Meiður ehf.

Meiður ehf. er fjárfestingarfélag og hefur að markmiði að kaupa og selja verðbréf, lánastarfsemi og aðra umsýslu tengda þeim viðskiptum. Það var stofnað af nokkrum sparisjóðum í apríl 2001. Í október 2002 gerðist Kaupþing banki hluthafi í félaginu, í tengslum við kaup á hlutum í Kaupþingi banka sem áður voru í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis.

Fram til 27.12.02 átti Kaupþing 43,2% og 56,8% hlutur var í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóðsins í Keflavík, Sparisjóðabanka Íslands hf., Sparisjóðs Mýrasýslu, Sparisjóðs Húnaþings og Stranda, Sparisjóðs Siglufjarðar, Sparisjóðs Svarfdæla og Sparisjóðs Vestfirðinga.

 

Þann 27.12.02 var birt fréttatilkynning þar sem greint var frá því að Bakkavör Holding s.a.r.l. hefði keypt 55% hlutafjár í Meiði ehf. sem var þá stærsti hluthafinn í Kaupþingi með 15,7% hlutafjár. 22.12.03 var eignarhlutur Bakkavarar Holding í Meiði 59,1% og eignarhlutur Meiðs í Kaupþingi 14,1%.