Lærðu fjölmiðlar ekkert af hruninu?
Í tæp tvö ár hafa fjölmiðlar legið undir ámæli fyrir að hafa sofið á verðinum á góðæristímanum. Í 8. bindi skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis er m.a. fjallað sérstaklega um fjölmiðla. Þar kemur fram að þegar þeir voguðu sér að segja frá erlendri gagnrýni á íslenska fjármálakerfið, heyrðist úr bönkunum: „Það er skylda ykkar að hjálpa okkur“ eða „Þið eigið að standa með okkur.“
Þess vegna hljóta að hafa orðið mistök þegar Þóra Arnórsdóttir, sem alla jafna stendur sig vel í Kastljósinu, tók að sér að leika fréttamann í kynningarmynd fyrir herferðina Inspired by Iceland. Eða fannst Ríkisútvarpinu það vera skylda sín að hjálpa stjórnvöldum og fyrirtækjum við að laða erlenda ferðamenn til landsins?
- Login or register to post comments
- Feed: Guðbjörg Hildur Kolbeins
- Original article