Rannsóknin á hegðun bankanna í aðdraganda hrunsins

FME fól endurskoðunarfyrirtækjum að rannsaka tiltekna þætti í aðdraganda hruns bankanna.

Fjalla um ágreininginn um KPMG sem athugunaraðila á Glitni, vegna tengsla.

Fjalla einnig um skýrsluskilin og hvað FME ætlar að gera við niðurstöðurnar:

 

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, ætlar ekkert að gefa upp um það hvort endurskoðunarfyrirtækin sem rannsökuðu Kaupþing og Landsbankann í aðdraganda hrunsins telji að lög eða reglur hafi verið brotnar eða ekki. Aðalatriðið sé að unnið verði faglega úr skýrslum endurskoðunarfyrirtækjanna.

Jónas segir endurskoðunarfyrirtæki hafa verið fengin til að vinna nokkurs konar dýpri vinnu úr gögnum frá bönkunum sem kemur til viðbótar þeirri vinnu sem eftirlitið sjálft hefur haft með höndum síðustu þrjá mánuði.

PriceWaterhouseCoopers og Deloitte skiluðu sínu um Landsbanka og Kaupþing rétt fyrir áramót og könnuðu aðallega hvort innri reglur bankanna eða lög um fjármálafyrirtæki hefðu verið brotin. Úrræði geta verið stjórnvaldssektir eða vísun til efnahagsbrotadeildar.  (ruv.is, 06.01.09)

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/09/fme_enn_unnid_ad_ranns...

http://www.vb.is/frett/1/51509/fme-vinnur-ur-gognum-um-meint-sakhaefi-ve...