma.
Viðskiptafréttir
Þrjár fréttir úr íslensku viðskiptalífi stóðu upp úr í vikunni (og enginn þeirra er um skráningu Haga)
—–
Salan á íslenska snjóbréttafatnaðarframleiðandanum Nikita til Amer Sports (Atomic, Wilson, Salomon) er frábær frétt.
Það hefur vantað að fleiri íslensk sprotafyrirtæki sem notið hafa stuðnings framtaksfjárfesta séu seld.
Núna höfum við tvö nýleg dæmi í Nikita og Latabæ.
—–
Önnur frétt um að íslenskir rekstraraðilar fái það hlutverk að opna og reka IKEA-verslanir í Eystrarsaltsríkjunum var athyglisverð.
Taka verður með í reikninginn að þetta er í bakgarðinum hjá Svíþjóð (þaðan sem IKEA kemur) og Svíar eru ekki alls ókunnir þessum löndum sjálfir.
Það er því ansi merkilegt að þeir telji íslensku sérleyfishafana best til þess fallna til að annast útrás húsgagnarisans í Lettlandi, Litháen og Eistlandi.
Ný rappstjarna fædd?
Sé líka að hann ætlar að dreifa plötunni sinni frítt. Sniðugur.
Tími Jóhönnu
„Minn tími mun koma“ eru ein frægustu ummæli íslenskrar stjórnmálasögu.
Þau féllu í pontu á flokksþingi Alþýðuflokksins árið 1994 eftir að Jóhanna Sigurðardóttir hafði tapað í formannskjöri gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni.
Öllum á óvörum hins vegar reyndist Jóhanna sannspá og tími hennar kom.
—
Á örlagastundu þurftum við traustan og heiðarlegan forystumann og Jóhanna svaraði kallinu.
Að vísu var hún fyrst eitthvað treg til, en það lögðu margir sín lóð á vogarskálirnar og náðu að sannfæra hana .
En hvenær verður tími Jóhönnu liðinn?
—
Þó að Jóhanna hafi marga kosti sem stjórnmálamaður þá hefur hún líka galla.
Galla sem glittir æ meira í eftir því sem tiltektin klárast og þörfin fyrir virka forystu í uppbyggingunni verður brýnni.
Af tillitsemi við Jóhönnu hefur þó ekki mikið verið á þetta minnst.
„Við báðum hana um að taka þetta að sér“, „hún verður að fá að velja hvenær hún hættir“ segir fólk.
—
En Jóhanna þarf að fara að segja okkur hvað hún ætlast fyrir. Ætlar hún að hætta fyrir næsta kjörtímabil eða ekki?
Varaformannsefni Hönnu Birnu
Hanna Birna Kristjánsdóttir hlýtur að gefa kost á sér til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Úr því sem komið er þá yrði það stórskaðlegt fyrir hana ef hún hrykki frá núna.
—–
Hún myndi líka veikjast við að gefa aðeins kost á sér sem varaformaður.
Framboð til formanns nú er eina leiðin fyrir Hönnu Birnu að sýna flokksmönnum sínum að hún sé dugandi leiðtogaefni.
Jafnvel þó svo færi að Hanna Birna tapaði naumlega í formannskosningu fyrir Bjarna Benediktssyni þá hefði hún styrkt stöðu sína sem “hinn leiðtoginn” í flokknum.
Hún gæti jafnvel tekið varaformannsstólinn mótþróalaust beint í kjölfarið.
—–
Hanna Birna hefur fengið mikinn meðbyr í skoðanakönnunum en eins og allir vita þá geta vindar breyst snögglega í stjórnmálum.
Þess vegna bíður hún eins lengi með að tilkynna framboð sitt eins og hún getur.
Mín ágiskun er að hún tilkynni 7-10 dögum fyrir upphaf landsfundarins.
—
En yfirvofandi framboð Hönnu Birnu hefur fleira í för með sér.
Skvettum vatni á eldinn
Afhverju er talad um “björgunaradgerdir” fyrir fjarmalakerfid eins og um náttúruhamfarir væri ad ræda.
Vandamalin eru afleidingar af gjördum einstaklinga og adgerdirnar ættu ad beinast ad thvi ad stoppa þá af, en ekki bara bregdast vid afleidingunum af leik þeirra með eldspýturnar.
Samfylkingin
Það hefur komið fram, að það er ákveðið millibilsástand í Samfylkingunni og ekki útlit fyrir að kosið verði milli fólks í æðstu embætti á landsfundinum um helgina.
Það liggur í loftinu að það þarf að endurnýja forystuna.
Þeir sem koma til greina meta það hins vegar sem svo að rétti tíminn til að skipta sé frekar á landsfundi í aðdraganda næstu kosninga.
Það þurfi enn að vera dálítið nýjabrum yfir nýjum leiðtoga flokksins þegar komið er inn í kosningabaráttuna.
—–
Í Viðskiptablaðinu í dag er birt könnun um stuðning við fimm ólíka aðila til formennsku í Samfylkingunni, þar sem Guðbjartur Hannesson fær mjög góða niðurstöðu.
En spurningin, og þeir sem spurt er um, hefur líka væntanlega áhrif á niðurstöðuna.
Það er t.d. bara spurt um eina konu.
Jóhanna Sigurðardóttir fær ekkert sérstaka útkomu í þessari könnun.
Þó verður að taka tillit til þess að flokksmenn Samfylkingarinnar eru að upplagi ekkert sérstaklega foringjahollir.
—–