Ræða mín á stóra framboðsfundinum með frambjóðendum í Suðvestur kjördæmi, fimmtudagskvöldið 12 Mars.

Fundarstjóri kæru Sjálfstæðismenn, 

Það var í október sem Samfylkingin sýndi sitt rétta andlit og hljóp burt frá verkefnum ríkisstjórnarinnar. Það er þess vegna sem þessi sömu verkefni eru meira og minna öll ennþá uppi á borðum. Mestur tími minnihlutastjórnarinnar hefur snúist um eitthvað allt annað en að endurreisa samfélagið. 

Fyrir þetta verklag líða heimilin og fyrirtækin í landinu. Vangeta ríkisstjórnarinnar við að endurreisa bankana til þess að þeir geti farið að stunda sín viðskipti og veita heimilunum og fyrirtækjunum í landinu eðlilega fyrirgreiðslu er algjör.  

Sjálfstæðisflokkurinn viðurkennir vissulega sína ábyrgð á þeirri stöðu sem við erum í nú, en það er ódýrt að ætla að skrifa heimskreppuna í heilu lagi á flokkinn. 

Þrátt fyrir allt er staðan sú í íslenskum stjórnmálum að Sjálfstæðisflokkurinn er eina trúverðuga stjórnmálaaflið. Allar lausnir Vinstri grænna snúast um skattahækkanir og víðtæk ríkisafskipti. Framsóknarflokkurinn hefur gengið í barndóm og svarið af sér fortíðina og stimplað sig út sem pólitískt afl í bili að minnsta kosti. Þingflokkur frjálslyndra er horfinn og Samfylkingin er í upplausn. Hún ætlar að bjóða þjóðinni upp á bráðabirgða formann sem skipt verður út á miðju næsta kjörtímabili. Sú aðferðarfræði þýðir hjaðningarvíg innan flokksins. Flokksbrotin munu koma upp á yfirborðið þar sem Sundurfylking mun verða meira einkennandi en Samfylking. 

Við sjálfstæðismenn erum nú í þeirri stöðu að ef við spilum rétt úr okkar spilum þá munum við ná vopnum okkar fljótt. Sjálfstæðisstefnan er það leiðarljós, sem við, sem þjóð verðum að treysta á. Það er Sjálfstæðisstefnan, stefna einstaklings- og athafnafrelsis sem mun skilja á milli þess hvort það tekur skamman eða langan tíma að vinna þjóðina út úr þeim vanda sem nú er uppi.         

Okkur rak af leið. Sjálfstæðisstefnan er ekki stefna sem hyglar fáum útvöldum á kostnað hinna mörgu, né stuðlar að athafnafrelsi sumra en ekki allra. Sjálfstæðisstefnan er ekki stefna sem einungis skilur frelsi en ekki ábyrgð, né stuðlar að siðrofi í samfélaginu. Hún hafnar ríkisbúskap og ofríki stjórnmálamanna, vill skýra leikreglur á markaði þar sem samkeppni og gagnsæi er tryggt. 

Sjálfstæðisstefnan styrkir innviði þjóðfélagsins með því að stuðla að öflugri samvinnu frjálsra félagasamtaka, einstaklinga, ríkis og sveitarfélaga og ýmissa hagsmunahópa til að rétta þjóðina við og skapa þannig grundvöll til nýrrar og spennandi sóknar inn í framtíðina. Það er þess vegna, að aldrei sem fyrr, verðum við að hampa Sjálfstæðisstefnunni.  

Það er ekki nóg að við frambjóðendurnir leggjumst samhent á árarnar. Nei.. það þurfum við öll að geraFörum samhent, uppfull af baráttugleði og sjálfsöryggi til næstu kosningabaráttu. Verum tilbúin að mæta andstæðingum okkar hvar sem er og hvenær sem er.  

Fyrsta skrefið er að tryggja góða þátttöku á prófkjörin á laugardaginn. Síðan munum við ganga til landsfundar og tryggja okkar manni öfluga kosningu í formannskjörinu og um leið mæta til leiks með markvissari stefnuskrá en nokkru sinni fyrr. 

Ágætu Sjálfstæðismenn! 

Ég skipa nú þriðja sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur kjördæmi, ég óska nú eftir öðru til þriðja sæti listans í  prófkjörinu á laugardaginn til þess að leggja mitt af mörkum í því endurreisnarstarfi sem framundan er. 

Endurreisnin mun byggja á gömlum gildum sem verða undirstaða nýrra tækifæra