Kommúnistaleiðtogarnir voru ekki skárri en Hitler
Hér sjáum við frétt um það að vaxmyndasafn í Taílandi hafi tekið niður auglýsingaskilti með stórri mynd af Adolf Hitler.
Það er að sjálfsögðu eðlilegt, þ.e. að myndin hafi verið tekin niður enda vilja fáir nota Hitler í auglýsingum.
En það leiðir samt hugann að mönnum sem voru, og eru, lítið skárri en Hitler. Má þar nefna menn eins og Lenín, Stalín, Maó, Pol Pot og Fídel Castro. Af öllum þessu mönnum er Castro líklega með fæst líf á samviskunni, sem þú nema tugum þúsunda.
Flestir þessara manna eru nánast dýrkaðir af vinstri mönnum út um allan heim í dag, og ekki bara af unglingum sem ekki vita betur. Þannig má sem dæmi nefna að Í viðtali við Vikublaðið 20. maí árið 1997 var Lúðvík Geirsson, nú bæjarstjóri í Hafnafirði spurður að því hver væri hans uppáhalds stjórnmálamaður. Svarið stóð ekki á sér, „Lenín, hann var traustur foringi."
Ætli margir myndu vilja flassa auglýsingum af þessum mönnum með stolti?
- Login or register to post comments
- Feed: Gísli Freyr Valdórsson
- Original article