Störf Alþingis

Í leiðaraopnu Morgunblaðsins sl. laugardag er endurprentuð þingræða eftir Vigdísi Hauksdóttur alþingismann. Sá hluti ræðunnar, sem fjallaði um Alþingi og það fólk sem þar starfar, vakti undrun þingmanna, og var þingmanninum ekki til sóma. Ég svaraði þingmanninum í umræðunum og kom því á óvart að hann teldi ræðuna eiga erindi í Morgunblaðið.