Útgáfa af Tugmilljóna styrkveitingar einstakra félaga til Sjálfstæðisflokksins frá 9. April 2009 - 22:38
Fréttir bárust af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku laga sem settu hámark á framlög til stjórnmálaflokka. Þann 1. janúar 2007 tóku gildi lög sem settu 300.000 króna þak á árlegt framlag til stjórnmálaflokka á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hafði séð gögn sem sýna að 29. desember 2006 hafi 30 milljónir króna verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Lögin voru afgreidd 21. desember, átta dögum fyrir millifærsluna.
Seinna var upplýst að Sjálfstæðisflokkurinn hefði einnig þegið 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum sama haust.
Viðbrögð manna við fréttunum hafa verið mismunandi. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Dögg Pálsdóttir er sögð hneyksluð á styrkveitingunni. Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur er gáttaður á fjárhæðinni og segir það koma sér spánskt fyrir sjónir að Geir H. Haarde taki einn ábyrgðina, sérstaklega þar sem það hafi þegar verið greint frá því að Sjálfstæðisflokkurinn falaðist sjálfur eftir styrkjunum.
FL Group
Eins og áður segir barst greiðslan frá FL Group 29. desember 2006 en fréttir greina að reikningur fyrir greiðslunni hafi ekki verið gefinn út fyrr en einhverjum mánuðum síðar, eða þegar nokkuð var liðið á árið 2007.
Sagt er að Hannes Smárason, þáverandi forstjóri FL Group, hafi gefið vilyrði fyrir greiðslunni.
Málefni FL Group eru nú til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra, en umræddur er reikningur er meðal þess sem til skoðunar er.
Baugur var á þessum tíma í hópi helstu hluthafa í FL Group.
Landsbankinn
Í kjölfar frétta af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir í lok ársins 2006 kom fundaði miðstjórn flokksins og ályktaði um málið. Í fréttatilkynningu sem Sjálfstæðisflokkurinn sendi út eftir fundinn upplýsti flokkurinn um að auk FL Group styrksins hefði Sjálfstæðisflokkurinn einnig tekið á móti 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum á sama tíma.
Ásgeir Friðgeirsson sem lengi var talsmaður fyrirtækja Björgólfs Guðmundssonar, fullyrðir í framhaldinu að bankaráð Landsbankans hafi ekki samþykkt styrkveitinguna til Sjálfstæðisflokksins og ekki haft neina vitneskju um hana. Í frásögninni var einnig greint frá því að ekki hefði verið nauðsynlegt að bera ákvörðunina undir bankaráðið, en einungis bankastjórarnir tveir, Sigurjón H. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, utan bankaráðsins hafi haft heimildir til þess að samþykkja styrkveitingar af þessari fjárhæð.
Sjálfstæðisflokkurinn
Haft var eftir Andra Óttarssyni framkvæmdastjóra flokksins að flokkurinn hafi ekki frekar en aðrir flokkar verið með opið bókhald fyrir þann tíma. Flokkurinn hyggist að svo stöddu ekki tjá sig um einstök fjárframlög til flokksins sem áttu sér stað fyrir setningu laganna.
Andri tók við stöðu framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins í október 2006 og starfaði Kjartan Gunnarsson fráfarandi framkvæmdastjóri við hlið hans til 1. janúar 2007.
Árni Snævarr sagði í bloggfærslu í gær að nótt hinna mörgu hnífa nálgaðist hjá Sjálfstæðisflokknum, fréttaflutningurinn síðan bendir til þess að hann hafi hárrétt fyrir sér. Morgunblaðið birti á skírdag frétt um að Guðlaugur Þór beri ábyrgð á styrkjunum tveimur og í kvöldfréttum sama dag skýtur Guðlaugur Þór jafnhörðum skotum til baka á blaðamanna Morgunblaðsins og segist ekki óvanur fréttaflutningi af þessu tagi úr þeirri átt.
Stjórn flokksins
Margir hafa verið nefndir til sögunnar í tengslum við þessar fréttir en þó einkum sem einhvers konar vitni um ágæti tiltekinna einstaklinga innan flokksins:
Kjartan Gunnarsson
Vísir segir frá því miðvikudaginn 8. apríl að Kjartan hafi ekki vitað af styrkveitingu FL Group, að hann hafi fyrst heyrt af því í fréttum kvöldið áður og að málið væri honum óviðkomandi. Hljóðið í honum hafði þó breyst nokkuð þegar viðtal úr kvöldfréttum Stöðvar 2 á skírdag var spilað, þar var hljómurinn í honum hikandi og nokkuð ósannfærandi. (finna tengil á sjónvarpsfréttina).
Ásgeir Bolli Kristinsson (Bolli í Sautján) sem hefur verið í fjármálaráði Sjálfstæðisflokksins síðustu 20 ár, trúir því ekki að Kjartan hafi samþykkt svo háan styrk frá FL Group „Þetta stríðir gegn öllum þeim reglum sem Kjartan setti á meðan hann var framkvæmdastjóri."
Guðlaugur Þór Þórðarson
Á miðvikudaginn 8. apríl 2009 er haft eftir Guðlaugi Þór að hann sé ekki inni í fjármálum flokksins, hann minnir jafnframt á að á þeim tíma sem styrkurinn var veittur hafi Guðlaugur legið á spítala með brunasár. Í fréttinni er jafnframt haft eftir honum að hann sé ekki viss hvenær nákvæmlega hann frétti af styrknum, hvort það hafi verið þriðjudaginn 7. apríl eða nokkrum dögum áður. (morgunblaðið á skírdag segir annað).
Guðlaugur Þór var á þessum tíma stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.
Fjármálaráð flokksins
Einstakir flokksmenn
Björn Bjarnason
Björn skrifar á heimasíðu sína að styrkveiting FL Group til Sjálfstæðisflokksins brjóti gegn öllum hefðum Sjálfstæðisflokksins.
Getgátur um tengsl styrkjanna við ákvarðanir í stjórnkerfinu
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði aðspurður á borgarafundi í Suðvesturkjördæmi að hann hefði ekki minnstu ástæðu til þess að ætla að styrkurinn frá FL Group tengist REI málinu.
RÚV fór yfir tímaás atburða í kringum styrkinn frá FL Group og sýndi fram á að auðveldlega mætti rökstyðja að tengsl gætu verið á milli styrkveitingarinnar annars vegar og sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hins vegar. Fréttatímanum var ekki lokið þegar yfirlýsing barst frá Illuga Gunnarssyni um að enginn hefði haldið því fram að hlutur ríkisins í HS hefði verið seldur með óeðlilegum hætti (laga orðalag þegar það liggur fyrir á prenti).
Samkvæmt fréttum RÚV var fyrsti fundur einkavæðinganefndar ríkisins haldinn 20. desember 2006 og þá á þeim fundi lá fyrir tilboð frá Glitni um kaup á hlutnum (Árni Mag þá hjá orkudeild Glitnis). Tilboði Glitnis var hafnað (finna orðalag). Styrkurinn frá FL Group, sem var kjölfestufjárfestir í Glitni, barst 29. desember 2006. Geysir Green Energy er stofnað í byrjun janúar 2007 og Hannes Smárason er stjórnarformaður. Í apríl 2007 kaupir GGE hlut ríkisins í HS á yfirverði. (tengil í frétt RÚV um málið).
Aðrir hafa gefið í skyn sambærilega hluti og RÚV greindi frá í frétt sinni.
Fjölmiðlaumfjöllunin
Eins og gefur að skilja eru fréttir sem þessar risastórar, sérstaklega í miðri kosningabaráttu. Stærsti stjórnmálaflokkurinn sem að sögn hafði fordæmt hegðun útrásarvíkinganna varð uppvís að því að þiggja af þeim stjarnfræðilegar fjárhæðir.
Þögn Morgunblaðsins var hins vegar æpandi, eins og stundum áður. Þeir skrifuðu stutta frétt í kjölfar fréttar Stöðvar tvö að kvöldi 7. apríl en tóku síðan ekki við sér fyrr en um miðjan dag daginn eftir. Á yfirliti frétta tengdum fyrstu frétt mbl.is um málið sést að útgangspunktur þeirra var fyrst að skoða hvernig málin voru hjá öðrum stjórnmálaflokkum og því næst að kanna hvort fréttin eigi uppruna sinn hjá Stoðum (áður FL Group), enda var fyrirsögnin fyrir tengdar fréttir "framlag til flokka":
Tengdar fréttir - Framlag til flokka
Innlent | Morgunblaðið | 09.04.2009 | 06:53
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 20:33Skilað til lögaðila
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:33Styrkir endurgreiddir
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:13Kjartan vissi ekki af styrknum
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:10Geir segist bera ábyrgðina
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 15:11Miðstjórn Sjálfstæðisflokks sat á fundi
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:38Kannast ekki við slík fjárframlög
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:16„Ótrúlega há upphæð“
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:06Getur hvorki staðfest málið né neitað
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 13:37Allt upp á borðinu hjá VG og Frjálslyndum
Á sama tíma einbeitti Vísir sér að því að kanna innviði greiðslunnar, viðbrögð innan flokksins og álit álitsgjafa á greiðslunni:
Tengdar greinar:
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group
Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila
FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk
Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög