Feed items

Leiðin til að hætta að ánetjast


Mynd 1. Staða gjaldeyrismála á Kastrup á föstudaginn sl.

 

Ég nenni ekki að eyða of mörgum orðum í Ögmund Jónason sem ásakaði í síðustu viku opinbera starfsmenn og nær alla sem nokkru sinni hafa átt í samstarfi við ESB um að ánetjast dagpeningum og fór svo sjálfur strax upp í flugvél og á dagpeningafund með ESB ráðherrunum í Danmörku.  Ögmundur er auðvitað nýkominn úr enn einni dagpeningaferðinni frá Mexíkó þar sem hann í félagi við einn annan ánetjuðust Mexíkóferðum upp á 750 þúsund í aðeins 4 daga! Og afsakar sig svo stuttu síðar með þeim orðum að dagpeningar séu hið eðlilegasta mál ..

Ormalyf í jólagjöf

Hljómar ógeðslega er það ekki?

En ef þú er að spyrja þig hvað þú eigir að gefa einhverjum í jólagjöf sem á ,,allt“ – eða eru sjálf/ur með tóman óskalista – þá eru ormalyf, moskítónet, næringamjólk, orkukex vatnshreinsitölflur og vatnsbrunnar – besta jólagjöfin.

Hvað er meira í anda  jólanna en að gefa einhverjum gjöf sem kostar 1247 krónur og  gefur 300 börnum lyf sem hreinsar sníkjudýr úr meltingafærum þeirra svo þau séu ekki lengur máttvana og lasin?

Eða gefa einhverjum 10.000 vatnshreinsitöflur sem hreinsa 50 þúsund lítra af vatni og tryggt að fjöldi barna sem búa nú við mengað vatn geti drukkið hreint vatn – fyrir aðeins 6.960 krónur?

UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er fullkomnasta jólagjafabúðin. Verslaðu hér.

Jólapubquiz og Helga Möller koma þér í hátíðarskap!

Nú væri gott að draga fram lakkskónna, fína gelið og smella rauðri slaufu í hárið, því upphitun jólanna er að hefjast.  En eins og öll skemmtileg félög þá mun Já Íslands, félag evrópusinna taka þátt í upphituninni.  Á morgun verður haldið jólapubquiz á Kaffi Sólon 2 hæð og hefst fjörið kl 20.30 – þar mun hinn frækni Ske-maður og þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson mun spyrja fólk um allt á milli jóla og Evrópu. Og eins og lög gera ráð fyrir verða verðlaunin einn bjórkassi.

Til að sjá til þess að við komumst örugglega í hátíðarskap mun svo hin eina sanna drottning jólalaganna Helga Möller mæta á svæðið og syngja fyrir okkur nokkur lög.

Hér má sjá viðburðinn á Facebook.

Sem sagt, jólapubquiz, Helga Möller, jólabjór, piparkökur og evrópusinnar.

Getur hreinlega ekki klikkað.

Bjór á tilboði!

Allir Evrópusinnar velkomnir.

Jóni Bjarnasyni svarað 1993


Stórhættuleg hollensk kú

Internetið er skemmtilegt því þar má finna margt gamalt og gott sem er endurnýtanlegt, svo sem gömul svör við endurnýttum mýtum – eins og þessa hressilegu grein eftir Gylfa Magnússon sem ég birti í tilefni tillögu Jóns Bjarnasonar (já aftur!) um að banna allan innflutning á kjöti (hráum eða guðforðiokkur  – lifand!)  ef við göngum í ESB, allt í nafni þess að tryggja hið meinta ,,fæðiöryggi“ landsmanna. (og koma í veg fyrir að heilbrigða samkeppni og auðvitað möguleikann á því að við fáum að kaupa mat á lægra verði)

Þó tillaga Jóns hafi komið fram í gær  – er svar Gylfa síðan 1993.

Nokkrar athugasemdir um landbúnað

eftir Gylfa Magnússon

Áður birt í Morgunblaðinu 29. ágúst 1993.

