Ritskoðunarfrelsi
Sigrún Stefánsdóttir, Sjálfstæðiskona og pólitískt skipaður dagskrárstjóri RÚV, fór þess á leit við Bubba Morthens að hann hætti að tjá sig um stjórnmál í útvarpsþætti sínum eftir að hann lét orð falla um Davíð Oddsson og Hannes Hólmstein Gissurarson. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hringdi í Hrein Loftsson, eiganda Birtíngs, til að gera kröfu um að Hreinn stöðvaði gagnrýninn fréttaflutning DV um Bjarna. Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV og Sjálfstæðismaður, fjarlægði frétt um Jórunni Frímannsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem henni þótti hennar bestu hliðar ekki koma fram í fréttinni eins og hún var unnin. Vika í lífi þeirra miðla sem ekki er ritstýrt af fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins.
- Login or register to post comments
- Feed: Dagblaðið Nei.
- Original article