Útgáfa af Félögin á Tortola frá 8. March 2009 - 15:13

136 félög sem skráð eru á Tortola fengu leyfi til að starfa á Íslandi á árunum 2000-2008. Morgunblaðið hefur lagt í mikla heimildarleit vegna þessa. Eftirfarandi tvær greinar birtust í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 12. febrúar 2009.

 

136 Tortola-félög á Íslandi

ALLS fengu 136 félög sem skráð eru til heimilis á Tortola-eyju leyfi til að stunda bankaviðskipti á Íslandi á árunum 2000 til 2008. Engir skattar eru greiddir af eignum á eyjunni og eini kostnaðurinn sem fylgir skráningu félags þar er árleg endurnýjun sem kostar um 300 dali. Öll félögin eru skráð á nokkur heimilisföng í höfuðborginni Road Town.
Eignarhaldið á huldu
Morgunblaðið beindi nokkrum spurningum til Fjármálaeftirlitsins (FME) um gagnsæi þessara félaga.
Í svari FME segir að spurningar blaðsins lúti að „erlendum lögaðilum, sem eru sjálfstæðar persónur. Hlutaskrá hlutafélaga er almennt ekki aðgengileg öðrum en hluthöfum og eftir atvikum stjórnvöldum. Fjármálaeftirlitið aflar einungis slíkra upplýsinga vegna rannsókna á einstökum málum, s.s. í tengslum við virka eignarhluti.“
Því er ljóst að upplýsingar um raunverulegt eignarhald félaga sem skráð eru á Tortola-eyju, sem mörg hver áttu stóra hluti í skráðum íslenskum hlutafélögum, eru huldar nema hinir raunverulegu eigendur
kjósi að upplýsa um eignarhaldið. Aðrir þátttakendur á hlutabréfamarkaði gátu ekki með nokkru móti vitað hverjir áttu stóra hluti í meðal annars tveimur stærstu bönkum landsins þegar þeir keyptu bréf í þeim.
Félögum fjölgaði mikið 2008
Á árunum 2000 til 2007 fengu að meðaltali um 13,5 félög skráð á Tortola leyfi til að stunda bankastarfsemi á Íslandi.
Þeim fjölgaði hins vegar mikið á árinu 2008 þegar alls 29 slík félög sóttu um slíkt leyfi. Tortola-félögin sem störfuðu á Íslandi urðu því tvöfalt fleiri á síðasta ári en þau höfðu verið árin áður.
Um helmingur þessara 29 félaga, eða fjórtán, sótti um og fékk starfsleyfi á Íslandi á tímabilinu ágúst 2008 og fram í október, en í byrjun þess mánaðar hrundi íslenskt bankakerfi. Því voru stofnuð fleiri félög í aðdraganda bankahrunsins en höfðu verið stofnuð að meðaltali á ári frá aldarmótum.
Þorri félaga í umsjón banka
Stóru viðskiptabankarnir þrír, Kaupþing, Landsbanki Íslands og Glitnir, og aðilar þeim tengdir eru skráðir umsjónaraðilar þorra þeirra Tortolafélaga sem hafa fengið starfsleyfi á Íslandi. Alls eru 87 af þessum 136 félögum í umsjón bankanna, eða um 65 prósent.
Tveir stjórnendur hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte, núverandi stjórnarformaður þess og fyrrverandi yfirmaður skatta- og lögfræðisviðs, voru skráðir fyrir alls ellefu félögum á eyjunni.
Níu af félögunum ellefu fengu leyfi til að stunda bankaviðskipti á Íslandi á árunum 2000 til 2002 og er umsjónaraðili þeirra allra skráður fyrrverandi yfirmaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte. Hin tvö félögin
eru skráð á árinu 2004.
Endurskoðunarfyrirækið KPMG er auk þess skráður umsjónaraðili tveggja félaga sem fengu leyfi til að starfa á Íslandi árið 2007.
Björgólfur og Magnús eiga
Þau 36 félög sem eftir standa eru skráð á allskyns aðila. Hansa ehf, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfs Guðmundssonar sem heldur utan um eignarhlut hans í enska knattspyrnufélaginu West Ham, á meðal annars félagið Baffin Island Investment Ltd. Það félag fékk leyfi til að starfa á Íslandi árið 2002. Hansa er sem stendur í greiðslustöðvun og einn kröfuhafi félagsins hefur reynt að fá það tekið til gjaldþrotaskipta.
Magnús Þorsteinsson, fyrrum meðeigandi Björgólfsfeðga í Samson, sem keypti kjölfestuhlut í Landsbankanum á sínum tíma, á einnig eitt félag skráð á Tortola. Það heitir Pilot Investors Ltd og fékk leyfi til að stunda viðskipti á Íslandi í október 2002.
Nokkur fjöldi félaga er skráður í umsjón íslenskra lögmanna og lögfræðistofa sem hafa þjónustað viðskiptalífið mikið á undanförnum árum.
Þá eru fararstjóri í Rússlandi, fasteignasali, skipstjóri og forsvarsmaður tryggingafélags skráðir umsjónaraðilar félaga á Tortola. Auk þess er félagið MS%B Limited skráð í umsjón öryggisráðgjafarfyrirtækisins Meton ehf. (Morgunblaðið, 12.02.09)

