Útgáfa af Tugmilljóna styrkveitingar einstakra félaga til Sjálfstæðisflokksins frá 9. April 2009 - 16:23
Fréttir bárust af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku laga sem settu hámark á framlög til stjórnmálaflokka. Þann 1. janúar 2007 tóku gildi lög sem settu 300.000 króna þak á árlegt framlag til stjórnmálaflokka á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hafði séð gögn sem sýna að 29. desember 2006 hafi 30 milljónir króna verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Lögin voru afgreidd 21. desember, átta dögum fyrir millifærsluna.
Seinna var upplýst að Sjálfstæðisflokkurinn hefði einnig þegið 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum sama haust. (tengja á frétt)
FL Group
Eins og áður segir barst greiðslan frá FL Group 29. desember 2006 en fréttir greina að reikningur fyrir greiðslunni hafi ekki verið gefinn út fyrr en einhverjum mánuðum síðar, eða þegar nokkuð var liðið á árið 2007.
Sagt er að Hannes Smárason, þáverandi forstjóri FL Group, hafi gefið vilyrði fyrir greiðslunni.
Málefni FL Group eru nú til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra, en umræddur er reikningur er meðal þess sem til skoðunar er.
Baugur var á þessum tíma í hópi helstu hluthafa í FL Group
Landsbankinn
Sjálfstæðisflokkurinn
Haft var eftir Andra Óttarssyni framkvæmdastjóra flokksins að flokkurinn hafi ekki frekar en aðrir flokkar verið með opið bókhald fyrir þann tíma. Flokkurinn hyggist að svo stöddu ekki tjá sig um einstök fjárframlög til flokksins sem áttu sér stað fyrir setningu laganna.
Andri tók við stöðu framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins í október 2006 og starfaði Kjartan Gunnarsson fráfarandi framkvæmdastjóri við hlið hans til 1. janúar 2007.
Stjórn flokksins
Fjármálaráð flokksins
Einstakir flokksmenn
Getgátur um tengsl styrkjanna við ákvarðanir í stjórnkerfinu
Fjölmiðlaumfjöllunin
Eins og gefur að skilja eru fréttir sem þessar risastórar, sérstaklega í miðri kosningabaráttu. Stærsti stjórnmálaflokkurinn sem að sögn hafði fordæmt hegðun útrásarvíkinganna varð uppvís að því að þiggja af þeim stjarnfræðilegar fjárhæðir.
Þögn Morgunblaðsins var hins vegar æpandi, eins og stundum áður. Þeir skrifuðu stutta frétt í kjölfar fréttar Stöðvar tvö að kvöldi 7. apríl en tóku síðan ekki við sér fyrr en um miðjan dag daginn eftir. Á yfirliti frétta tengdum fyrstu frétt mbl.is um málið sést að útgangspunktur þeirra var fyrst að skoða hvernig málin voru hjá öðrum stjórnmálaflokkum og því næst að kanna hvort fréttin eigi uppruna sinn hjá Stoðum (áður FL Group), enda var fyrirsögnin fyrir tengdar fréttir "framlag til flokka":
Tengdar fréttir - Framlag til flokka
Innlent | Morgunblaðið | 09.04.2009 | 06:53
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 20:33Skilað til lögaðila
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:33Styrkir endurgreiddir
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:13Kjartan vissi ekki af styrknum
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:10Geir segist bera ábyrgðina
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 15:11Miðstjórn Sjálfstæðisflokks sat á fundi
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:38Kannast ekki við slík fjárframlög
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:16„Ótrúlega há upphæð“
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:06Getur hvorki staðfest málið né neitað
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 13:37Allt upp á borðinu hjá VG og Frjálslyndum
Á sama tíma einbeitti Vísir sér að því að kanna innviði greiðslunnar, viðbrögð innan flokksins og álit álitsgjafa á greiðslunni:
Tengdar greinar:
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group
Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila
FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk
Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög