Feed items
Fórnarlömb mansals þurfa mikla sálfræðiaðstoð
Sálfræðilegar þarfir fórnarlamba mansals eru oft mjög miklar og afleiðingar mansalsins hafa haft djúpar sálfræðilegar afleiðingar. Þær glíma gjarnan við alvarlegt þunglyndi og áfallastreituröskun en einnig geta þær átt við áfengis- eða vímuefnavanda.
Ákæruvaldið sanni hættuna
Sönnunarfærslu ákæruvaldsins í landsdómsmáli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er áfátt í veigamiklum atriðum að mati Andra Árnasonar, verjanda Geirs. Þetta kemur fram í greinargerð hans sem er hluti af vörn Geirs fyrir landsdómi. Þá segir að engin rök standi til að slaka á þeirri sönnunarkröfu sem vanalega er gerð til ákæruvaldsins í málum fyrir landsdómi.
Herjólfur siglir ekki meira í dag
Búið er að fella niður seinni ferð Herjólfs í dag vegna veðurs. Gert er ráð fyrir allt að 28 metrum á sekúndu í vindhraða og sex metra ölduhæð á leiðinni. Ekki er gert ráð fyrir öðru en að skipið sigli á milli lands og Vestmannaeyja á morgun en veðurspáin þá er betri.
Tugir þúsunda Rússa mótmæla Pútín í sautján gráðu frosti
Þrátt fyrir mikinn kulda hafa tugir þúsunda mótmælenda safnast saman á götum Moskvuborgar í Rússlandi í dag. Mótmælendurnir fara fram á að Vladimir Pútín, forsætisráðherra landsins, stígi af valdastóli. Sautján gráðu frost er í Moskvu en mótmælendur láta það ekki á sig fá.
Heidi þakklát fyrir stuðninginn
Heidi Klum hefur nú rofið þögnina sem hefur verið eftir að hún og eiginmaður hennar Seal tilkynntu um skilnað. Ofurfyrirsætan geðþekka sagði frá á Twitter-síðu sinni að hún væri þakklát þeim sem hefðu stutt þau í gegnum erfiðleikana.
Engin ný störf verða til á Sogni
Engin ný störf skapast verði af hugmyndum um að opna nýtt opið fangelsi á Sogni líkt og Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði frá á fundi í morgun. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir í samtali við Mbl.is að verið sé að skoða flutning á starfseminni sem nú er á Bitru yfir á Sogn. Engin ný störf myndu skapast við það.
Hundurinn Kolla týndist í Hafnarfirði
Hundurinn Kolla hvarf af heimili sínu í Hafnarfirði klukkan 11 í gærmorgun. Um er að ræða árs gamla svarta tík með hvíta bringu. Lögreglu, hundaeftirliti og hundagæslunni að Leirum auk dýraspítalans í Garðabæ hefur verið tilkynnt um atvikið auk þess sem fjöldi fólks hefur vakið athygli á hvarfinu á Facebook.
Sogn verður að opnu fangelsi
Breyta á réttargeðdeildinni að Sogni í opið fangelsi. Þetta sagði Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar á opnum fundi Samfylkingarinnar í Árborg í morgun. Ákvörðun hefur verið tekin um að flytja réttargeðdeildina inn á geðdeild Landspítalans á Kleppi frá og með 1. mars næstkomandi. Hingað til hefur hinsvegar ekki legið fyrir hvað yrði um húsnæðið á Sogni.
Nýr ritstjóri ráðinn á Eyjuna
Magnús Geir Eyjólfsson stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn ritstjóri Eyjunnar. Hann færist á milli vefmiðla í eigu Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda Eyjunnar og Pressunnar, en Magnús Geir starfaði áður sem blaðamaður á Pressunni. Magnús Geir tekur við af Karli Th. Birgissyni sem lét af störfum sem ritstjóri nýverið.
Uppgrip hjá lýtalæknum
„Það verður nóg að gera hjá lýtalæknum í silíkonaðgerðum ef yfirvöld ætla ekki að endurskoða þetta,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður tuga kvenna sem leita nú réttar síns vegna PIP-brjóstapúða. Í upplýsinga- og leiðbeiningabréfi sem landlæknisembættið hefur sent konum með PIP-brjóstapúða er tekið fram að það sé ákvörðun hverrar og einnar konu hvort hún fái sér nýja púða eða ekki eftir að gölluðu púðarnir hafa verið fjarlægðir.