 

 Kaupþing sá um 52 félög

* Alls voru 23 af þeim 29 félögum sem skráð eru á Tortola og fengu starfsleyfi á Íslandi í fyrra í umsjón Kaupþings
* Landsbanki Íslands var umboðsaðili 25 félaga

ALLS voru 23 þeirra 29 félaga sem skráð eru á Tortola-eyju og fengu leyfi til að stunda bankastarfsemi á Íslandi á árinu 2008 í umsjón Kaupþings banka, eða um 80 prósent. Þar af voru tíu félög sett á fót í ágúst og september 2008, mánuðina tvo fyrir bankahrunið.
Kaupþing er skráður umsjónaraðili 52 félaga sem skráð eru í Road Town á Tortola-eyju. Alls eru því 40 prósent þeirra 136 félaga þaðan sem mega starfa á Íslandi í umsjón Kaupþings.
Á árunum 2000 til 2007 fengu 29 félög í umsjón Kaupþings leyfi til að starfa á Íslandi. Fjöldi þeirra nánast
tvöfaldaðist því á síðasta ári.
Seldi í byrjun október
Tvö félög sem skráð voru í umsjón Kaupþings áttu um tíma í bankanum sjálfum. Það fyrra, Everest Equities
Ltd., keypti tæplega fimm milljónir hluta í febrúar 2005 en seldi allan hlut sinn í maí það sama ár.
Nokkrum dögum síðar keypti félagið síðan aftur um 6,3 milljónir hluta. Þá eign átti Everest þangað til í byrjun október 2008. Á þeim tíma sem íslensku bankarnir voru að falla seldi félagið eina milljón hluta, sem hafa þá verið um 660 milljóna króna virði. Félagið átti þó enn um 5,3 milljónir hluta þegar Kaupþing féll og var fimmtándi stærsti eigandi félagsins.
Holt Investment Group Ltd. fékk leyfi til að stunda bankastarfsemi á Íslandi árið 2005. Félagið var um tíma á meðal stærstu stofnfjáreigenda í SPRON og í verðbréfa- og útgefendalýsingu frá félaginu er Holt Investment Group Ltd. sagt í eigu Skúla Þorvaldssonar.
Félagið keypti sautján milljónir hluta í Kaupþingi í febrúar 2008 og bætti við sig um fimm milljónum hluta í mars sama ár. Þegar Kaupþing féll var Holt Investment Group Ltd. áttundi stærsti eigandi bankans með 2,97 prósenta hlut.
Landsbankinn með 25 félög
Landsbankinn, dótturfélag hans og stjórnendur voru skráðir umboðsaðilar 25 félaga frá Tortolaeyjum
hérlendis. Eitt þeirra félaga, Nano Properties Ltd., var stofnað árið 2008.
Fjögur félög sem skráð voru á Tortola voru um tíma stórir eigendur í Landsbanka Íslands. Þau heita Proteus Global Holding S.A., Kargile Portfolio Inc, Peko Investment Company Ltd. og Marcus Capital Ltd. Umsjónaraðilar allra þeirra félaga voru annaðhvort Landsbankinn sjálfur eða Kristján Gunnar Valdimarsson, fyrrverandi forstöðumaður skattasviðs bankans. Öll þessi félög keyptu hlutabréf í bankanum og geymdu fyrir hann þangað til starfsmenn hans nýttu sér kauprétti sem þeir áunnu sér samkvæmt samningum.
Kaup aflandsfélaganna á bréfunum voru fjármögnuð af þriðja aðila, svo sem Glitni eða Kaupþingi, og
starfsmenn Landsbankans sem nýttu sér kaupréttina greiddu af þeim skatt og önnur lögbundin gjöld. Fyrirkomulagið tryggði hins vegar að Landsbankinn væri varinn fyrir hækkun á verði hlutabréfanna þar til
kaupréttirnir voru nýttir. Þegar að því kom keypti Landsbankinn hlutabréfin af erlendu félögunum og seldi
viðkomandi starfsmanni. Aðrir þátttakendur á hlutabréfamarkaði höfðu ekki upplýsingar um þessa ráðstöfun og gátu því ekki gert sér grein fyrir því hver raunverulegur eigandi félaganna var.
Glitnir banki var ekki jafn stórtækur við umsjón félaga á Tortola og hinir viðskiptabankarnir og sá einungis
um níu félög. Þau fengu leyfi til að starfa á Íslandi á árunum 2000 til 2007. (Morgunblaðið, 12.02.2009)

