Vinstri sveifla

Nú eru uppi sterkar raddir um að mikil vinstri sveifla verði í næstu kosningum.  Þótt varlegt sé að telja upp úr kjörkössum áður en nokkuð er komið í ljós þá er ljóst að ástandið og afleiðingar þess hljóta að gefa sjónarmiðum félagshyggju byr undir báða vængi.  Ég hef talsverða reynslu af samstarfi félagshyggjufólks í stjórnmálum.  Fyrst í Röskvu, auðvitað, og síðar í Reykjavíkurlistanum og sú reynsla hefur verið góð.  Mín skoðun er sú að Samfylkingin eigi að ganga bundin til kosninga og gefa kjósendum þannig skýrt til kynna að valið standi um félagshyggjustjórn eftir kosningar.  Það er einfaldlega komínn tími til að gefa XD frí eftir skipbrot efnahagsstefnu þeirra eftir allt of mörg ár við stjórnvölinn. 

Daður við sérhagsmuni og græðgi mun ekki líðast hérlendis í bráð.  Við munum öll koma til með að taka á okkur auknar byrðar á næstu misserum á sama tíma og þörfin á aukinni samneyslu og samábyrgð vex.  Endurskoðun á skattkerfinu blasir því við.  Ég hef boðað til opins fundar á Hótel Borg á fimmtudagskvöld kl. 20:00 til að ræða skattkerfið, þróun þess á undanförnum árum og möguleikana á breytingu í réttlætisátt.  Gestir fundarins og framsögumenn verða þeir Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafsson sem öðrum fremur hafa látið þessi mál til sín taka og haldið uppi gagnrýni á íslensku skattalöggjöfina og brotalamir á henni.  Ég vonast til að fá sem flesta til að ræða þessi mál sem munu ráð miklu um það hvernig þjóðin nær sér upp úr lægðinni og byggir samfélagið upp til framtíðar.