Feed items
Einsdæmi í samskiptum ríkja
Meðferð embættis forseta Íslands á Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, sætir furðu. Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, segir uppákomuna, varðandi afturköllun orðuveitingar, einsdæmi í samskiptum ríkja. Forsetaritari hefur tekið ábyrgð á málinu en ekki verður annað séð en forsetinn hafi haft fulla heimild til að veita orðuna og með því hefði mátt koma í veg fyrir uppákomuna.
Frjálslyndir í fjárþröng og fá enga opinbera styrki
Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur verið kölluð saman næstkomandi fimmtudag en þar verður staða flokksins rædd en flokkurinn missti alla menn sína af þingi í kosningunum. Þá uppfyllir flokkurinn ekki lengur skilyrði fyrir opinberum stuðningi.
Draugar fortíðar reyndust Sjálfstæðisflokknum erfiðir
Ef lýsa á kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar, er líklegast rétt að segja að flokknum hafi orðið allt til ógæfu. Lítið sem ekkert rak á fjörur flokksins til að auðvelda honum baráttuna.
Forystumenn í Sjálfstæðisflokknum krefjast hreingerninga
Gríðarleg reiði er meðal forystumanna í Sjálfstæðisflokknum um land allt vegna styrkja sem flokkurinn þáði frá FL Group og Landsbankanum árið 2006. Reiðin endurspeglar þá hneykslan sem er meðal almennra flokksmanna. Þess er krafist að gengið verði hreint til verks og þeir sem ábyrgð bera axli hana.
Málglaðir ræðukóngar gagnrýna ræður
Samkvæmt fréttum í dag gerðu þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon mikið úr því á blaðamannafundi sínum fyrr í dag, að sjálfstæðismenn hefðu nú rætt um stjórnarskrármál í 34 klukkustundir.
Yfir 520 milljarðar tapast á gjaldþrotum fimm eignarhaldsfélaga
Gríðarlegir fjármunir hafa eða munu tapast vegna gjaldþrota og/eða nauðasamninga íslenskra eignarhaldsfélaga. Ekki er enn hægt að átta sig að fullu hversu mikið fjárhagslegt tjón hefur hlotist vegna fjölmargra eignarhalds- og fjárfestingafélaga.
FL Group: Ekki eru allar ferðir til fjár
Í raun er hægt að halda því fram að FL Group hafi tapað á öllum fjárfestingum sínum frá árinu 2005 og á sumum fjárfestingum gríðarlegum fjármunum, fyrir utan kaup á hlutabréfum í breska lággjaldaflugfélaginu EasyJet. Allar aðrar fjárfestingar reyndust þungur baggi á félaginu.
Misvísandi skilaboð ráðherra um Icesave
Staðan í viðræðum Íslands við bresk stjórnvöld vegna Icesave-reikninga Landsbankans, er mjög óljós. Ekki verður annað séð en að ummæli Steingríms J. Sigfússonar í síðustu viku í Zetunni, umræðuþætti á Mbl.is, hafi verið óvarleg.
Ingibjörg Sólrún sendir Sjálfstæðisflokknum kaldar kveðjur
Einkennilegt er að verða vitni að því, hvernig ráðherrar Samfylkingarinnar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde vilja láta eins og allt það, sem þar fór á annan veg en ætlað var, hafi verið okkur sjálfstæðismönnum að kenna.
Um 40 þúsund manns taka þátt í vali frambjóðenda
Um eða yfir 40 þúsund manns hafa tekið beinan þátt í að velja frambjóðendur á framboðslista stjórnmálaflokkanna vegna komandi kosninga. Öll prófkjör eða forval eru nú að baki fyrir utan prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.