Morgunblaðið stendur svo sannarlega vaktina í þessum Tortola málum og birtir nýja frétt föstudaginn 13. febrúar 2009:

Tortola-félögin eru mörg hundruð

* Einungis brot af þeim félögum sem íslenskir aðilar stofnuðu á Tortola-eyju er með starfsleyfi hérlendis
* Bankarnir hafa stofnað mörg hundruð slík félög
* Fyrst og fremst verið að fela eignarhald

FÉLÖG sem íslenskir aðilar, mestmegnis viðskiptabankarnir, stofnuðu á Tortola-eyjum eru mörg hundruð talsins samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Flest þeirra eru hins vegar stofnuð af dótturfélögum bankanna erlendis, helst í Lúxemborg, og því eru upplýsingar um þau ekki skráðar í Fyrirtækjaskrá á Íslandi.
Heimildir Morgunblaðsins herma að langflest þessara félaga hafi verið stofnuð í Kaupþingi í Lúxemborg.
Sagt var frá því í gær að 136 félög sem skráð eru á Tortola-eyju fengu leyfi til að stunda bankaviðskipti á Íslandi á árunum 2000 til 2008.
Hófst fyrir meira en áratug
Stofnun félaganna hófst um miðjan tíunda áratuginn þegar íslensk fjármálafyrirtæki fóru að bjóða stórum viðskiptavinum sínum að láta söluhagnað af hlutabréfaviðskiptum renna inn í slík félög.
Á þeim tíma voru skattalög á Íslandi þess eðlis að greiddur var tíu prósent skattur af slíkum söluhagnaði upp að 3,2 milljónum króna. Allur annar hagnaður umfram þá upphæð var skattlagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 prósent skatt.
Stofnuð frá Lúxemborg
Vegna þessa sáu margir stórir fjárfestar sér hag í því að geyma ávinning af hlutabréfasölu í hlutafélögum sem voru skráð annarsstaðar en á Íslandi, meðal annars á Tortola-eyju, og greiddu sér síðan arð úr þessum félögum.
Í flestum tilfellum sáu dótturfélög íslenskra banka í Lúxemborg um að stofna þessi félög og heimildir Morgunblaðsins herma að Kaupþing hafi haldið sérstakar kynningar fyrir viðskiptavini
sína þar sem þeim var sýnt fram á hagræðið sem fékkst af þessari aðferð. Þetta fyrirkomulag
var ekki talið ólögmætt en þeir aðilar sem áttu þessi félög komu sér hjá því að greiða skatta á Íslandi.
Lögum um skattlagningu fjármagnstekna var hins vegar breytt um síðustu aldamót. Eftir lagabreytinguna var allur söluhagnaður af hlutabréfum skattlagður um tíu prósent og íslenskt skattaumhverfi því orðið afar samkeppnishæft.
Við lagabreytinguna hvarf það skattahagræði sem hafði verið af því að geyma eignir inni í þessum félögum.
Frá aldamótum hafa því þau fyrst og síðast verið stofnuð til að fela raunverulegt eignarhald í skjóli
mjög sterkrar bankaleyndar á Bresku Jómfrúreyjunum eða til að dylja tekjur eða eignir sem eitthvað athugavert var við hvernig myndast höfðu. Hundruð félaga hafa verið stofnuð á aflandssvæðum eftir þessa lagabreytingu.
Þurfa að sanna á sér deili
Líkt og kom fram í Morgunblaðinu í gær voru 136 félög sem skráð eru á Tortola með leyfi til að
stunda bankaviðskipti á Íslandi. Samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti sem tóku gildi 1. janúar 2007 þurfa bankar og aðrir tilkynningaskyldir aðilar að gera þá kröfu til allra nýrra viðskiptamanna að þeir sanni á sér deili.
Það þýðir að bankar þurfa að sannreyna hver er raunverulegur eigandi eða stjórnandi þess félags sem hefur viðskipti við hann.
Frá 1. janúar 2007 hafa 40 félög frá Tortola-eyju fengið leyfi til að starfa á Íslandi. Kaupþing er skráður umsjónarmaður 30 þeirra. Því ættu upplýsingar um raunverulega eigendur eða stjórnendur þessara félaga samkvæmt lögunum að liggja fyrir hjá viðkomandi bönkum.

