Kreddukreppufjör
Stefán Snævarr hefur lag á því að koma viðmælanda sínum á óvart – með því að orða hugmyndir sínar og röksemdir þannig að maður þarf að fara að hugsa upp á nýtt. Og kemst þá að því að viðtekin sannindi eru bara rugl – eða þá að hin viðteknu sannindi eru einmitt sannindi hvað sem þau hafa verið viðtekin og útþvæld.
Kenningar um miðjuna hörðu í pólitík líta fyrst í stað út einsog stílæfingar um bragðið paradox – af því miðflokkar svokallaðir eru yfirleitt frekar slepjulegir, og almennilegt vinstri eða jafnvel hægri hljómar meira töff en miðjumoðið. Þangað til í ljós kemur að miðjan harða er í raun staðföst sósíaldemókrasía sem hafnar öfgum – og beitir sem stjórntæki hinni mjúku hentistefnu: List hins mögulega við að ná árangri.
Eða er ég kannski að túlka mér í hag? Um það snýst líka nýjasta bók Stefáns, Kredda í kreppu, einstaklingsbók gegn hugmyndafræðingum sem ekki vilja kannast við hagsmunatengsl sín (í anda Marx! sem Stefán vill þó ekki viðurkenna um of í sínu sálufélagi).
Þetta nýja úrvalsrit hefur farið lægra en skyldi nú í haust – kann reyndar að verða ein þeirra bóka sem fer fjallabaksleiðina að áhrifum og frægð og verður kúltbók á hægri ferð upp á yfirborðið.
Samt kemur hún á hárréttum tíma: Einmitt eftir heimssögulegan ósigur þeirrar frjálshyggjustefnu sem Stefán hefur í nokkra áratugi haft þvílíkt yndi af að hakka í sig, meðal annnars hér á Eyjunni síðustu misserin.
Sumir sakna í bókinni reynslusagna úr hruninu og skýringa á einstökum leikfléttum útrásarvíkinga og haardískra stjórnmálamanna – og það er rétt, þetta er rit úr akademíunni, ekki undan hvunndegi blaðamannsins. Þar á móti kemur að hinn útlægi Litlahamarsprófessor skrifar af miklu stílfjöri og fullkomnum tökum á efni sínu – og opnar lesandanum góða sýn um lendurnar á mörkum stjórnmála og heimspeki.
Mæli með henni – til dæmis ef það vantar eitthvað í pakkann fyrir áhugamann um stjórnmál. Og þegar við í Samfylkingarfélaginu erum búin á námskeiðinu um hrunið með Jóni Baldvin, þá byrjum við í leshring um Kreddukreppuna.
- Login or register to post comments
- Feed: Mörður Árnason
- Original article