Útgáfa af Tugmilljóna styrkveitingar einstakra félaga til Sjálfstæðisflokksins frá 10. April 2009 - 14:18
Fréttir bárust af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku laga sem settu hámark á framlög til stjórnmálaflokka. Þann 1. janúar 2007 tóku gildi lög sem settu 300.000 króna þak á árlegt framlag til stjórnmálaflokka á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hafði séð gögn sem sýna að 29. desember 2006 hafi 30 milljónir króna verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Lögin voru afgreidd 21. desember, átta dögum fyrir millifærsluna.
Seinna var upplýst að Sjálfstæðisflokkurinn hefði einnig þegið 25 30 milljón króna styrk frá Landsbankanum sama haust. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sagt að endurgreiddar verði 55 milljónir til þrotabúa þessara tveggja félaga.
Samtals fékk Sjálfstæðisflokkurinn 81 milljón króna frá níu fyrirtækjum, þar af 60 milljónir frá tveimur sem þýðir að sjö aðilar styrktu flokkinn samtals um 21 milljón:
| Glitnir | 5.000.000 |
| KB banki | 4.000.000 |
| Exista | 3.000.000 |
| Straumur-Burðarás | 2.500.000 |
| Þorbjörn hf. | 2.400.000 |
| MP fjárfestingabanki | 2.000.000 |
| Tryggingamiðstöðin | 2.000.000 |
Benda má á að FL Group var stór fjárfestir í Glitni á þessum tíma og hafði hafið uppkaup á bréfum í Tryggingamiðstöðinni.
Viðbrögð manna við fréttunum hafa verið mismunandi. Sigurður Líndal prófessor emeritus sagði það siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög þó þau hafi ekki formlega tekið gildi. Sigurður taldi einnig afar slæmt fyrir trúverðugleika stjórnmálaflokks að taka við svo hárri fjárhæð frá jafn umdeildu félagi. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Dögg Pálsdóttir er sögð hneyksluð á styrkveitingunni. Ragnheiði Ríkharðsdóttur finnst ömurlegt að flokkurinn hafi tekið við styrkjum af þessari upphæð og segir að upplýsa verði hvernig stóð á styrkjunum og hverjir beri ábyrgð á þeim. Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur er gáttaður á fjárhæðinni og segir það koma sér spánskt fyrir sjónir að Geir H. Haarde taki einn ábyrgðina, sérstaklega þar sem það hafi þegar verið greint frá því að Sjálfstæðisflokkurinn falaðist sjálfur eftir styrkjunum.
FL Group
Eins og áður segir barst greiðslan frá FL Group 29. desember 2006 en fréttir greina að reikningur fyrir greiðslunni hafi ekki verið gefinn út fyrr en einhverjum mánuðum síðar, eða þegar nokkuð var liðið á árið 2007.
Sagt er að Hannes Smárason, þáverandi forstjóri FL Group, hafi gefið vilyrði fyrir greiðslunni.
Málefni FL Group eru nú til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra, en umræddur er reikningur er meðal þess sem til skoðunar er.
Baugur var á þessum tíma í hópi helstu hluthafa í FL Group.
Landsbankinn
Í kjölfar frétta af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir í lok ársins 2006 kom fundaði miðstjórn flokksins og ályktaði um málið. Í fréttatilkynningu sem Sjálfstæðisflokkurinn sendi út eftir fundinn upplýsti flokkurinn um að auk FL Group styrksins hefði Sjálfstæðisflokkurinn einnig tekið á móti 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum á sama tíma. Enn síðar var upplýst að Landsbankinn hefði ekki styrkt flokkinn um 25 milljónir heldur 30 milljónir.
Ásgeir Friðgeirsson sem lengi var talsmaður fyrirtækja Björgólfs Guðmundssonar, fullyrðir í framhaldinu að bankaráð Landsbankans hafi ekki samþykkt styrkveitinguna til Sjálfstæðisflokksins og ekki haft neina vitneskju um hana. Í frásögninni var einnig greint frá því að ekki hefði verið nauðsynlegt að bera ákvörðunina undir bankaráðið, en einungis bankastjórarnir tveir, Sigurjón H. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, utan bankaráðsins hafi haft heimildir til þess að samþykkja styrkveitingar af þessari fjárhæð.
Sjálfstæðisflokkurinn
Haft var eftir Andra Óttarssyni framkvæmdastjóra flokksins að flokkurinn hafi ekki frekar en aðrir flokkar verið með opið bókhald fyrir þann tíma. Flokkurinn hyggist að svo stöddu ekki tjá sig um einstök fjárframlög til flokksins sem áttu sér stað fyrir setningu laganna.
