Eftirlitshlutverk Alþingis
Bæta þarf lagarammann um eftirlit Alþingis með störfum ráðherra og stjórnsýslunnar og styrkja þannig lýðræðislegan grundvöll stjórnskipunarinnar.
Íslenskt samfélag stendur á margan hátt á tímamótum. Hrun fjármálakerfisins hér á landi og ein dýpsta kreppa í íslensku efnahagslífi á síðari tímum leiðir ekki aðeins hugann að þeirri óráðsíu sem virðist hafa einkennt rekstur bankanna og margra fyrirtækja sem flugu hátt á veikburða útrásarvængjum heldur einnig að stjórnkerfinu í heild og þeim gildum sem það er reist á. Hrunið hefur enda leitt til mjög mikillar samfélagsumræðu um lýðræði og ríkisvald þar sem hlutverk Alþingis og tengsl þess við framkvæmdarvaldið hefur oft borið á góma.
- Login or register to post comments
- Feed: Ásta Ragnheiður - Í stuttu máli
- Original article