Hanna Birna gegn 65%

Ég hef hingað til reynt að hvetja allar konur áfram, líka þær sem ég er ekkert sérstaklega sammála, á meðan þær standa fyrir breytingar sem eru byggðar á reynslu og menningu kvenna og leiða til bættara samfélags, þó leiðirnar séu ekki alltaf þær sem ég hefði valið.

Í dag bauð kona sig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins, hún segist vera kona sem vilji meiri samvinnu, sátt og ,,ný stjórnmál“.  Á sama tíma segir hún að verði hún kosin formaður Sjálfstæðisflokksins ætli hún að koma í veg fyrir að þjóðin fái í eitt skipti fyrir öll að kjósa hvort hún vilji standa innan eða utan ESB.

Ákvörðun sem 65% landsmanna vilja fá að taka sem einstaklingar, ákvörðun sem 65% landsmanna vilja ekki að stjórnmálaflokkarnir taki fyrir sig, en sú kona sem nú stígur fram byrjar fyrsta daginn í framboði á að ætla að stöðva lýðræðislegt ferli og skerða ákvörðunartökurétt þinn sem kjósenda.

Það mun eingöngu bæta á þá óeiningu sem er í samfélaginu og  koma í veg fyrir að sátt náist í þessu stóra máli – í stað þess að leiða það til lykta.

Sjálfstæði, takk – öll mánaðarmót

Rúmlega helmingur heimila getur ekki borgað alla reikningana sína um hver mánaðarmót samkvæmt fréttum dagsins.

Launin okkar eru í krónum og það er frábært skv. nóbelsverðlaunahöfum í hagfræði frá því í gær, því þannig var mjög auðvelt að lækka þau.(rosa gott skv. þeim)

Við erum ein þjóða í Evrópu með verðtryggingu á lánunum okkar.(sem hagfræðingarnir í gær vissu ekki allir um)

Matur á Íslandi er sérstaklega dýr.

Unga fólkið vill búa, starfa og læra í ESB.  Það langar ekki að verða bændur eða sjómenn enda störfum að fækka þar ekki fjölga. Gott og vel, hér var hrun – ríkissjóður er að batna. En við eigum langt í land. Og þrátt fyrir erfiðleika í Evrópu upp á síðkastið þá er enn himin og haf á milli okkar og ESB ríkjanna.

Nú mala menn um að við megum alls ekki ganga í ESB því þá missum við ,,sjálfstæðið“!?

Ég veit ekki með ykkur en ég upplifi mig ekkert sérstaklega sjálfstæða þegar ég á ekki fyrir reikningunum mínum í lok hvers mánaðar.

Samtal í leigubíl

Hún: Heyrðu,  það var bara allt hvítt fyrir norðan

Hann: Já, það á líka að vera snjór hér í október en hlýnun jarðar hefur breytt því

Hún: Já ætli það ekki

suð í bakgrunni: ,,og Ísland verður að standa á eigin fótum..”

Hún: Ekki ertu að hlusta á Útvarp Sögu?

Hann: Jú

Hún: þú veist það kemur mikið af rangfærslum frá þeim sem tala á þeirri stöð

Hann: Ha!

Hún: Já, sérstaklega um Evrópusambandið

Hann: Ert þú ein af þessum sem vill ganga í Evrópusambandið?

Hún aðeins of áköf: jú einmitt

Hann: (fuss og svei) Ísland á að vera áfram sjálfstætt ríki

Hún: já, sammála eins og Danmörk, Svíþjóð og Finnland

Hann:  Ha! og snýr sér snögglega við.

Hún: þau eru sjálfstæð ríki er það ekki?

Hann undrandi: ha.. jú jú þannig

Hann: Við þurfum ekkert á þessu Evrópusambandið að halda, bara ekki neitt, við getum bara séð um okkur sjálf.

Hún: Já, en við erum auðvitað að hluta í Evrópusambandinu í gegnum EES og hvort sem er, en hvort erum við ,,sjálfstæðari” við að sitja við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar eða sitja út á gangi eins og nú er í gegnum EES?

Silfrið og áratuga aðlögun

… ég get barasta ekki setið á mér eftir að hafa horft á ,,umræðuna” í Silfrinu áðan.

