Til varnar spunameistara starfandi forsætisráðherra
Ég mun líklega ekki koma aðstoðarmanni starfandi forsætisráðherra, Hrannari B. Arnarssyni, til varnar á hverjum degi en ég ætla að gera það núna þar sem ég skil ekki hvað menn eru að stressa sig yfir ummælum Hrannars B. á Facebook síðu sinni.
Eins og aðrir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar varð Hrannar B. stressaður þegar erlendir fjölmiðlar fóru að fjalla um Ísland um miðja síðustu viku út af einhverju Icesave máli. Hrannar B. heldur líkt og aðrir áhangendur ESB að Ísland sökkvi í sæ ef einhver fjölmiðill fjallar með neikvæðum hætti um landið.
Um slíkan aumingjaskap má fólki finnast ýmislegt en Hrannar B. er langt frá því að vera sá eini sem hefur þessa skoðun. Áhugasamir þurfa ekki annað en að leita til flokksfélaga hans í Háskóla Íslands eins og svo margir fjölmiðlar gera iðulega.
En menn verða að muna að Hrannar B. er ekki embættismaður, hann er pólitískur aðstoðarmaður starfandi forsætisráðherra. Honum er því heimilt að varpa fram skoðunum sínum hvar sem er og hvenær sem er, jafnvel á Facebook síðunni sinni fyrir framan rúmlega 1.700 vini sína (sem hann kallar eldhúsumræður).
Nú má fólki auðvitað finnast ýmislegt um það sem Hrannar B. segir í 1.700 manna eldhúsi sínu, en það er hvorki rangt né óeðlilegt að spunameistari starfandi forsætisráðherra hafi skoðanir.
- Login or register to post comments
- Feed: Gísli Freyr Valdórsson
- Original article