Mikið af fugli á vegunum.

Við Helga vorum að koma úr þriggja daga hringferð um landið og það vakti athygli okkar að óvenju mikið var af dauðum fugli á vegunum, einkum fýl og skúmi frá leiðinni frá Hornafirði að Skógum. 

Einnig sátu þeir margir inni á veginum. Hvort þetta tengist þeirri sögn að fýllinn geti ekki flogið ef hann sér ekki sjó, skal ósagt látið, en þeir höfðu greinilega margir orðið fyrir 

Í þessari ferð okkar var stansað á ýmsum stöðum og kippt inn myndum, sem ég þarf að nota í ýmsar þær kvikmyndir sem ég er með í smíðum.

Við fórum á minnsta Toyota jöklajeppi landsins, sem ég keypti fyrir slikk 2006 til þess að geta dregið bátinn Örkina.

Leiðin lá upp á Sauðárflugvöll norðan Brúarjökuls til þess að setja framhjól undir "flugstöðina", 32ja ára gamlan Ford Econoline, sem vindpokastöngin er fest við. 

Ég hafði nefnilega í blankheitunum í fyrrahaust tekið framhjólin undan honum til að selja dekkin, sem voru nær óslitin.

Fyrr í sumar fór ég á gömlum frambyggðum Rússa með tvö slitin dekk á felgum, en þá kom í ljós að þær voru sex gata en ekki fimm, og pössuðu því ekki undir "flugstöðina".

Við heimsóttum að sjálfsögðu næsta nágrannann, Völund Jóhannesson, sem hefur aðsetur stóran hluta hvers sumars í Grágæsadal, 15 kílómetra vestan við Sauðárflugvöll.