Popúlismi dauðans
Í Kastljósi í gær var Tryggvi Þór, frambjóðandi xD í Norðaustur, að ræða við Sigríði Ingibjörgu, stöllu mína í Reykjavík, um þá hugmynd að afskrifa 20% af öllum húsnæðisskuldum landsmanna með einni aðgerð, flatt. Tryggvi Þór, sem hlaut kosningu í annað sætið hjá Sjöllum í prófkjöri, kemur nú eins og hvítskúraður postuli, hafandi verið efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde í hruninu og boðar erindið. Og hvert er fagnaðarerindið? Að fólk sem ekki þarf á því að halda fái afskrifað til jafns við þá sem bráðnauðsynlega þurfa. Nú veit ég ekki hvað Tryggvi skuldar í sínu húsnæði en ég veit hvað ég borga af mínum lánum. Og þó það sé býsna mikið, eins og hjá flestum öðrum, sé ég enga ástæðu til annars en að við Tryggvi borgum bara okkar húsnæðislán sjálf. Í máli Tryggva kom nefnilega fram að þótt hann tryði því að enginn þyrfti að borga þessi flötu 20% myndi vitaskuld koma til kostnaðarsamra björgunaraðgerða fyrir verst stöddu heimilin. Einhver þarf sumsé að borga á endanum!
Lykilatriðið í þessari hugmynd er ekki nýtt. Það er gamalt. Það er að með því að auka velsæld í einum hópi muni allir græða því molarnir muni hrynja af borðum þeirra betur stöddu til þeirra sem minna hafa. Þann falska söng höfum við mátt hlusta á allt of lengi og gagnrýni á hann hefur verið afgreidd sem öfund.
Eða getur verið að erindi Tryggva Þórs, sem nýs frambjóðanda xD, sé að bjóða Framsókn upp í dans? Er hann daman sem býður herra Framsókn í nýja ríkisstjórn? - Á eintómum popúlisma …
- Login or register to post comments
- Feed: Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Original article