Ögmundur!

Ég ritaði eftirfarandi pistil á baksíðu Viðskiptablaðsins s.l. fimmtudag. Ég hef það nú ekki fyrir venju að birta þá pistla hér en ætla að gera undantekningu í þetta skipti:

Ögmundur!

Seint verður sagt að við Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og heilbrigðisráðherra til skamms tíma, séum skoðanabræður. En Ögmundur er samt einn af þessum stjórnmálamönnum sem maður kemst ekki hjá að þykja eilítið vænt um, þó honum verði auðvitað seint fyrirgefið að tönnlast á því að við frjálshyggjumenn höfum keyrt landið í rúst.

Fyrir um hálfu öðru ári bauð Ögmundur mér á heimili sitt þar sem ég hafði beðið hann um viðtal vegna BA ritgerðar minnar. Þar sátum við í rúma tvo tíma og áttum stórskemmtilegt spjall um stjórnmál og því samtali gleymi ég seint.

Ögmundur er mikill hugsjónamaður og alltaf til í hugmyndafræðilegt debatt. En hann er meira en bara hugmyndafræðilega þenkjandi. Ögmundur er baráttumaður. Hann er tilbúinn að vera með læti ef með þarf og andstæðingar hans í stjórnmálum ættu ekki að láta góðlátlegu föðurímyndina villa sér sýn þegar á hólminn er komið – ekki frekar en að tanið og gelið geri Árna Pál Árnason að borgaralega þenkjandi krata.

Því þurfti það ekki að koma neinum á óvart að Ögmundur skyldi segja af sér ráðherraembætti eftir að hafa setið undir svipuhöggum og kúgunum flokks Jóhönnu Sigurðardóttur vegna Icesave-málsins. Eftir rúmlega 20 ára baráttu fyrir hagsmunum íslenskra launþega gat fráfarandi formaður BSRB ekki hugsað sér að leggja Icesave-kvaðir á börn sömu launþega til þess eins að komast hjá niðurlægingu Samfylkingarinnar hjá bjúrókratíunni í Brussel.

En síðan þá eru liðnar vikur og mánuðir. Lítið hefur heyrst frá Ögmundi um málið síðustu vikur og fyrir okkur sem ekki sitjum byltingarfundi VG virðist þróttur Ögmundar í málinu fara þverrandi.

Ögmundur, getum við ekki örugglega treyst því að þú munir berjast fyrir því að íslenskir launþegar verði ekki látnir greiða fyrir Icesave?*

 

*Í atgangi deadline-a varð mér það á að gleyma þessu litla orði „ekki“ í síðustu setningunni. Það lagfærist hér með.