Andri tók við stöðu framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins í október 2006 og starfaði Kjartan Gunnarsson fráfarandi framkvæmdastjóri við hlið hans til 1. janúar 2007.
Árni Snævarr sagði í bloggfærslu miðvikudaginn 8. apríl 2009 að nótt hinna mörgu hnífa nálgaðist hjá Sjálfstæðisflokknum, fréttaflutningurinn síðan bendir til þess að hann hafi hárrétt fyrir sér.
Stjórn flokksins
Margir hafa verið nefndir til sögunnar í tengslum við þessar fréttir en þó einkum sem einhvers konar vitni um ágæti tiltekinna einstaklinga innan flokksins:
Geir H. Haarde
Geir H. Haarde fyrrverandi formaður flokksins sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem hann tekur fulla og alla ábyrgð á greiðslunum og tiltekur sérstaklega að fyrrverandi og núverandi framkvæmdastjórar flokksins hafi ekkert haft með málið að gera. Það vakti athygli að aðstoðarmaður Geirs sendi tvær yfirlýsingar frá sér fyrir hönd Geirs með sjö mínútna millibili, í þeirri fyrri var ekkert vísað til styrksins frá Landsbankanum en í þeirri seinni er einnar línu skírskotun til Landsbankastyrksins í lokin.
Kjartan Gunnarsson
Vísir segir frá því miðvikudaginn 8. apríl að Kjartan hafi ekki vitað af styrkveitingu FL Group, að hann hafi fyrst heyrt af því í fréttum kvöldið áður og að málið væri honum óviðkomandi. Hljóðið í honum hafði þó breyst nokkuð þegar viðtal úr kvöldfréttum Stöðvar 2 á skírdag var spilað, þar var hljómurinn í honum hikandi og nokkuð ósannfærandi. (finna tengil á sjónvarpsfréttina).
Ásgeir Bolli Kristinsson (Bolli í Sautján) sem hefur verið í fjármálaráði Sjálfstæðisflokksins síðustu 20 ár, trúir því ekki að Kjartan hafi samþykkt svo háan styrk frá FL Group „Þetta stríðir gegn öllum þeim reglum sem Kjartan setti á meðan hann var framkvæmdastjóri."
Fjármálaráð flokksins
Haft er eftir Þorgeiri Baldurssyni fv. formanni fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins og forstjóra Kvosar á Vísi miðvikudaginn 8. apríl 2009 að hann hafi aldrei heyrt um styrk sem væri eitthvað í líkingu við fjárhæðina sem FL Group lagði fram. Sambærileg svör fengust hjá Vilhjálmi Egilssyni núverandi formanni fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins. Af frétt Vísis að dæma virðist sem nokkurra mánaða gat hafi verið á milli formennsku Þorgeirs og Vilhjálms í fjármálaráðinu einmitt á þeim tíma sem margumrædd fjáröflun átti sér stað, haustið 2006.
Einstakir flokksmenn
Guðlaugur Þór Þórðarson
Á miðvikudaginn 8. apríl 2009 er haft eftir Guðlaugi Þór að hann sé ekki inni í fjármálum flokksins, hann minnir jafnframt á að á þeim tíma sem styrkurinn var veittur hafi Guðlaugur legið á spítala með brunasár. Í fréttinni er jafnframt haft eftir honum að hann sé ekki viss hvenær nákvæmlega hann frétti af styrknum, hvort það hafi verið þriðjudaginn 7. apríl eða nokkrum dögum áður. Guðlaugur Þór var á þessum tíma stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.
Þrátt fyrir áðurnefnda yfirlýsingu Geirs um ábyrgð, birti Morgunblaðið frétt á skírdag um að Guðlaugur Þór beri ábyrgð á styrkjunum tveimur. Segir í Morgunblaðinu að Guðlaugur hafi haft forgöngu um að bjóða nýjum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins að Guðlaugur hefði milligöngu um að nokkur fyrirtæki, líklega um tíu talsins, legðu flokknum til styrk. "Hvert þeirra myndi leggja til um þrjár milljónir króna þannig að undir forystu FL-Group fengjust um 30 milljónir króna í flokkssjóðinn. Þetta samræmist því sem fram kom í tilkynningu Geirs H. Haarde í gær, um að hann hefði samþykkt að taka við greiðslunni enda væri hún framlag margra aðila sem FL-Group „sæi um að koma til skila“."
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sama dag skaut Guðlaugur Þór jafnhörðum skotum til baka á blaðamenn Morgunblaðsins (Önund Pál Ragnarsson og Agnesi Bragadóttur) og sagðist ekki óvanur fréttaflutningi af þessu tagi úr þeirri átt. Í yfirlýsingu sem Guðlaugur Þór hafði sent frá sér fyrr um daginn segir hann fullyrðingar Morgunblaðsins rangar. Segist Guðlaugur hafa fengið nokkra einstaklinga í flokknum til þess að aðstoða skrifstofu flokksins við fjársöfnunina en ekki hafa haft afskipti af málinu að öðru leyti, enda hafði hann "hvorki umboð til þess né áhuga."