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og hvatti til þroskaðrar umræðu í Silfrinu en fór sjálf ítrekað með rangt mál – svo í þágu þroskaðrar umræðu tek  ég barasta að mér að leiðrétta hana.

Hin fyrsta rangfærslan hennar var að við værum í ,,aðlögunarferli” en ekki samningarferli.   Þetta var að vísu leiðrétt hjá Eiríki Bergmann stjórnmálafræðingi sem benti á að þetta væri nokkurn vegin hið sama samningaferli og hefði verið gagnvart þeim 21 ríki sem hafa gengið hafa í ESB.  Ef ferlið hefði komið einhverjum á óvart (lesist stjórnmálafræðingum og landbúnaðarráðherrum!) þá hefði viðkomandi einfaldlega ekki lesið heima áður en hann samþykkti aðildarviðræðurnar eða tjáði sig um þær.

Eiríkur  lét það reyndar ósagt að utanríkisráðherra hafi marg ítrekað tekið það fram til að róa þá sem kynnu að hafa heyrt þessa rangfærslu,  að ekki stæði til að breyta lögum hér á landi til að ,,aðlaga” okkur að ESB vegna aðildarviðræðanna eins og andstæðingar hafa haldið fram.

Andstæðingar eru á móti

Í mörg ár sýndu skoðanakannanir að meirihluti þjóðarinnar vildi hefja viðræður við Evrópusambandið, þá hristu andstæðingar aðildar hausinn ákaft og sögðu að það væri ekki rétti tíminn því það væri svo mikill uppgangur á Íslandi – við fengjum bara lélegan samning ef við værum of rík.

Eftir hrun var mikill þrýstingur á að sótt yrði um aðild, þá fannst andstæðingum heldur ekki rétti tíminn, því samningurinn yrði svo lélegur ef við værum svona illa stödd fjárhagslega.

Þegar svo sótt var um með stuðning meirihluta þjóðarinnar í skoðanakönnunum þá vildu andstæðingar alls ekki að þingið hæfi aðildaviðræður án þess að halda sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Íslendingar ættu að sækja um aðild.  (sem engin þjóð hefur gert enda með öllu óljóst hvað felst í samningi fyrr en samið hefur verið um hann).

Síðasta ár hafa sömu menn í sífellu viljað draga umsóknina til baka – þeir sem standi að aðildarumsókninni eru ýmist föðurlandssvikarar eða ætla sér að kasta sjálfstæði landsins út í hafsauga. Þrátt fyrir það vilja þeir halda trygglega í EES samninginn og finnst bara í himnalagi að láta þá þarna í Brussel um að setja lög fyrir okkur.

Íslenski krónukúrinn

Nú þegar hausta tekur og inn um lúguna streyma tilboð um leiðina að granna mittinu, sléttum maga – vil ég minna á að áhrifaríkasta megrunin er alveg ókeypis.

Í kúrnum felst nefnilega sú staðreynd að hér í Krónulandi hækka verðbólga og vextir jafnt og þétt og því má gera ráð fyrir að afar lítill peningur sé eftir á hverju heimili til að kaupa mat.   Nú ef einhver afgangur er,  má reyna að skrapa saman fyrir íslenskri mjólkur- og kjötframleiðslu en verðinu á þeim nauðsynjavörum er tryggilega haldið uppi með sérstaklega háum verndartollum sem heldur þjóðinni frá alfarið frá öllu ofáti.

Það gleymist gjarnan að höfum þegar niðurgreitt tvisvar sinnum meira til þessarar framleiðslu en nágrannar okkar í Evrópusambandinu gera fyrir sambærilega landbúnaðarframleiðslu.  En allt skal í sölurnar lagt til að forðast fitudrauginn ógurlega.

Fæstir hafa auðvitað ekki efni á þessu varning hvort eð er og geta haldið sér gangandi á bankabyggi og grænkáli.  Ekki má lengur flytja inn kjöt og mjólkurvörur erlendis frá nema á því séu um 600% tollar og krónugreyið dugar skammt í slíkum kaupum.