Verður allt miklu betra eftir sex ár?
Eitt nýjasta útspil þeirra sem telja að íslenskir skattgreiðendur og börnin þeirra beri ábyrgð á störfum Landsbankans erlendis er að tala um að afgreiða þurfi lánið sem hvort eð er þurfi ekki að byrja að greiða fyrr en árið 2016 (svona eins og sex ár séu það langt í burtu).
Þannig tala skósveinar ríkisstjórnarinnar og til að vera ekki minni maður en þeir ákvað Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, að hjálpa sínum mönnum í leiðara blaðsins í gær með því að úthúða stjórnarandstöðunni á Alþingi fyrir að gefa ekki eftir í málinu.
Í leiðara sínum gagnrýnir Jón, réttilega, þær stórfelldu skattabreytingar sem áttu sér stað um áramót og fóru í gegnum þingið án teljandi skoðanaskipta. Jón passar sig þó að styggja ekki alræðisstjórnina og kennir stjórnarandstöðunni um allt draslið.
„Í stað þess að leggja eitthvað til málanna um leiðir til að takast á við efnahagsvandann og veita ríkisstjórninni nauðsynlegt aðhald við leiðarvalið, hafa stjórnarandstöðuflokkarnir kosið að beina allri orku sinni og athygli að samningum um lán sem á að byrja að greiða af 2016,“ segir Jón í leiðara sínum.
Einmitt. Stórfelld skattpíningastefna vinstri flokkanna er stjórnarandstöðunni að kenna af því að þeir eru að „beina allri orku sinni og athygli“ að Icesave málinu sem þarf ekki að byrja að borga fyrr en eftir sex ár.
Jón gefur sér að eftir sex ár verði heimurinn orðinn miklu betri. Því sé rétt að klára málið bara núna og reyna að semja aftur þegar kemur að því að borga. Það eykur einmitt trúverðugleika okkar hjá erlendum aðilum.
Nú þekki ég Jón ekki neitt en það segja mér menn að hann sé alls ekki illa gefinn. Því ætti það ekki að hafa farið framhjá honum að stjórnarandstaðan mótmælti með mjög afgerandi hætti þeim skattahækkunum sem nú dynja á okkur öllum í boði fjármálaráðherra. Jón veit mætavel að skattabreytingarnar fóru ekki í gegn af því að stjórnarandstaðan var svona upptekin af Icesave. Þar sem ég kýs að trúa því að Jón sé nokkuð vel upplýstur og vel að sér í málum geri ég ráð fyrir því að leiðari hans sé ekki skrifaður af vanþekkingu eða upplýsingaleysi heldur með pólitískt markmið í huga.
En nóg um það. Stóran hættan er að menn „fái leið“ á Icesave málinu og vilji þess vegna klára það sem allra fyrst, hver sem niðurstaðan verður. Nú er hins vegar tíminn til að taka slaginn, bæði hér heima og eins við þá erlendu aðila sem í vegi okkar verða.
Talsmenn vinstri flokkanna í háskólasamfélaginu og á hinum ýmsu fjölmiðlum telja þó að við verðum að gefast upp sem fyrst og játa okkur sigraða, við séum svo lítil þjóð að við eigum ekki að vera með neina stæla. Það er hættulegt sjónarmið. Það er verst ef að Íslendingar tapa fyrir sjálfum sér í þessu máli.
- Login or register to post comments
- Feed: Gísli Freyr Valdórsson
- Original article