Björn Bjarnason
Í viðtali við Vísi segist Björn Bjarnason myndu hafa aftekið þessa ráðstöfun með öllu hefði hann haft pata af henni. Daginn eftir skrifar Björn á heimasíðu sína að styrkveiting FL Group til Sjálfstæðisflokksins brjóti gegn öllum hefðum Sjálfstæðisflokksins.
Getgátur um tengsl styrkjanna við ákvarðanir í stjórnkerfinu
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði aðspurður á borgarafundi í Suðvesturkjördæmi að hann hefði ekki minnstu ástæðu til þess að ætla að styrkurinn frá FL Group tengist REI málinu.
RÚV fór yfir tímaás atburða í kringum styrkinn frá FL Group og sýndi fram á að auðveldlega mætti rökstyðja að tengsl gætu verið á milli styrkveitingarinnar annars vegar og sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hins vegar. Fréttatímanum var ekki lokið þegar yfirlýsing barst frá Illuga Gunnarssyni um að enginn hefði haldið því fram að hlutur ríkisins í HS hefði verið seldur með óeðlilegum hætti (laga orðalag þegar það liggur fyrir á prenti). Haft er eftir Illuga á RÚV 10. apríl 2009 að fráleitt sé að tengja styrkveitingu FL Group við sölu ríkisins á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja. Illugi telur þó styrkveitinguna óheppilega, bæði upphæðin og tímasetningin.
Samkvæmt fréttum RÚV var fyrsti fundur einkavæðinganefndar ríkisins haldinn 20. desember 2006 og þá á þeim fundi lá fyrir tilboð frá Glitni um kaup á hlutnum (Árni Mag þá hjá orkudeild Glitnis). Tilboði Glitnis var í raun vísað frá, þar sem svar einkavæðinganefndar bar með sér að ekki yrði gengið til viðræðna við áhugasama aðila fyrr en fyrir lægi hvernig að sölu yrði staðið. Styrkurinn frá FL Group, sem var kjölfestufjárfestir í Glitni, barst 29. desember 2006, níu dögum eftir fund einkavæðinganefndar. Geysir Green Energy er stofnað 5. janúar 2007, sjö dögum eftir greiðslu styrksins. Hannes Smárason er stjórnarformaður. Í apríl 2007 kaupir GGE hlut ríkisins í HS á yfirverði.
Aðrir hafa gefið í skyn sambærilega hluti og RÚV greindi frá í frétt sinni.
Fjölmiðlaumfjöllunin
Eins og gefur að skilja eru fréttir sem þessar risastórar, sérstaklega í miðri kosningabaráttu. Stærsti stjórnmálaflokkurinn sem að sögn hafði fordæmt hegðun útrásarvíkinganna varð uppvís að því að þiggja af þeim stjarnfræðilegar fjárhæðir.
Þögn Morgunblaðsins var hins vegar æpandi, eins og stundum áður. Þeir skrifuðu stutta frétt í kjölfar fréttar Stöðvar tvö að kvöldi 7. apríl en tóku síðan ekki við sér fyrr en um miðjan dag daginn eftir. Á yfirliti frétta tengdum fyrstu frétt mbl.is um málið sést að útgangspunktur þeirra var fyrst að skoða hvernig málin voru hjá öðrum stjórnmálaflokkum og því næst að kanna hvort fréttin eigi uppruna sinn hjá Stoðum (áður FL Group), enda var fyrirsögnin fyrir tengdar fréttir "framlag til flokka":
Tengdar fréttir - Framlag til flokka
Innlent | Morgunblaðið | 09.04.2009 | 06:53
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 20:33Skilað til lögaðila
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:33Styrkir endurgreiddir
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:13Kjartan vissi ekki af styrknum
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 18:10Geir segist bera ábyrgðina
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 15:11Miðstjórn Sjálfstæðisflokks sat á fundi
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:38Kannast ekki við slík fjárframlög
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:16„Ótrúlega há upphæð“
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 14:06Getur hvorki staðfest málið né neitað
Innlent | mbl.is | 08.04.2009 | 13:37Allt upp á borðinu hjá VG og Frjálslyndum
Á sama tíma einbeitti Vísir sér að því að kanna innviði greiðslunnar, viðbrögð innan flokksins og álit álitsgjafa á greiðslunni:
Tengdar greinar:
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group
Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila
FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk
Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög