Fjárfestingafélagið Kjalar
Fjárfestingarfélagið Kjalar er í 94% eigu Ólafs Ólafssonar
Úr bréfi sem sent var Silfri Egils:
Hjörleifur hjá Kjalar sagði að ef þeir hefðu fengið evrurnar fyrir fall bankanna (þeir áttu ekki að fá þær fyrr en 14. okt en þá voru bankarnir fallnir) þá hefðu þeir getað selt þær fyrir heilmikla peninga vegna þess að eftir fall bankanna var ekki hægt að ná í evrur og því hefði verið hægt að selja þær á háu verði.
...
Kjalar setti 45 milljarða inn í Kaupþing í janúar 2008 og vill fá 188 milljarða til baka í október sama ár. (Silfur Egils, 09.01.09 (finna frumheimild))
Í sömu færslu á Silfri Egils er sagt frá því að Kjalar eigi hluti í N1 og Granda - staðfesta.
Kjalar hf er með aðsetur að Suðurlandsbraut 18 í Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Hjörleifur Jakobsson sem var samstarfsmaður Erlendar Hjaltasonar í Eimskip á árum áður. Erlendur Hjaltason er framkvæmdastjóri Existu og stjórnarformaður SPRON sem ætlunin var að Kaupþing yfirtæki fyrir smánarverð. Þar er einnig til húsa lögfræðiskrifstofan Fulltingi þar sem Kristinn Hallgrímsson Hrl fer með málefni Kjalars, áður lögmaður Kaupþings og loks stjórnarmaður í gjaldþrota Gift fjárfestingafélagi, sem glataði tugum milljarða vegna fjárfestinga í nánast eingöngu Kaupþingi og Existu, enda félagið notað til að halda uppi gengi þessara félaga þó til stæði að slíta félaginu og greiða út eignir þess til fyrrum viðskiptavina Samvinnutrygginga. (athugasemd við Orðið á götunni, 12.01.09)
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/07/eiga_650_m_evra_inni_hja...
http://visir.is/article/20090108/VIDSKIPTI06/479957095/-1
http://eyjan.is/silfuregils/2009/01/07/ad-steikja-kronuna/
http://www.dv.is/brennidepill/2009/1/9/audmadur-krefst-188-milljarda/
http://www.dv.is/brennidepill/2009/1/9/audmadur-krefst-188-milljarda/
http://www.amx.is/frettaskyringar/2133/