Óþjóðhollt fjármagn
Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvað auðmagnið er skelfilega óþjóðhollt.
Það ryður sér braut yfir landamæri, viðurkennir ekkert þjóðerni,
Hér á Íslandi voru stórar fjárhæðir fluttar út á reikninga í Lúxemborg. Um tíma þótti enginn maður með mönnum nema hann stæði í þessu, bankarnir buðu upp á svona þjónustu. Með þessum hætti streymdi til dæmis mikið fjármagn úr útgerðinni.
Þetta er heldur ekkert hætt – manni skilst að nú aukist fjármunaeign Íslendinga á Cayman-eyjum. Og einhvers staðar eru sjóðir sem auðmenn okkar geta sótt í – var það ekki partur af díl Björgólfs Thors við skuldunauta sína að hann létti leynd af földum peningum sínum í útlöndum?
Helsta fjölmiðlamál í Danmörku þessa dagana eru óheyrilegar upphæðir sem hafa verið fluttar úr þessu ríka landi í skjól í Lúxemborg og Sviss. Þetta er stærsta mál sem dönsk skattayfirvöld hafa komist í.
Sem fyrr lætur spilavítiskapítalisminn ekki að sér hæða.
- Login or register to post comments
- Feed: Egill Helgason
- Original article