Tortola-félögin eru:

(nöfnin eru tekin orðrétt upp úr Morgunblaðinu, með mögulegum ásláttarvillum, svigi fyrir aftan einstaka nöfn er til mögulegrar leiðréttingar ef um ásláttarvillur er að ræða. Svigi með nafni fyrir neðan tilgreinir þekkt tengsl þessara félaga við aðila sem tengjast Íslandi einnig með öðrum hætti, stundum eru tengslin tilgreind, stundum ekki ef færslur eru til um einstaklingana þá vísar tengill í þá færslu).

 

Ainsley Consulting Limited

Alexandra Global Master Fund

(Mikhail A Filimonov)

Azalea Resources Limited

Baffin Island Investment Ltd

Balcany Transport

Balvino Limited

Bambridge Trading Ltd

Barkham Associates SA

(Icelandair group á 49% hlut í félaginu)

Basilko Enterprises Limited

Becondale Limited

(Jón Ólafsson, óljós tengsl)

Bergman Investments Limited

Beta Food Limited

BMF Holdings Ltd.

Bray Technologies Ltd.

Brooks Trading Ltd.

(Sjeik Al-Thani, Kaupþing)

Buttimore Consultancy Services

Celeste Group Ltd.

Chalentina Limited

Charbon Capital Ltd.

Chesterfield United Inc

Chilton European International, L.P.

Chilton Small Caop International, L.P.

Cod International Limited

Craven Consulting Limited

Criollo S.A.

Data Limited

Deeks Associates Ltd.

(Ólafur Ólafsson, Serafin Shipping)

Digital Interactive Media Inc.

Eliza Limited

Enigo Limited

Eugenia 2 Investments Holdings

Euro Investments Overseas Inc.

Everest Equities Ltd.

Falkon Holdings Limited

Ferzella Investments Limited

Fordace Limited

(Ólafur Ólafsson, Serafin Shipping)

Fort Shannon Ltd.

Frankella Ltd.

Fresno Venture Corp.

Furnwall Holdings Corp.

Fylking Limited

Garden Islands Investments Ltd.

GB Holding Group S.A.

Gemma Investment Holding Ltd.

Gerland Asset Ltd.

Gigant S.A.

Glenalla Properties Limited

Goltec Securities Ltd.

Grosvenor Marketing Association

HA-Holding Limited

Harfield Consult Ltd.

Harlow Equities S.A.

Hessman Ltd.

Holly Beach S.A.

Holt Investment Group Ltd.

i21 Holding Limited

Infomax Corp.

Inglewood Corporate Holding Ltd.

Intera Ltd.

J.P.S. Ship Management Limited

Jasmina Holdings Limited

Jervistone Holdings Limited

Kaduna Resources Limited

Kamhnit Internetional Ltd. (International?)

Kargile Portfolio Inc.

Kelway Management Ltd.

Kothar Ltd.

Kubera Holding Ltd.

Lantis Limited

LMB Invest ltd.

Marcus Capital Ltd

Matuza Limited

Mikado Capital Limited

Milestone Import Export Ltd

Mink Trading Corp.

