Feed items
Maraþonblíða
Fótbrotinn eftir skíðin skreið ég út á svalir og tók myndir af nokkrum sprækum hlaupurum í Vormaraþoni Félags Maraþonhlaupara í Skerjafirðinum í morgun 21/4/2012.
Hér miðla ég þeim í PicasaWebAlbum. Skemmtilegast er að skoða það í Full Screen Slideshow í því prógrammi. Myndirnar eru rúmlega 100 talsins, teknar um mitt hlaupið. Hægt er að skoða hverja nánar með stækkunarglers- zoominu, amk. í Chrome- browsernum. Þessu er bara skellt hráu upp.
Tengillinn er hér: https://picasaweb.google.com/107972936124078389294/2012VorMarathon?authu...
"Afsakið hlé" alltof lengi
Nú er tækifæri til þess að komast í gang með þjóðfélagið. Fiskabúrið í hléinu á skjánum er orðið óþolandi, sérstaklega nú þegar öllum er ljóst að það er ekki í lifandi mynd, heldur endurtekin
stuttmynd. Allir fiskarnir eru löngu dauðir. Komum dagskránni af stað, segir fólkið.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 12/4-13/4 2012 leiðir í ljós að fylgi stærsta sjórnmálaaflsins, Sjálfstæðisflokksins, er nær þrisvar sinnum meira en þeirra næststærstu, Samfylkingar og Framsóknarflokksins. Þó ber að hafa í huga lágt svarhlutfall (um 54% í stað kannski 60-65%), en fylgjendur vinstri ríkisstjórnar- flokkanna virðast ekki vilja segja hug sinn, enda margir ósáttir mjög.
En ef farið er eftir niðurstöðunni, þá hafa t.d. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn 57,2% fylgi saman. Vilji þorra kjósenda hefur verið hunsaður nógu lengi. Nú er lag til þess að rjúfa kyrsstöðuna og bera fram vantraust á ESB- stjórnina áður en hún leiðir okkur lengra í dýpstu fen.
Pakkinn sem skoða átti reyndist Pandórubox. Skellum lokinu á það aftur.
Aths: villa í kökunni, Framsóknarflokkur á að vera XB (ekki XG)
Orka Íslands undir stjórn ESB
Samfylkingin er ekki af baki dottin í að koma yfirstjórn íslenskra mála undir stjórn ESB. Til þess er ekkert sparað, stjórnarskránni skal breytt og nú orkudreifingu með sæstreng þannig að ESB nái því til sín sem batteríið kýs, eftir að hafa lokað öllum kjarnorkuverum í Þýskalandi og klúðrað gasstreymi frá Norður- Afríku.
Ef Ísland yrði í Evrópusambandinu færi yfirstjórn orkumála í þess hendur. Fyrirsjáanlegar orkukrísur Evrópu myndu láta ESB krefjast stærri hluta orkunnar héðan, þar sem stóriðjan sæti á hakanum, en einungis álið er um 40% útflutningsvara Íslands. Landsvirkjun hefur af og til þurft að grípa til skömmtunar á þurrka- og álagstímum, en slíkt yrði daglegt brauð þegar klíkukarlar í Brussel ráða tökkunum. Auk þess yrði sæstrengurinn að borga sig og það gerir hann einungis ef mikil orka er flutt úr landi ónýtt hér.
Þróun íslensks iðnaðar myndi líða fyrir sæstrenginn og Íslendingar yrðu þjáningarbræður í orkukrísum Evrópu, algerlega að nauðsynjalausu.
Hvers máli talar Samfylkingin eiginlega?
Minkurinn á fullu
Umhverfisráðherranum er leyft að valsa um eins og minkur í fjöreggjaframleiðslu þjóðarinnar þar til ekkert er eftir, eins og frægt er orðið. En nú tekur Svandís Svavarsdóttir úrganginn fyrir. Samfylkingin leyfir þessari niðurrifsstarfsemi að ganga áfram í nafni misskillinnar umhverfisverndar, sem er ekkert annað en fasísk umhverfisfanatík, sem engum þjónar.
Undanþágurnar sem Svandís vill ekki að við höfum, frá hverju skyldi það vera? Frá stöðlum útspúandi stórþjóða. Allir vita að magn efnanna út í loftið sem um ræðir hér á landi er alger öreind á heimsvísu. Þar með skiptir einungis máli hvað verður eftir í nánasta nágrenni og það þurfa Íslendingar að eiga við og ráða sjálfir hvar mörkin eru sett eða hvað sé gert í því, t.d. í Vestmannaeyjum, þar sem ætla má að elífðarvindurinn þynni efnin fljótt beint út í loftið. Við ráðum alveg sjálf við úrlausn þessarra mála.
Bláfjöllin flott
Skíðafærið í Bláfjöllum var unaðslegt í gær. Fólk sveif um í púðrinu og loftið sindraði af kristöllum í sólskininu. Svona dagar lyfta sálinni á hærra plan, í Alpatilfinningu. Ég dáðist að landinu af tindinum og óskaði sem flestum að upplifa svona stundir.
