Vantraust og hungur í nýtt afl
Staðan í könnunum um fylgi flokka er nokkuð ljós; hún getur varla verið ómarktækari – nema um mikla óánægju með valkostina sem í boði eru að óbreyttu og löngun í nýjan sterkan valkost!
Í nýlegri könnun Capacent kváðust samtals 29% svarenda vera óákveðnir eða ætla ekki að kjósa/skila auðu og 13% til viðbótar völdu ekki einn „fjórflokkanna“ – samtals 42%. Í mælingum MMR hefur komið fram mikill hugsanlegur stuðningur við framboð á vegum Guðmundar Steingrímssonar og/eða Besta flokksins. Í mælingum hefur og komið fram algert vantraust á bæði stjórnarmeirihluta og stjórnarandstöðu.
Þetta segir mér að pólitískar afleiðingar Hrunsins séu enn miklar, að uppgjörinu sé ekki lokið og að mikið hungur sé í ný öfl eða helst nýtt afl. Kjósendur húðstrýktu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu þingkosningum og margir eru óánægðir með ríkisstjórnina sem tók við.
Það myndi sjálfsagt ekki „leysa málið“ fyrir óákveðna og óánægða kjósendur að mörg ný en lítil öfl sæktu fram á vettvanginn. En öflugt og trúverðugt nýtt afl, sem legði áherslu á lýðræðisumbætur í anda frumvarps Stjórnlagaráðs, siðvæðingu stjórnsýslunnar og fjármálakerfisins og baráttuna fyrir hagsmunum heimilanna (en ekki banka-elítunnar) hefði að mínu mati afar góða möguleika á sterkri útkomu í þingkosningum.
- Login or register to post comments
- Feed: Friðrik Þór Guðmundsson
- Original article