Ráðherrann sá að sér

Það er fagnaðarefni að Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hafi séð að sér og ákveðið að auka geymslurétt á ýsu á milli fiskveiðiára. Illu heilli ákvað ráðherrann á síðasta þingi að leggja fram frumvarp og fékk samþykkt sem dró úr möguleikum á að geyma aflamark yfir fiskveiðiáramót. Á hinn bóginn var samþykkt að ráðherra gæti síðan ráðskast með þessi mál að vild sinni. Stjórnarmeirihlutinn ákvað sem sagt að taka þetta vald frá þjóðkjörnu þinginu og færa til framkvæmdavaldsins.

Geymslurétturinn hefur gríðarlega mikla þýðingu. Hann eykur sveigjanleika við fiskveiðistjórnun. Auðveldar mönnum að skipuleggja sig við veiðarnar. Þetta fyrirkomulag dregur úr hættu á brottkasti, lækkar sóknartengdan kostnað, beinir sókn úr smærri fiski. Er sem sagt almennt til bóta. En það líkaði ekki núverandi ríkisstjórnarmeirihluta á Alþingi.

En efasemdirnar hafa nagað mannskapinn og því var heimildin skilin eftir fyrir ráðherrann að ráðskast með málið að vild. Þessa heimild nýtti svo ráðherrann sér þegar við blasti að elli brynnu inni afleheimildir í ýsu.

Því miður kom ákvörðun ráðherrans alltof seint; c.a kortéri fyrir fiskveiðiáramót. Menn hafa keppst við að ná kvótanum í ýsu, með ærnum tilkostnaði. Þetta er ákvörðun sem hefði vitaskuld átt að liggja fyrir miklu fyrr. En í nafni jákvæðrar umræðu má þó segja að skárra sé seint en aldrei.