Skagfirska efnahagssvæðið

Ræddi við Guðna Ágústsson fyrrverandi framsóknarráðherra  í síma um ýmis mál. 
Ég: Sæll Guðni.

Guðni: Blessaður.

Ég: Hefur þú mínútu? Hvar ertu staddur?

Guðni: Ég er staddur á Skagfirska efnahagssvæðinu. Hér er allt í blóma.


Guðni hefur vafalaust hitt forseta Skagfirska efnahagssvæðisins, Þórólf Gíslason, kaupfélagsstjóra á Króknum og ráðið ráðum um framtíð kjöt- og mjólkurvöruframleiðslu í landinu.

Ætli þeir séu báðir í Heimssýn?

Þórólfur er merkilegur maður eins og Guðni, samfélagslega og þjóðlega þenkjandi. Glerharðir vörslumenn hagsmuna í landbúnaði. 

Meira um það í DV.