Rugl um Icesave-fyrirsvar
Leiðtogar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins eru ásamt Morgunblaðinu að gera mál úr svokölluðu fyrirsvari í Icesave-málinu. En þetta fyrirsvar er alveg skýrt: Utanríkisráðherra sér um samskipti við önnur ríki, gerir samninga og tekur til varna í málarekstri fyrir hönd Lýðveldisins Íslands. Fyrir kemur að aðrir ráðherrar vinna mikilvæg utanríkisverk á sínu fagsviði, t.d. sjávarútvegsráðherra í hvalamálum og umhverfisráðherra í loftslagsmálum, en þá í umboði utanríkisráðherrans.
Með þessu brölti öllu eru B, D og Moggi líklega að leiða athyglina frá því að Icesave er núna komið fyrir dómstól — sem ýmislegt það fólk taldi áður algerlega fráleitt að mundi gerast þegar það barðist gegn samningum um málið. Niðurstaða málsins fyrir ESA-dómstólnum er auðvitað upp í loft, en við þessu var sérstaklega varað í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar síðari um þetta mál – sem hefði reyndar verið hægt að ljúka með vel ásættanlegum samningum snemma árs 2010.
Ekki nema von að þeir kalli og æpi, veini og kveinki sér sem bera mesta ábyrgð á núverandi stöðu.
- Login or register to post comments
- Feed: Mörður Árnason
- Original article