ESB semur innkaupalistann

Það er sama hvernig menn reyna. ESB viðræðurnar eru - og ég segi og skrifa - aðlögunarviðræður. Ekkert annað. Það er rétt ábending hjá sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. Menn reyndu á sínum tíma að ná málinu fram með því að segja að um einhvers konar könnunarviðræður væri að ræða. Þetta hefur reynst fullkomin blekking. Stjórnkerfið er á fullu við að undirbúa breytingar á stofnanaumhverfinu. Sjálfur formaður VG, Steingrímur J. Sigfússon sagði það áðan í útvarpinu.

Það er ástæða til þess að rifja þessi mál aðeins upp. Menn gripu til myndlíkinga til þess að réttlæta aðildarumsóknina. Sögðu hana vera eins og labba um verslunargötur til þess að kíkja í gluggana og sjá hvað í boði væri. Mesta lagi að máta það sem fyrir augun bæri.

En þetta er ekki svona. Engin "window-shopping", eins og engilsaxneskir segja. Það er farið að leggja til atlögu við það sem í gluggunum er að finna og allt keypt; hvað sem það kostar. ESB er nefnilega ekki búð þar sem menn geta valið eða hafnað að eigin vild. Menn þurfa að kaupa það sem fyrir þá er lagt, svo samlíkingunni sé haldið áfram. Það er nefnilega ESB sem semur innkaupalistann.

Baráttan í ESB málinu er að harðna, nú þegar alvara málsins er að verða mönnum ljós. Við Jón Gunnarsson alþingsmaður höfum óskað eftir því að þessi mál verði tekin fyrir á næsta fundi Sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar Alþingis. Það er mikið í húfi, enda ljóst að aðild að ESB mun hafa grundvallandi breytingar í för með sér fyrir landbúnaðinn og setja sjávarútveg okkar í mikinn vanda.

Sjálfur skrifaði ég grein um landbúnaðarhluta þessa máls í Bændablaðið þann 31. mars sl. sem birtist svo í all mörgum héraðsfréttablöðum á netinu. Þessa grein má lesa hér.  Greininni var svarað og ég brást við með svofelldri grein. Athyglisvert er að allt það sem í greinunum stendur er í samræmi við það sem nú er að koma á daginn. Hinum áleitnu spurningum um ESB þurfa menn að fara - og það fyrr en síðar