Mission BayResources Inc.

Mosi Hoolding Ltd. (Holding?)

MS%B Limted (MS&B?)

Murry Holding S.A.

Nano Properties Ltd.

Neptune Technologies Limited

New Ortland II Equity Limited

Northstar Resources Ltd.

Omicron Association S.A.

OPM Ventures Ltd.

Oscatello Investments Limited

Otris S.A.

Ovalla Trading Ltd.

Pallium International Limited

Parkhurst Export Corporation

Partridge management Group S.A.

Peko Investment Company Ltd.

Pennyrock Limited

Phoenix Seafood Ltd.

Pilot Investors Ltd.

Piratine Ltd.

Platos S.A.

Pokeno Holding Limited

Postgraduate Limited

Prakara Limited

Primfice Inc.

Primfour Inc

Primone Inc

Primseven Inc

Primsix Inc

PrimthreeInc

Primtwo Inc

Procon Industrial Holdings Ltd.

Proteus Global Holding S.A.

QAM Global Equities Fund Ltd.

Seefar Holdings Ltd.

Serrator Holding Capital Ltd.

Serval Trading Group Corp.

Shana Global SA

Sherman Technologies Limited

Solo Ltd.

Technora Corporation Ltd.

Telenstar Ltd.

Thorson Investment Limited

Topas Limited

Tranart Ltd.

Transportation Venture Cap. Ltd.

Trenvis Ltd.

Tuscon Partners Corporation

Venture Tech Assets Limited

Violet Capital Group Limited

Violeta Partners S.A.

Visgan Corp

Volante Portfolio S.A.

Walton Equities S.A.

Wave Operations Limited

Well Holdings International Ltd.

Westland Industrial Holding Ltd.

Wider Road Management Ltd.

Yenvis Inc.

Ziltis Inc.

 

Morgunblaðið birtir einnig 13. febrúar 2009 lista yfir 28 félög sem skráð eru á Panama eða Cayman eyjum. Í fylgitexta með töflunni yfir félögin segir:

 

TORTOLA-EYJA er ekki eina þekkta skattaskjólið sem er heimili félaga sem hafa fengið leyfi til að starfa á Íslandi. Sextán félög skráð í Panama fengu slíkt leyfi á árunum 2001 til 2007, en þorri þeirra var skráður á árunum 2006 og 2007.
Landsbankinn og Kristján Gunnar Valdimarsson, fyrrum forstöðumaður skattasviðs bankans, eru skráðir umsjónarmenn níu þessara félaga. Kaupþing og Glitnir voru skráðir umsjónaraðilar síns félagsins hvor og Deloitte var skráð umsjónarmaður eins þeirra. Þá voru tveir einstaklingar
skráðir fyrrir þeim tveimur félögum sem upp á vantar.
Félög frá bönkunum á Cayman
Alls voru tólf félög sem skráð eru til heimilis á Cayman-eyjum með leyfi til að stunda bankastarfsemi á Íslandi. Kaupþing var skráður umsjónaraðili sjö þeirra, Landsbankinn sá um tvö og Glitnir eitt. Hin tvö félögin eru í eigu íslensks einstaklings.

 

Skráð í Panama

Aceway Corp

Basswood International Inc

Cay Investors Global Inc

Empennage Inc

Esinghill Investments Inc.

European Savings & Loan SA

Grancey Holding S.A.

Gyba Corp.

Hannelisa Properties S.A.

Huskon International Inc.

Icelandic Mezzanine Fund Inc.

Jabez Finacial Services Inc (Financial?)

Kimball Associated Inc.

Nizza Ventures Corp

Vador Inc.

Zimham Corp

 

Skráð á Cayman eyjum

Clean Energy Parners LLC (Partners?)

CS Opportunistic Strategy Ltd.

INTL Consilium E. M. A. R. M. F. Ltd.

Laurel Restaurant Company Limited

Marchall Wace Core Fund Limited (Marshall?)

Nikko High Income Money Fund

Siglo FIJ Limited

(Icelandair ehf. leigir af þeim flugvél)

Siglo FIU Limited

(Icelandair ehf. leigir af þeim flugvél)

Stoneware Global E. M. Fund

The Galaxite Master Unit Trust

The Lincoln Fund of S. G. I. Trust

Trident European Fund