4000 ný störf - bara byrjunin

Réttur til atvinnu og tækifæri allra til að sjá sér farborða er eitt af grundvallaratriðum jafnaðarstefnunnar. Aðgerðaáætlun stýrihóps ríkisstjórnar Samfylkingar og VG til að sporna við atvinnuleysi er því aðeins byrjunin á þeim aðgerðum sem ráðast þarf í til að koma í veg fyrir að atvinnuleysisbölið sé komið til að vera til lengri tíma. Þar er gert ráð fyrir mikilvægum verkefnum í byggingariðnaði, framkvæmdum við snjóflóðavarnir, gróðursetningarverkefnum, orkuviðhaldi og orkusparnaði auk veigamikilla verkefna sem líkleg eru til að skapa hér enn fleiri störf og vinna gegn brottflutningi yngra fólks. Þar má nefna hækkun endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar hér á landi, þróunarverkefni í ferðaþjónustu, frumkvöðlasetur í Reykjavík, sérfræðinga af atvinnuleysisskrá til nýsköpunarfyrirtækja og bætta samkeppnisstöðu sprota- og nýsköpunarfyrirtækja.

Eitt stærsta atvinnuverkefnið sem við blasir er að vinna þjóðina út úr þeirri alvarlegu gjaldeyris- og fjármálakreppu sem hrun bankakerfisins hafði í för með sér. Endurheimt traust umheimsins á peningamálastjórn landsins og efnahagslífi skiptir sköpum við að vinna á gjaldeyriskreppunni sem nú er haldið í skefjum með gjaldeyrishöftum. Endurreisn fjármálakerfisins og lausn gjaldeyriskreppunnar er forsenda þess að við getum tekist á við afleiðingar fjármálakreppunnar með örvandi aðgerðum til stuðnings fyrirtækjum landsins. Trúverðug framtíðarlausn í peningamálum sem stuðlað getur að stöðugleika og auknu trausti á efnahagslífi þjóðarinnar er því afar mikilvæg í þessu samhengi. Umsókn um aðild að ESB og upptöku evru er því ekki aðeins framtíðarlausn í efnahags- og atvinnumálum heldur getur yfirlýsing um slíkt haft talsverð áhrif til skemmri tíma og unnið með okkur í baráttunni við atvinnuleysið.

Markvissar áherslur Samfylkingarinnar á efnahagsaðgerðir til lausnar kreppunni og stöðugleika framtíðar, samhliða menntun, stuðningi og hagstæðum starfsskilyrðum sprota- og nýsköpunarfyrirtækja stafa af nauðsyn. Andspænis atvinnuleysinu sem fylgir hinni alþjóðlegu fjármálakreppu duga engar töfralausnir. Ráðast verður að rótum bráðavandans um leið og grunnur er lagður að atvinnusköpun framtíðarinnar.