Wolf og Krugman

Hingað streyma mikilsvirtir hagfræðingar og tala. Þeir koma frá útlöndum og það virðist vera nóg til þess að fjöldi manna trúi öllu sem þeir segja. Tveir þeirra Wolf og Krugman eru hér og troða upp í Hörpu í dag. Þeir dásama báðir krónuna og telja hana hafa bjargað Íslendingum frá voða. Wolf segir t.a.m. um evrudrauminn:

Samfélagið yrði að hafa geysimikinn sveigjanleika til að bera, þegar kreppti að heima fyrir af einhverjum ástæðum gæti eina lausnin verið að lækka launin.

Nú spyr ég eins og fávís þroskaþjálfi: Hvað gerðist þarna haustið 2008? Krónan þetta dásemdar efnahagstæki tapaði rúmlega helmingi af verðgildi sínu. Var einhver að tala um að lækka laun?

Krugmann er ekkert að fela þetta – hann telur að betra sé að fela launalækkunina með því að fella gengi heldur en að burðast með sterkan gjaldmiðil sem myndi gera stjórnvöldum á hverjum tíma að gæta aðhalds og ástunda öguð vinnubrögð við rekstur ríkisins.

Þetta eru merkilegir gæjar. Þeir hafa báðir sagt að þeir þekki ekki aðstæður á Íslandi nægjanlega vel en samt koma þessar krónufullyrðingar. Þeir vita t.d. alveg örugglega ekki að hér býr þjóðin við verðtryggingu o.s.frv.

Furðurök þeirra fyrir meintri fegurð og styrk krónunnar standast engan veginn. Krugman sjálfur hefur jú reiknað það út að kaupmáttur á Íslandi hafi lækkað um 30% frá 2008 á meðan hann hefur staðið í stað á Írlandi og öðrum ríkjum. Mér er til efs að Íslendingar vilji aftur slíka kollsteypu á næstunni en þetta eru blákaldar afleiðingar krónudraumsins.

Það er hollt að hlusta á raddir að utan – við þurfum að gera meira af því. En stundum vita menn ekki allt og hafa ekki allar staðreyndir á hreinu. Ég vona að Egill og aðrir sem taka þá í viðtöl spyrji þá gagnrýnna spurninga og upplýsi þá um staðreyndir íslenska hagkerfisins. Kannski kemur annað hljóð úr horni þá…