Skinhelgi Fréttablaðsins
Páll Baldvin Baldvinsson skrifar leiðara í Fréttablaðið í dag þar sem hann gagnrýnir brotthvarf Ólafs Stephensen af Morgunblaðinu og rifjar m.a. upp hvernig stofnendur Árvakurs, sem voru kaupmenn í Reykjavík, héldu blaðinu uppi með auglýsingum.
En er ekki Páll Baldvin að gleyma dálitlu?
Í títtnefndu viðtali Viðskiptablaðsins, sem birtist 10. september síðastliðinn, við Jón Ásgeir Jóhannesson, eiganda Fréttablaðsins, spyr Gísl Freyr Valdórsson blaðamaður Jón Ásgeir um kaupin á Fréttablaðinu. Svar Jóns Ásgeirs, sem enga athygli hefur vakið, er eftirfarandi: „Við fjárfestum í Fréttablaðinu á sínum tíma af því að Morgunblaðið einokaði auglýsingamarkaðinn. Það var það eina sem vakti fyrir okkur þá.“
Gísla Frey yfirsást að fylgja svari Jóns Ásgeirs eftir og því er engin nánari skýring gefin á því hvernig það þjónaði hagsmunum Jóns Ásgeirs að hafa aðgang að auglýsingadeild Fréttablaðsins. Á það skal minnt að sumarið 2002, þegar Jón Ásgeir keypti Fréttablaðið, voru m.a. Bónus og Hagkaup innan Baugs sem þá var hlutafélag.
- Login or register to post comments
- Feed: Guðbjörg Hildur Kolbeins
- Original article