Nú er tækifærið, grípið það ef heilsan leyfir. Farið sem fyrst af stað. Já, núna!
PS: Klæðist frekar of vel heldur en of lítið. Hreyfingin er svo stutt miðað við kyrrstöðuna. Skíðagleraugu og auka lambhúshetta er nauðsynlegur búnaður á fjöllum á íslenskum vetri.
PS.PS.: Skálafell var líka mjög skemmtilegt um daginn. Verulega lofsvert framtak drífandi fólks.
Ísland í biðflokk
Svandís Svavarsdóttir tafamálaráðherra hefur sett Ísland í varanlegan biðflokk á meðan trilljónir tonna af orkumiðlandi jökulvatni renna ótrufluð til sjávar þar til allir jöklarnir eru bráðnaðir. Kostulegt er að heyra hana tala um sátt, þar sem hún hefur kvenna mest valdið ósátt síðan Hallgerður gekk.
Nú er ein helsta afsökun Svandísar fyrir því að ekki megi virkja neðri hluta Þjórsár sú, að laxinn þar raskist. Helstu hagsmunir þar eru hjá netaveiðibændum, sem þiggja myndu frekar góðar bætur en að vesenast við ádráttinn. Laxinn hressist hvort eð er ef gengið er almennilega frá þessu. Aukin hlýindi og tærleiki ánna stækka gjarnan stofninn eins og í Blöndu. Flestir sjá að þetta hálmstrá Svandísar heldur ekki.
Umhverfisráðherrann samþykkir ekki að virkjanirnar á einhverju vænlegasta og skilvirkasta vatnsfalli í heimi til virkjunar verði nýtt okkur öllum til góðs. Frekar ætti kannski að setja upp fugladrepandi viftur upp um hæðir og hóla eða að þvera firði fyrir sjávarfallavirkjanir?
Heyrði ekkert illt, eða hvað?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, leiðtogi Samfylkingar við hrunið 2008, vildi ekkert illt sjá og heyra, hvað þá leyfa bankamálaráðherranum sínum að fylgjast með. Svo þegar Davíð seðlabankastjóri úthúðaði vinum hennar, bankamönnunum og sagði svo ekki varð um villst hver staðan væri í mesta hruni Íslands í nútíma, þá skellti hún skollaeyrum við því og vildi helst lána bönkunum yfir 1000 milljarða frá skattgreiðendum til þess að skellurinn lenti örugglega á okkur öllum.
Sjálf hafði hún verið upptekin í Afríku að tvöfalda þróunaraðstoð við helstu skúrka álfunnar.
Ekki batnaði staðan þegar Jóhanna Sig tók við. Sú gerir sér ekki grein fyrir því að fjárfestar koma ekki nálægt landi þar sem forsætisráðherrann er með þá stefnu að rústa kvótakerfinu, stjórnarskránni, sjálfstæðinu, orkuöflun, gjaldeyrisviðskiptum...
Ekki alveg búin að klára Ísland
Jóhanna Sig.
vill lengri tíma til þess að klára Ísland. Hún og Steingrímur J. eru ekki alveg
búin. Þau vilja klára stóru málin: Umbylta kvótakerfinu og stjórnarskránni að þeirra
hætti, klára aðildarferlið að ESB og ljúka rammaáætlun um auðlindir
þjóðarinnar, þar sem andstæðingar nýtingar eins og Svandís Svavarsdóttir fara
með fjöregg þjóðarinnar til fjandans.
Af hverju gefum
við þessari umboðslausu og óvinsælustu ríkisstjórn meiri slaka til óhæfuverka
sinna eða aðgerðaleysis, á meðan fjölskyldur þjást og atvinnulífið allt er í
doða?
Undarleg er þrælslund
landans.
Gafst SA upp á ESB- Jóhönnu?
Samtök
Atvinnulífsins (SA) hafa borið þessa ríkisstjórn á höndum sér síðustu ár vegna
ESB- umsóknar og vonarinnar um Evruna.
En loksins nú þegar atvinnustefna ríksstjórnarinnar hefur valdið algerri
stöðnum virðast aðilar Samtaka atvinnulífsins loks hafa fengið nóg af aðgerðarleysi
Jóhönnu & Co. Þá fyrtist hún við og lætur eins og SA ofsæki ríkisstjórnina,
þegar samtökin gera einungis eðlilegar kröfur til stjórnarinnar.
Enn lafir hún þó...
Uppsöfnuð vandræði borgarstjórans
Unglingar valda, gamlingjar gjalda, mætti segja núna þar sem eldra fólk þjáist í Reykjavík, vegna þess að unga fólkið kaus hlálegan grínista yfir okkur öll. Sjá fyrri færslu mína í dag: http://astromix.blog.is/blog/astromix/entry/1216094/