Best var líka á milli tannanna á þeim.

Það sem gerir skrifin um Wayne Rooney svo erfið að dæma um er að hann er ekki fyrsti knattspyrnusnillingurinn sem bresk blöð elta á röndum til þess að finna eitthvað misjafnt um. 

Og þegar gerður er samanburður við hliðstæður í fortíðinni koma upp tilfelli sem sá efasemdarkornum um það að Rooney kunni að vera á svipuðu róli og snillingurinn George Best á sínum tíma. 

En það er hins vegar ekki víst, enn sem komið er. 

Best var líka hundeltur og að lokum fór svo að það reyndist vera á rökum reist að hann réði ekki við áfengisfíkn sína, því hann drakk sig út úr boltanum og síðan út úr lífinu sjálfu. 

Hér á mbl.is sé glögglega af hverju blöðin elta gaurinn, því að á hér er þetta mest lesna fréttin. 

Þetta selur ! Því miður verð ég að segja, en við því er ekkert að gera.