Óli Tynes og klámið

Á vefsvæði Vísis er því slegið upp að allir karlmenn horfi á klám. Óli Tynes, sá sem skrifaður er fyrir fréttinni, sá ástæðu til að setja orðið víst inn í sviga fyrir aftan fyrirsögn til að hnykkja á þeirri staðreynd að allir karlmenn horfi á klám.

Frá sjónarhóli fjölmiðlafræðinnar er athyglisvert hvernig lítil frétt sem upphaflega birtist á vefsvæði háskóla í Kanada hefur breiðst út um heimsbyggðina. Sérstaklega er forvitnilegt að sjá hvernig fréttin hefur verið túlkuð og staðreyndir skrumskældar. Meðal annars hefur verið fullyrt að klámið hafi engin áhrif.

Fréttin um klámnotkun karlmanna á rætur að rekja til rannsóknar sem nemandi (sem hefur lokið doktorsnámi) við Université de Montréal, Simon Louis Lajeunesse, er að vinna að. Hann hefur nú þegar tekið viðtöl við 20 gagnkynhneigða karlmenn í háskólanámi og dregið þá ályktun að klámnotkun mannanna hafi ekki haft áhrif á viðhorf þeirra til kvenna. 

Það er með ólíkindum að fjölmiðlar skuli gleypa þessa litlu háskólafrétt hráa og gagnrýnislaust. Í fyrsta lagi liggja niðurstöður rannsóknarinnar ekki fyrir, í öðru lagi er ekki hægt að alhæfa út frá 20 háskólanemendum og í þriðja lagi er það beinlínis rangt að klám hafi engin áhrif. 

Á síðustu 30 árum hefur fjöldi virtra vísindamanna rannsakað áhrif kláms. Í stuttu máli er niðurstaðan sú að klám hefur lítil sem engin neikvæð áhrif á meirihluta fullorðinna karlmanna en það hefur áhrif á karlmenn í áhættuhópi og áhrifin ráðast af því um hvers konar klámefni er að ræða.