Feed items
Schwarzer Kanal Bleibt!
"Fyrir mig er það mjög mikilvægt að við skilgreinum okkur sem queer innan aktífistahreifingarinnar og að við vinnum með mismunandi þemu á queer-feminiskan hátt. Það er mikilvægt að hafa blandaðan hóp aktivista þar sem þú getur komið og tekið þátt í pólitísku starfi án þess að þurfa endalaust að standa í umræðu um hvernig manneskja þú ert."
Prójektið Schwarzer Kanal hefur verið starfrækt í Berlín í 20 ár. Það hefur verið vettvangur óteljandi menningarlegra uppákoma, tónleika, kvikmyndasýninga og vinstri-pólitískrar grasrótarbaráttu ásamt því að vera heimili fólks.
Ritskoðunarfrelsi
Sigrún Stefánsdóttir, Sjálfstæðiskona og pólitískt skipaður dagskrárstjóri RÚV, fór þess á leit við Bubba Morthens að hann hætti að tjá sig um stjórnmál í útvarpsþætti sínum eftir að hann lét orð falla um Davíð Oddsson og Hannes Hólmstein Gissurarson. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hringdi í Hrein Loftsson, eiganda Birtíngs, til að gera kröfu um að Hreinn stöðvaði gagnrýninn fréttaflutning DV um Bjarna. Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV og Sjálfstæðismaður, fjarlægði frétt um Jórunni Frímannsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem henni þótti hennar bestu hliðar ekki koma fram í fréttinni eins og hún var unnin. Vika í lífi þeirra miðla sem ekki er ritstýrt af fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins.
Marxískar klippimyndir Óttars Martins
Óttar Martin Norðfjörð birtir nokkrar marxískar klippimyndir í safnritinu Af marxisma sem Nýhil gefur út. Höfundur og útgáfa veittu Nei. góðfúslegt leyfi til að birta eina klippimyndanna.
968 í haldi – þrír ákærðir
Kaupmannahöfn: Á laugardag hneppti lögregla 968 mótmælendur í „forvarnarhald“ (e. preventive detention). Af þeim 968 sem var haldið af lögreglu hafa aðeins 13 verið handteknir, og þrír ákærðir.
Deborah Doane, sem er í forsvari fyrir The World Development Movement, fordæmdi dönsk yfirvöld fyrir aðfarirnar og sagði þær „brjóta fullkomlega gegn réttinum til mótmæla og vera skref í átt að niðurbroti lýðræðisins.“
… eða þú færð Marx í skóinn!
„Þótt marxismi hafi fyrir löngu fest sig í sessi innan hug- og félagsvísinda víða um heim leikur enginn vafi á því að nú um stundir fer áhugi á honum mjög vaxandi. Ástæður þess má ef til vill finna í höllu gengi nýfrjálshyggjunnar frá því í kringum árið 2005 og í kjölfarið í matvælakreppu og síðar því fjármálahruni sem dundi yfir heiminn á árunum 2007–2008, með afleiðingum sem Íslendingum eru vel kunnar.“
Nýhil hefur gefið út bókina Af marxisma, greinasafn sem kannar erindi marxískra fræða við samtímann. Samhengi útgáfunnar er rakið skilmerkilega í formála ritstjóra sem Nei. hefur fengið góðfúslegt leyfi til að birta til kynningar.
Tignarleg skepna, hægrimaðurinn
„Þá myndu hælisleitendur ekki leita hingað eða annað utan Grikklands og semja lygasögu um ævi sína og örlög, eins og flestir þeirra, sem hingað koma, gera.“ Þennan róg ber AMX, fréttavefur öfgahægrimanna, nú út. Hópurinn að baki vefnum hefur lýst yfir stuðningi við þá stefnu Steingríms J. Sigfússonar og Rögnu Árnadóttur í málefnum hælisleitenda, að [...]
Hvers vegna getur fólk ekki bara hagað sér almennilega?
Glitnir fjármagnaði árið 2007 kaup R.E.D. Berlin development á Revaler viereck landssvæðinu í Berlín. Á þessu gamla járnbrautarvagnaverkstæði hefur fjölbreytt starfsemi hefur verið rekin um árabil sem spilað hefur mjög mikilvægt hlutverk í alternatífri menningu og neðanjarðarmenningu borgarinnar. Nú stendur hins vegar til að byggja skrifstofu og íbúðarhúsnæði á svæðinu og menningarkollektífurnar eru orðnar fyrir.
Steingrímur styður brottvísanir
Steingrímur J. Sigfússon hefur lýst yfir ótvíræðri afstöðu með brottsendingum hælisleitenda, í tilfellum þeirra þriggja manna sem vísað var frá landinu nýverið, og styður stefnuna þar að baki heilshugar. Hann ber tvennum röksemdum við: Í fyrsta lagi að ef hliðanna er ekki gætt þá myndu fleiri streyma til Íslands en landið ræður við. Í öðru lagi væri það ekki í samræmi við stefnu hinna Norðurlandanna.
Virðist því vera sem Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra starfi ekki í trássi við vilja ríkisstjórnarinnar í þessum málum, heldur vilji vinstristjórnin halda til streitu þeirri stefnu sem mótuð var fyrir hennar tíð, að útlendingum skuli að jafnaði ekki hjálpa.
Vinir
Þegar Bandaríkjaher fór af landinu skildu þeir eftir um 80 bækur, að gjöf til ríkisstjórnarinnar, um hernað og varnarmál. Hér að neðan eru nokkrar ábendingar frá Nei.inu:
Aftaka.org Smugan.is InfiniteThought Kistan.is Hustaka.org Andspyrna.net Lára Hanna Egill Helgason … stundum The Guardian Monde Diplo Bókasafnið
Nóg Nei.
Þetta var skýrt Nei. Hér má fletta í þeim 677 greinum, fréttum og stúfum sem birtust í blaðinu. Ritstjóri er farinn að leita að einhverju til að segja já við. Takk í bili.