Ákvörðun Sollu
Ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar í gær um að hætta í stjórnmálum, að sinni a.m.k., kom á óvart. Við höfum þekkst frá árinu 1992 og við vorum nánir samstarfsmenn í borginni meðan Reykjavíkurlistinn var við völd. Hún er einhver magnaðasti stjórnmálamaður sem ég hef kynnst, eldklár, fljót að greina kjarnann í málum og hefur mikið úthald. Það er því skiljanlegt að manneskja sem finnur að hún hefur ekki kraftinn og snerpuna sem þarf í því sem framundan er stígi niður. En ákvörðunin er einmitt svolítið í anda Sollu; kjörkuð og kom á óvart. En ég er jafnframt viss um að hún kemur aftur þegar hún hefur náð fyrri snerpu og styrk því íslenskir jafnaðarmenn þurfa á næstu misserum á öllu sínu besta fólki að halda. Að halda heilsu er mikilvægara en nokkuð annað og því dáist ég að þeirri ákvörðun hennar að forgangsraða rétt.
- Login or register to post comments
- Feed: Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Original article