Feed items
Formannsefnið Árni
Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra, sló í gegn á Beinni línu DV. Margir vildu vita hvort hann hygðist máta formannsbrækur, eins og Össur Skarphéðinsson spáði. Augljóst er af svörum hans að hann ætlar að fara í framboð gegn Jóhönnu Sigurðardóttur formanni sem glímir við fylgishrun ef marka má kannanir. Erfitt er að átta sig á stuðningi Árna og langt er til formannskosninga. Víst er þó að slagurinn á eftir að vera harður.
Guðbjörg notar Moggann
Athafnakonan Guðbjörg Matthíasdóttir fagnaði í gær nýrri Heimaey sem kom til Vestmannaeyja á þriðjudag. Mikið var um dýrðir enda kostaði dallurinn fjóra milljarða króna. Guðbjörg er stærsti eigandi Moggans sem var á staðnum. Og það kom fæstum á óvart að málgagnið notað forsíðuna til að boða að skipið yrði kannski selt úr landi ef kvótanum yrði breytt. Um allt land vofa hörmungar yfir útgerðarmönnum sem gráta jafnvel á tyllistundum.
Rosalega ríkur
Ævintýralegt gengi sjávarútvegsrisans Samherja hefur vakið athygli. Vart fer á milli mála að í seinni tíð er gengi fyrirtækisins eldhuganum Þorsteini Má baldvinssyni að þakka. Sá sem lagði grunninn að veldinu er hins vegar Þorsteinn Vilhelmsson, fændi Þorsteins Más, sem færði Samherja upphaflegan kvóta og mokveiddi á upphafsárunum. Þorsteini var hins vegar ýtt út fyrir mörgum árum. Stærsti einstaki eigandi Samherja í dag einn ríkasti maður landsins er vélstjórinn Kristján Vilhelmsson eftir að hlutur Þorsteins Más skiptist í tvennt við skilnað hans og eiginkonu hans.
Klókindi forsetans
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þykir hafa sýnt klókindi á mæðradaginn þegar hann hjólaði í Þóru Arnórsdóttur frambjóðanda sem lá á sæng og er ekki líkleg til að geta slegið strax til baka. Þá braut forsetinn fyrri yfirlýsingar um að hefja ekki kosningabaráttu fyrr en framboðsfrestur væri runninn út. Til eru þeir sem telja að þarna sé um að ræða hannaða atburðarás forsetans sem nú leggi allt undir í erfiðri stöðu þar sem hann mælist undir.
Siðareglur forseta
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, harðneitar að setja embættinu siðareglur þrátt fyrir skýrar ábendingar í rannsóknarskýrslu Alþingis og kröfu forsætisráðherra á hann til þess. Nú munu þingmenn úr nokkrum flokkum hafa flutt frumvarp sem á að knýja hann til að setja sér siðareglur. En á meðan engar siðareglur gilda um hvaðan forsetaframbjóðandi, sem enn er forseti, getur þegið fé, er greið leið fyrir fjármagn í framboðið..
Áhyggjur Haga
Sú ákvörðun Jóhannesar Jónssonar úr Bónus að koma með Iceland-matvöruverslanir til Íslands hefur valdið nokkrum titringi á markaðnum. Óttast samkeppnisaðilar að þeir muni missa spón úr sínum aski. Þetta á sérstaklega við um verslanir Haga, Bónus og Hagkaup, sem Jóhannes stýrði til mikilla sigra á sínum tíma. Daginn sem Jóhannes kynnti um áform sín féllu enda hlutabréf í Högum um þrjú prósent með tilheyrandi hrolli fyrir lífeyrissjóðina.
Subbuleg herferð
Umdeild herferð útgerðarmanna er rakin til Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, sem þykir í senn vera harðskeyttur og ósvífinn. Talið er að yfirvegaðri útgerðarmenn eins og Eiríkur Tómasson, varaformaður LíÚ, og Árni Vilhjálmsson, aðaleigandi Granda, séu ekki jafnhrifnir af herferðinni sem átti að verða til þess að auka samúð með útgerðarmönnum en hefur nú snúist upp í andhverfu sína vegna subbuskaparins. Ástæðan þess er ekki síst sú að fólk er dregið nauðugt inn í áróðursstríðið.
Ekki málóður
Sá snjalli útrásarvíkingur Heiðar Már Guðjónsson er einhver sá kæruglaðasti sem sögum fer af. Heiðar Már höfðaði dómsmál á
Innmúruð rannsókn
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Moggans, vill að yfirvöld rannsaki framgöngu fjölmiðla árin fyrir hrun. Eflaust eru margir
Vantar þjóðaratkvæði
Viðtalið við Ólaf Ragnar Grímsson á Bylgjunni bar þess einkenni að hann er logandi hræddur við kosningarnar. Það sem þó gæti